Austri - 06.06.1996, Side 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 6. júní 1996.
Þinglokin
Alþingi er nú að ljúka, og það má segja með full-
um rétti að þetta hefur verið eitt af starfsömustu
þingum frá upphafi. Að sjálfsögðu hafa mörg mál
sem um var fjallað verið umdeild og má þar einkum
nefna frumvörp sem varða breytta skipan á vinnu-
markaði. Fjölmörg önnur mál hafa hlotið afgreiðslu
sum stórpólitísk, önnur þverpólitísk.
Löggjöf frá Alþingi er nokkurs konar umferðarregl-
ur fyrir samfélagið og þar er settur sá lagarammi
sem ber að vinna eftir. Það fer síðan eftir eðli máls
hve víðtæk áhrif löggjöfin hefur.
Stjórnarsamstarf Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins hefur nú staðið í eitt ár. Því var
spáð að þetta yrði stjórn kyrrstöðu og helminga-
skipta. Flokkarnir myndu standa vörð um óbreytt
ástand á sem flestum sviðum.
Þegar litið er yfir verkefnaskrá Alþingis fyrir liðinn
vetur má sjá að þetta er víðs fjarri. Flokkarnir hafa
hrint í framkvæmd fj'ölmörgum verkefnum sem voru
á stefnuskrá þeirra þótt ekki sé liðið nema eitt ár af
kj örtímabilinu.
Frumvörpin um samskiptareglur á vinnumarkaði
miða að tvennum meginmarkmiðum. í fyrsta lagi
þeim að samræma að nokkru reglur um opinbera
starfsmenn og almenna vinnumarkaðinn. í öðru
lagi að löggjöf um vinnumarkaðinn stuðli að heild-
arsamningum á vinnumarkaði og reglur séu svipað-
ar eins og í nágrannalöndunum. Akvæði um við-
ræðuáætlun eru mjög mikilvæg og styrkja stöðu
verklýðshreyfingarinnar í því að hefja viðræður við
viðsemjendur sína, án þrýstings eða hótana um
vinnustöðvanir þegar í upphafi.
Nú er tekin upp skattlagning fjármagnstekna líkt
og annarra tekna. Það er nauðsjm að gera sér grein
fyrir nokkrum grundvallaratriðum varðandi þessa
skattlagningu. I fýrsta lagi að hún er einföld og fel-
ur í sér sömu skattprósentu á allar fjármagnstekjur
þar á meðal arð og söluhagnað. Sú undantekning
er gerð að söluhagnaður yfir þrjár milljónir króna
hjá einstaklingi er skattlagður með hefðbundnum
hætti en annars er skattprósentan 10%. Þessi lága
prósenta og að skatturinn var lagður á allar fjár-
magnstekjur á í fýrsta lagi að tryggja skil á honum
og í öðru lagi að hann hefur að mati fróðra manna
ekki áhrif á vaxtastigið í landinu í þeim mæli sem
hærri skattprósenta mundi hafa.
Samræming skattlagningar fjármagnstekna og
tekna af arði ætti að vera hvatning til þess að leggja
fé í atvinnulífið í landinu, en eigendur fjármagns
hafa oft á tíðum verið tregir til að taka áhættu í
þessum efnum vegna þess að betra var að varðveita
fjármagnið skattfrjálst í banka heldur en að leggja
það í áhætturekstur. Möguleikar atvinnufyrirtækja
til þess að fjármagna sig með hlutalj árútboðum ættu
því að aukst mjög. Þetta er atriði sem sterklega ber
að hafa í huga.
Það ber einnig að undirstrika að nefnd sem vann
að undirbúningi fjármagnstekjuskattsins náði víð-
tæku samkomulagi um málið. Þar á meðal voru full-
trúar ASÍ sem studdu þessa skipan mála. Stjórnar-
andstaðan kaus síðan að afflytja allt málið á þeim
forsendum að með því væri verið að hygla stóreigna-
mönnum sérstaklega.
Það hefur verið talað lengi um fjármagnstekju-
skatt. Hann er nú kominn á, en framkvæmdin er á
þann veg að hún ætti ekki að auka hættu á fjár-
magnsflótta úr landinu eða leiða til vaxtahækkana.
Það er nauðsynlegt að þetta komi fram í þeirri
umræðu sem framundan er um þessi mál.
J.K.
U pplýsingamiðstöð
Austurlands
Upplýsingamiðstöð Austurlands
var opnuð sl mánudag. Þetta er
fimmta árið sem Upplýsingamið-
stöðin starfar við tjaldstæðin á Eg-
ilsstöðum og var húsið sem hún
starfar í byggt af K.H.B. sem kostar
reksturinn, en Egilsstaðabær og
Ferðamálasamtök Austurlands
styrkja þessa þjónustu líka. Stöðugt
fleiri nýta sér þá þjónustu
sem þarna er veitt og í
fyrra var t.d. metár hvað
varðar fjölda gesta á tjald-
stæðunum, en u.þ.b.
10.000 manns dvöldu þar
þá. Þeir sem leituðu upp-
lýsinga hafa sennilega ver-
ið nálægt 30.000.
Það eru þær Karen Erla
Erlingsdóttir og Edda Jóns-
dóttir Langworth sem sjá
um reksturinn og eru fimm
manns í vinnu tengdri
Upplýsingamiðstöðinni.
Karen Erla sagði að markmiðið
með þessari starfsemi væri að veita
góða þjónustu um sem flest sem við
kemur ferðamennsku. Upplýsing-
amar sem þama er hægt að nálgast
em á landsvísu, þó að mest sé spurt
um það sem er í boði á Austurlandi.
Fyrst og fremst vilja menn fá vit-
neskju um gistingu og afþreyingu
en líka um rútuferðir o.m.fl.
Farþegar með Norrönu eru stór
hluti þeirra sem leita til Upplýsinga-
miðstöðvarinnar. Karen Erla segir
mjög mikilvægt að hægt sé að þjón-
usta þessa farþega eins og best verð-
ur á kosið því að þessi miðstöð og
sú í Reykjavík séu þær sem taka á
móti ferðamönnum þegar þeir koma
inn í landið. Ferjufarþegar em líka
mikið á eigin vegum og þar af leið-
andi þurfa þeir nauðsynlega að fá
góðar upplýsingar um færð, veður,
gistingu o.fl. og þær er hægt að fá
þarna. Hlutverk Upplýsingamið-
stöðvarinnar verður því mjög stórt
fyrir þessa ferðamenn.
Bókunarþjónusta í gistingu verður
tekinn upp í sumar og verður tekið
smávægilegt gjald fyrir hana og
hægt að bóka sig í gistingu á öllu
landinu. Einnig er hægt að bóka sig
í rútuferðir og kaupa svokallaða
hringmiða og tímamiða sem gera
ferðamönnum kleift að ferðast
nokkuð frjálst með rútum um allt
land.
Göngufólk mun geta sótt þjónustu
til Upplýsingmiðstöðvarinnar í
formi upplýsinga um gönguleiðir og
einnig verður sérstök þjónusta á
gönguleiðinni Seyðisfjörður-Loð-
mundarfjörður-B orgarfjörður. Séð
verður um að bóka gistingu fyrir þá
sem ætla að ganga þessa leið og
einnig verður hægt að fá farangur
fluttan á milli staða. Þetta er gert í
tilraunaskyni og ef áhugi reynist
mikill er ætluninn að
þróa þetta frekar í fram-
tíðinni. Þetta er liður í að
gera Austurland aðgengi-
legra fyrir göngufólk.
íslendingar notfæra sér
Upplýsingamiðstöðina í
auknum mæli. Það eru
þó fyrst og fremst þeir
sem gista á tjaldstæðun-
um sem það gera og eins
þeir sem eru í sumarhús-
um í nágreninu. Það eru
fyrst og fremst upplýs-
ingar um afþreyingu sem þeir sækj-
ast eftir.
Karen Erla vildi benda öllum
þeim sem eru í ferðaþjónustu á að
nýta sér Upplýsingamiðstöðina. Það
er öllum til hagsbóta að sem mestar
upplýsingar um það sem stendur
ferðamönnum til boða séu fáanleg-
ar á einum og sama staðnum.
Nú eru uppi hugmyndir um það
að Ferðamiðstöð Austurlands og
ferðamálafulltrúinn flytji í húsnæði
Upplýsingamiðstöðvarinnar í haust
og er þá öll þessi þjónusta komin í
eina sæng. Austram:S.B.B.
Nýir rekstraraðilar í Shell
Berglind Steingrímsdóttir og
Gestur Gestsson tóku við rekstri
Shell-skálans (Skógamesti) á Eg-
ilsstöðum 1. júní sl. Þau hafa hug
á að brydda upp á einhverjum ný-
ungum í sumar og hafa þegar fest
kaup á pizzu-ofni og ráðið til sín
bakara, Hjálmar Vilhjálmsson sem
er þrautreyndur flatbökubakari.
Matseðillin er nýr en þó með hefð-
bundnu sniði. Svo er meiningin að
bjóða upp á eitthvað af nýlendu-
vörum, s.s. mjólk, brauð o.s.f.v.
Berglind og Gestur sjást hér kampakát
í veitingasal sínum. Austram:S.B.B
Mánaðaráskrift kr. 500 m/ vsk. Tveir fyrstu mán. á verði eins.
Austri - Pósthólf 173 - 700 Egilsstaðir.
Nafn
Kt: ______________
Heimili __________
Póstnúmer_________
Sími___________
Númer korts:______
Rithandarsýnishom
(krossið þar sem við á)
Eurocard
Visa
□
□
Gildistími
n
Þeir sem greiða með korti fá 5% afslátt.
J