Austri - 06.06.1996, Síða 5
Egilsstöðum, 6. júní 1996.
AUSTRI
5
Gasprað upp
í gjóluna
í dag hef ég byrjað á tveim
gösprum sem bæði eru komin í
bréfakörfuna með sóma og sann
af því að þau stefndu í að verða
svo hrikalega leiðinleg að þau
hefðu getað „drepið
naut“ eins og Steinn
Steinarr sagði forðum
um ljóð Ezra Pounds.
Ég legg frá mér penn-
ann örvæntingarfullur
yfir heimsku minni og
höfuðtómleika, horfi út
um gluggann. Æ,æ,
apar, ljón og ísbimir! Er
þá ekki kattarfjandi einhvers stað-
ar héðan úr grenndinni tekinn enn
einu sinni til að lymskast um lóð-
ina í morðhugleiðinum, með
þrastarblóðþorstann ólgandi undir
hljóðlátu fasi, græðgin skín úr
svipnum eins og á frjálshyggju-
manni, sem eygt hefur nýja
gróðavon í braski sínu.
Undur væri gaman að vera
uppfinningamaður og smíða há-
þrýstisprautubúnað við vatns-
lögnina tengja hann við skynjara
sem miðaði út morðóða ketti, er
koma inn á lóðina, og sendi boð í
sprautustútinn að opna fyrir
vatnskraftinn þegar þeir kæmu í
gott færi. Ætli þeir hættu þá ekki
að hugsa um þrastakjöt um sinn?
Annars er mér síður en svo illa
við ketti og sjálfur hef ég eignast
þrjá svoleiðis gripi um ævina, prí-
vat og persónulega. Sá fyrsti var
svartur og sómakær í hófi, sóttist
eftir að gera stykki sín í þvott ný-
kominn af snúrunni
ilmandi af sól og blæ
ellegar á öðrum álíka
vel völdum stöðum.
Honum var fargað að
mér forspurðum. Þá var
ég mjög ungur. Annar
var móbröndóttur og
ærið stásslegur en skap-
gallaður. Væri honum
strokið til mals brást hann stund-
um ókvæða við í miðjum klíðum,
læsti klóm í bak og lófa handar-
innar, er strauk, og beit kjaftfylli
í jaðarinn. Ekki kembdi Brandur
hæmrnar. Eftir á að hyggja hafa
báðir þessir högnar þjáðst af
læðuleysi. Hinn þriðji var svo
laus við allan persónuleika að ég
man ekki hvemig hann var á lit-
inn. Hann var afar latur, sat löng-
um og hugsaði en fór sér hægt ef
hann hreyfði sig. Hann rölti oft
með mér í fjárhúsið. Það var
einmitt á fjárhúshlaðinu sem hann
rakst á rottuna og stökk upp í loft-
ið af hræðslu, lét svo fætur forða
sér heim. Aldrei sá ég hann flýta
sér, nema þá.
1. júní
Sigurður Óskar
Pálsson
Að meðaltali 2362 ökumenn kærðir
fyrir meinta ölvun við akstur á ári
Umferðaráð hefur sent frá sér skýrslu um umferðarslys árið 1995, sem
gerð er samkvæmt lögregluskýrslum.
Á árinu 1995 vora slys skráð eins og á áranum 1975-1994 og hefur slys-
um með meiðslum fjölgað miðað við árið áður.
Látnum fjölgaði úr 12 árið 1994 í 24 árið 1995. Árið 1995 slösuðust
1.631 í 1.057 slysum, þar af 239 alvarlega, en árið 1994 slösuðust 1.473 í
1.004 slysum, þar af 242 alvarlega. Slys þar sem fólk meiddist eða lést
jukust um 11,2% frá 1994 til 1995.
Skráð eignatjónsóhöpp vora 3.867 miðað við 3.631 árið 1994.
Árin 1968-1969 er fjöldi látinna mun minni en á áranum á undan og á
eftir og má án efa þakka það þeirri umferðarfræðslu og því eftirliti, sem
tengdist breytingu í H-umferð vorið 1968. Á sama hátt má m.a. þakka
aukinni umferðarfræðslu og umferðareftirliti á Norræna umferðaröryggis-
árinu 1983 að dauðsföll vora þá mun færri en í meðalaári eða samtals 18
látnir.
Þess má geta að sjúkrastofnanir og tryggingafélög hafa á undanförnu
áram skráð mun fleiri lítið slasaða en fram kemur í skráningu Umferðar-
ráðs. Þessi munur hefur þó minnkað enn meira á síðustu þremur áram þar
sem lögregla hefur gert skýrslur um fleiri slasaða vegfarendur en áður.
Ökumenn .2 "tw 7« «5 09
kærðir fyrir j 05 o. s i iL "3
meinta ölvun '3 5 3 s 08 09 sS s « B
við akstur. z C/J 4> £ 3 < cn a -j
1977 9 25 9 22 2273
1978 28 53 20 31 2472
1979 17 45 22 28 2610
1980 28 52 18 31 2567
1981 17 29 17 18 2314
1982 12 39 19 27 2515
1983 12 68 11 14 2464
1984 19 59 15 27 2496
1885 12 46 19 26 2481
1986 13 61 11 25 2333
1987 21 71 15 24 2664
1988 18 41 30 38 2617
1989 9 47 25 20 2570
1990 11 41 23 18 2446
1991 11 42 17 33 2246
1992 45 29 25 21 1997
1993 49 19 10 20 1955
1994 38 13 14 13 1936
1995 32 14 6 32 1921
meðaltal á öllu landinu: 2362 á ári
Mikil aðsókn í Tón-
skólann á Egilsstöðum
Tónlistarskólanum á Egilsstöðum
var slitið föstudagskvöldið 24. maí
sl. í Egilsstaðakirkju.
Á skólaslitunum voru afhent
stigsprófsskírteini og vetraramsagn-
ir nemenda. I skólanum stunduðu
nám sl. vetur 116 nemendur á öllum
aldri. Kennarar voru 7 auk skóla-
stjóra í 5,2 stöðugildum. Forskóla-
deild starfaði með 6 og 7 ára böm-
um þar sem kennt var í hóptímum.
Afgreiðslur
á öllum
þéttbýlisstöðum
a
Austurlandi.
VIGGÓ HF
Foreldrafélag var sett á laggimar í
vetur. Starfaði það í kringum hljóm-
sveit skólans. Skiptu foreldrar á
milli sín að koma með hressingu á
æfingar sveitarinnar, auk þess sáu
þeir um kaffisölu á degi tónlistar-
skólanna. Innritun fyrir næsta skóla-
ár lauk 20. maí sl. Umsóknir era nú
fleiri en nokkru sinni áður eða 128.
Unnið er að því að koma á stofn
tónlistarbraut í samvinnu við
Menntaskólann á Egilsstöðum.
Magnús Magnússon skólastjóri fer í
ársleyfi frá skólanum og hefur Jón
Guðmundsson kennari við
Hallormsstaðaskóla og Tón-
listaskólann verið ráðinn sem
skólastjóri á meðan Magnús er í
leyfi.
Ráðinn hefur verið söngkennari
að skólanum, en hann mun hefja hér
störf í upphafi næsta skólaárs. Hann
heitir Keith Reed og er sem stendur
við óperasöng og kennslu í Þýska-
landi þar sem hann hefur starfað sl.
fjögur ár. Hann bjó tvö ár í Reykja-
vík og kenndi við Söngskólann og
Nýja tólistarskólann auk þess sem
hann söng í íslensku óperunni.
Hann er kvæntur Ástu B. Schram og
eiga þau fimm böm.
~... blessaður™
verfu, það kostar
bara 24 krónur...
" Heyrðu,
nú verð ég að fara
að hœtta þessu, ég er
búinn að tala í tíu
K mínútur... A
Nú er allt að helmingi ódýrara
aö hringja innanlands
Póstur og sími hefur einfaldað gjaldskrá fyrir innanlands-
símtöl. Nú eru aðeins tveir gjaldflokkar og næturtaxtinn
hefst klukkan 19.00. Það jafngildir 50% lækkun á símtöl-
um frá kl. 19.00 til 23.00 og 33% lækkun á símtölum frá
klukkan 23.00 til 08.00 á þeim símtölum sem tilheyrðu
gjaldflokki 3.
Símtal á milli
Keflavíkur og
Egilsstaða kostar
2 krónur og átta
aura á mínútu eftir
klukkan 19.00.
POSTUR OG SIMI