Austri - 15.02.1996, Blaðsíða 8
Oryggi
Stundvísi
Þjónusta
Þægindi
Ávallt þrír í áhöfn
Aukin þjónusta
Jafnþrýstibúnaður
Þorrablótsfargjöld fyrir
burtflutta Austfirðinga
Vetraráætlun
mán.-fös. morgun/kvöld
fim. morgun/miðd/kvöld
lau.-sun. hádegi/kvöld
15 ferðir á viku
FLUGLEIÐIR
Þjóðbraut innanlands
Egilsstöðum, 15. febrúar 1996.
7. tölublað.
Svína-
kjöt
lækkar
í verði
Svínabændur á Fljótsdalshéraði
í viðskiptum við Kaupfélag Hér-
aðsbúa hafa ákveðið að lækka
verð á svínakjöti tímabundið og
nemur lækkunin tíu prósentum.
Að sögn Þórhöllu Snæþórsdóttur,
deildarstjóra hjá kjötvinnslunni
Snæfelli kemur þessi verðlækkun
til framkvæmda í verslunum KHB
og hjá öðrum verslunum sem eru
í viðskiptum við fyrirtækið á
næstu dögum. Lækkunin verður
þó mismikil eftir vöruflokkum,
sem þýðir að í einhverjum tilfell-
um mun verðið lækka meira en
nemur tíu prósentum, en í annan
stað lækka minna eða verða
óbreytt.
Félags-
þjónust-
an fjár-
frekust
Fjárhagsáætlun Egilsstaðabæjar
fyrir árið 1996 var lögð fram til fyrri
umræðu á fundi bæjarstjórnar
mánudaginn 12. febr. s.l. Aætlað er
að: skatttekjur verði 170,295,000.-
rekstrargjöld 144,259,000.- í af-
borganir lána eru áætlaðar
8,236,000.-. Áætluð gjaldf.fjárfest-
ing er 17,136,000,- og áætluð
eignf.fjárfesting 14,380,000.- Láns-
þörf er því 13,716,000.- Helstu
framkvæmdir á vegum bæjarins eru
fyrirhuguð viðbygging við grunn-
skóla, áframhaldandi framkvæmdir
við íþróttahús, gatnagerð og loka-
frágangur á Lómatjamarsvæðinu. Á
meðal fjárfrekustu liða eru: félags-
leg þjónusta, fræðslumál, yfirstjórn
sveitarfélagsins og æskulýðs- og
íþróttamál.
Höfðu erindi
sem erfíði
Komu heim með tvö gull, þrjú silfur og eitt brons
Þrír ungir austfirskir íþróttamenn
þau Sigurður Karlsson, Neista,
Djúpavogi, Lovísa Hreinsdóttir
Hetti, Egilsstöðum og Hafdís Osk
Pétursdóttir, Einherja, Vopnafirði,
gerðu góða ferð á Islandsmeistara-
mót 15 - 18 ára unglinga í frjálsum
íþróttum sem haldið var í Baldurs-
haga í Reykjavík um síðustu helgi.
Segja má að þremenningarnir hafi
haft erindi sem erfiði því þau komu
heim með samtals sex verðlauna-
peninga, tvö gull, þrjú silfur og eitt
brons. Sigurður varð í fyrsta sæti í
þrístökki með atrennu, stökk 13,21
metra. I langstökki með atrennu
varð hann í öðru sæti, stökk 6,35
metra. Sömuleiðis varð hann í öðru
sæti í kúluvarpi, varpaði kúlunni
yfir 13 metra. Lovísa krækti sér í
silfur í þrístökki án atrennu, stökk
7,39 metra, og varð í þriðja sæti í 50
metra grindahlaupi á 8,2 sek. Hafdís
Osk sigraði í langstökki án atrennu,
stökk 2,51 metra. Hún stóð sig
einnig mjög vel í langstökki með at-
rennu þar sem hún náði fjórða sæti
Þau Lovísa Hreinsdóttir, Hetti, Egilsstöð-
um, Hafdís Osk Pétursdóttir, Einherja,
Vopnafirði, gerðu góða ferð ói íslands-
meistaramót 15 -18 ára unglinga ífrjáls-
um íþróttum í Reykjavík um síðustu helgi.
Til hœgri á myndinni er Lovísa
Hreinsdóttir þegar hún var að taka við
silfurverðlaununum íþrístökki án
atrennu.
og í þrístökki án atrennu þar sem
hún varð einnig í fjórða sæti.
Snjóleysið ergir
skíðafólk
Skíðasvæði Egilsstaðabæjar hefur ekki verið opnað í vetur vegna
snjóleysis. Fullur hugur er þó á að reyna að opna svæðið og verður
í vikunni gerð tilraun til að ýta til snjó og troða með það í huga að
koma upp nothæfri braut. Sjö krakkar frá Egilsstöðum fara þrisvar í
viku til Seyðisfjarðar til æfinga undir leiðsögn norsks skíðakennara
sem þar starfar í vetur.
Að sögn Hrafnhildar Þórarinsdóttur formanns Skíðaráðs verður
ekki ráðinn þjálfari til deildarinnar í vetur en fyrirhugað að efna til
styttri námskeiða ef úr rætist með snjóinn. Skíðadeildin fékk þrjú
hundruð þúsund króna styrk frá íþróttamannvirkjanefnd og verður
nann notaður til að koma hita og raflögn í skála deildarinnar í Fjarð-
arheiði.
Skeljungur styrkir
skógrækt
Olíufélagið Skeljungur hefur
ákveðið að leggja 10 milljónir króna
til verkefna á sviði skógræktar á
þessu ári. Var samningur þess efnis
undirritaður nýlega af Jóni Lofts-
syni, skógræktarstjóra og Kristni
Björnssyni, forstjóra Skeljungs hf.
Féð verður m.a. notað til að gera
göngustíga í Þórsmörk, á Þingvöll-
um og í Eiðaskógi. Samstarf Skelj-
ungs hf. og Skógræktar ríkisins
hófst á miðju ári 1993 og hefur
Skeljungur nú styrkt skógrækt í
landinu um 27 milljónir króna og
hafa margir notið góðs af. Félaga-
samtök og einstaklingar hafa fengið
styrki til skógræktar og framleiddar
hafa verið skógarplöntur. Meginá-
hersla hefur þó verið lögð á að opna
skóglendi almenningi með bættu
aðgengi og nemur samanlögð lengd
skógarstíga, sem unnt hefur verið að
leggja vegna framlagsins frá Skelj-
ungi, tugum kílómetra og á enn eft-
ir að aukast. Slíka stígagerð má nú
sjá í skógum víða um land t.d. í
Hallormsstaðaskógi. Þá hefur verið
efnt til sérstakra skógardaga í
tengslum við bætt aðgengi í skógun-
um og hafa þeir verið fjölsóttir og
orðið til þess að fleiri og fleiri kjósa
að njóta útivistar á skógarsvæðum.
Fljótlega verða auglýstir Skelj-
ungsstyrkir, þar sem félagasamtök
og einstaklingar geta sótt um fjár-
stuðning til gróðursetningaverkefna,
en lögð verður áhersla á að veita
færri en myndarlegri styrki en áður.
Frá skógardegi í Hallormsstaðaskógi í sumar.
Mynd Ólafur Oddsson.
SÓIMNG HF
Þverklettum 1, Egilsstöðum,
sími 471-2002
KURL
Bókavörður einn sem var
ákaflega samviskusamur í starfi,
gætti bókanna eins og sjáaldurs
auga síns. Tók hann mjög hart á
því ef bækur skítnuðu eða
skemmdust í útláni. Einu sinni
kom maður með bók sem hann
var að skila. Bókavörðurinn
skoðar hana í krók og kring svo
sem venja hans var og mátti
fljótlega sjá að honum hitnaði í
hamsi. “Svona bölvuðum
skemmdarvörgum er ekki lán-
andi bók,“sagði hann fokvondur.
„Sjáðu! Hérna gapir við gat á
nítjándu síðunni, og ef flett er
við er gat líka á þeirri tuttug-
ustu“.
Allt að 30% afsl. á
barnabílstólum á
meðan birgðir endast.
Sími 471 1623
Fax 471 1693
c3
ÖD
c3
cd
73
o
ro
(N
s
«0
'cl
O
y Fellabæ J
Egilsstöðum, sími 471-1777
Kynnið ykkur tilboðin
O klst. Strax 1.254 kr. (24 myndir) á Royal pappír
o dagar Hagkvæmt 990 kr. (24 myndir) á Royal pappír
O dagar Odyrast 690 kr. (24 myndir)
Ljósritum myndir í íit oij svarihmtu, eittnicj á hoíi og cjíærur
Opnunartími:
mánud. - fimmtud.
kl. 9-12:10 og 12:50-18.
Föstud. kl. 9-12:10 og
12:50-19.
Laugard. kl. 10-14.