Austri - 06.06.1996, Page 7
Egilsstöðum, 6 1996.
AUSTRI
7
T,gi[sstaðabœjar-tyskaupstaðar
Neskaupstaður
Nýja húsnæði slökkvistöðvarinn-
ar er að verða tilbúið og verður
gamla húsnæðið notað undir að-
stöðu fyrir vinnuskólann.
Búseti Norðfirði hefur óskað eft-
ir viðræðum við bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar um hugsanlega samein-
ingu íbúða Búseta við aðrar íbúðir í
félagslega kerfinu.
Tólf manns vom á atvinnuleysi-
skrá í apríl. Nokkrir drengir sem
ekki hafa aldur til að aka skellinöðr-
um á götum bæjarins hafa sótt um
svæði til æfinga og er verið að
skoða það.
Bæjarráð samþykkt að nýta for-
kaupsrétt bæjarins í hlutabréf Sfld-
arvinnslunnar hf. (SVN), kr.
27.982.251 og verða kaupin fjár-
mögnuð með lántöku. Lífeyrissjóð-
ur Neskaupstaðar hefur lýst yfir
vilja sínum til kaupa á hlutabréfum í
SVN fyrir kr. 5-7 millj. og óskar eft-
ir að bæjarsjóður tryggi sjóðnum
hlutabréf. Beiðni Verðbréfamarkað-
ar íslandsbanka hf. um að fá fram-
seldan forkaupsréttinn í áðumefnd
hlutabréf var hafnað.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
lýst yfir stuðningi við þá hugmynd
að efna til skógræktarátaks á mið-
fjörðum Austfjarða í svipuðum dúr
og verkefnið Héraðsskógar.
Samráðsnefnd Neskaupstaðar,
Eski- og Reyðarfjaðar samþykkti að
beina því til viðkomandi sveitar-
stjórna að þær samþykki samein-
ingu heilbrigðisnefndanna. I stað
þriggja nú verði komið á fót einni
sjö manna nefnd sem í eigi sæti 3
fulltrúar frá Neskaupstað og 2 frá
Eski- og Reyðarfirði.
Varðandi sameiningu hafnarsam-
laga voru nefndarmenn samráðs-
nefndarinnar sammála um að skyn-
samlegra væri að kanna fyrst mögu-
leikann á sameiningu sveitarfélag-
anna áður en farið væri að stofna
byggðasamlög um einstaka þætti
sbr. hafnarsamlög.
Egilsstaðir
Verið er að setja á fót nefnd sem
fjalla á um nám á háskólastigi.
í Æskulýðs- og íþróttaráði kom
fram í viðræðum við forsvarsmenn
Hattar að verulega hefur áunnist við
að leysa fjárhagsvanda félagsins.
Samþykkt að taka 5 millj. kr. lán
til að endurlána Hótel Valaskjálf.
Bæjarstjóm samþykkti að nýta
forkaupsrétt Egilsstaðabæjar í hluta-
fé Ferðamiðstöðvar Austurlands upp
á kr. 1.159.000. Vegna atkvæða-
greiðslu Atvinnumálaráðs um hluta-
fjárkaupin telur bæjarstjóm að Er-
lendur Steinþórsson, sem greiddi til-
lögunni atkvæði sitt þar, hefði átt að
víkja af fundinum á meðan hún var
afgreidd, þar sem hann var bæði
starfsmaður Ferðamiðstöðvarinnar
auk þess að eiga hlutafé í fyrirtæk-
inu.
Gmnnskólanum var veitt viðbót-
arfjárveiting sem nemur 35 kennslu-
stundum á viku til að mæta sérþörf-
um og skiptingu bekkjardeilda
næsta skólaár.
Akveðið hefur verið að útbúa
betri aðstöðu fyrir vinnumiðlunina
sem er með aðstöðu á bæjarskrif-
stofunni.
I sjónmáli er lausn á bílastæða-
vanda gmnn- tón- og leikskólans og
félagsmiðstöðvarinnar þar sem ætl-
unin er að útbúa sameiginleg bfla-
stæði og gera aðkomu betri.
Fjármögnun greiðslu á hlutafé til
Asgarðs ehf., (nýja hótelið) verður
gerð að hluta til með lántökum og
greiðast kr. 9,5 millj. þ.e. helmingur
árið 1996 og afgangurinn á næsta
ári.
Vigdís Sveinbjömsdóttir spurði
um endanlega staðsetningu hótels-
ins og sagðist telja vænlegast að
staðsetja það við Valaskjálf, ekki
væri fullreynt með þá athugun. Ein-
ar Rafn Haraldsson, sem situr í
stjóm Asgarðs f.h. bæjarins, svaraði
því til að nálægðin við félagsheimil-
ið væri hluthöfum og væntanlegum
rekstraraðilum þymir í augum. Vig-
dís lagði fram bókun frá fulltrúum
B-listans þar sem þeir lýsa skoðun-
um sínum á að ekki hafi verið full-
reynt með að byggja við Valaskjálf.
Bygging við Valaskjálf muni reyn-
ast farsælli lausn með tilliti til gisti-
möguleika og nýtingar núverandi
hótelhúsnæðis.
Einar Rafn Haraldsson svaraði
með bókun á þá leið að stjórn Ás-
garðs ehf. hafi ítrekað skoðað þann
valkost að byggja við Valaskjálf en
ekki talið það heppilegt vegna
kostnaðar, nálægðar við héraðs-
heimilið og skuldastöðu Hótels
Valaskjálfar. Lýsti hann furðu sinni
á endurteknum fullyrðingum B-list-
ans um ágæti þess að byggja við
Valaskjálf og hvatti hann þá til að
kynna sér málið þannig að þeir geti
fjallað um það af þekkingu.
15 ^ RUSSBUL Opið virka daga kl. 17 - 22 laugard. kl. 16 - 20
j r Ztápsfjör’x Reyniveliir 5. EgilsstOðum ' Simi 471-2012 Þrír bekkir, einstaklingssturtur, hlj ómflutingstæki við hvern bekk.
ifWfimi-Tfflii
uówitw iÞHÓTTmUJi ICLSPCC SÍMI 471-2434
Opið mán- föst kl. 14 - 22 laug kl. 11-15 flLVÖHy lÖLMMTOfll
Kirkjubæjar-
kirkja
9 júní kl. 14:00.
Guðfinna Harpa Ámadóttir,
Straumi.
Heiðdís Anna Þórðardóttir,
Brúarási.
Kraki Ásmundsson, Vífilsstöð-
um.
Rúnar Ingi Tómasson,
Kleppjámstöðum.
Tómas Bragi Friðjónsson,
Flúðum.
Einar Þorsteinsson
sóknarprestur.
Leiðrétting
í stuttri grein um árangur í sam-
ræmdu prófunum í síðasta blaði var
leiðinleg villa. Hluti greinarinnar
var um samanburð á ámnum 1993-
1996 og var eitthvað á þessa leið:
Árangur frá 1993-1996 hefur verið
svipaður en þó hefur meðaleinkun
sigið nokkuð upp.
Þarna kom ekki fram að það er
meðaleinkun í ensku sem hefur
hækkað. Auk þessa er það ekki al-
veg kórrétt að segja að eitthvað sigi
upp.
En það sem átti að koma fram var
það að meðaleinkun í ensku hefur
hækkað nokkuð á umræddu tíma-
bili. Árið 1993 var hún 5,9 og var
hæst 7,2 1994.1 ár er hún hins veg-
ar7,0.
Er hér með beðist velvirðingar á
þessum mglingi.
Smáauglýsingar Smáauglýsingar Smáauglýsingar
Til sölu
Til sölu.
Fjögurra manna gúmmíbátur f. 10
hestafla mótor.
I þokkalegu ástandi. Selst fyrir lítið.
Uppl. í sfma 471-2348.
Til sölu rúm 1,20 x 2 m. með eða án dýnu.
Sanngjamt verð. Uppl. f síma 471-1217.
Nýr og gómsætur harðfiskur.
Olís Fellabæ
Oskast
Óska eftir að kaupa notaðan mykju-
dreifara í góðu standi.
Uppl. í síma 478-8981.
Óska eftir gefins þvottavél og húsbún-
aði. Uppl. í síma 471-1187.
Ymislegt
Líf í leir
Nemendasýning að Tjamarbraut 39e helg-
ina 8. og 9. júní klj 14:00 til 22:00.
Verslanir K.H.B.
endurbættar
Þessa dagana er verið að vinna að breytingum á verslunum K.H.B. á Eg-
ilsstöðum og Reyðarfirði. Á Egilsstöðum á framkvæmdum við kjörbúðina
að ljúka mjög fljótlega. Breytingum á Söluskálanum á að ljúka upp úr
sautjánda júní og Reyðarfjarðarbúðin verður fullkláruð í lok júní.
Að sögn kaupfélagsstjórans, Inga Márs Aðalsteinssonar, er ætlunin að
minnka vefnaðarvöm- og fatadeildir á Reyðarfirði og leggja meiri áherslu
á matvöru. Verslunin á Egilsstöðum hefur tekið nokkrum breytingum.
Ferskvaran er komin framar í búðina og fata- vefnaðarvöru og raftækja-
deildir innst í búðina. Hún hefur einnig rýmkast nokkuð með niðurbroti
eins veggjar. Þá er verið að byggja nýstárlegt andyri við kjörbúðina í anda
píramídans við Louvre safnið. Söluskálinn stækkar talsvert og vöruúrval
mun aukast samfara því, ekki síst í nýlenduvömm, ferðamönnum til þæg-
inda. Bensínafgreiðslan verður lfka endurbætt talsvert og verið er að setja
nýja bensíntanka niður í stað þeirra eldri og eru þeir heldur stærri en þeir
sem fyrir vom.
Hið nýstárlega andyri eins og það mun líta útfullklárað. Menn munu ekki einu sinni
þurfa að opna hurðirnar sjálfir því skynjarar munu sjá til þess að þœr opnast sjálf-
krafa.
ÍSLANDSMÓTIÐ ÍBÚAR Á
3. DEILD EGILSSTÖÐUM OGÍ
FELLABÆ!
HÖTTUR - DALVÍK Skráningardagur í íþróttaskóla barnanna (íþrótta- og leikjanám-
FÖSTUDAG 7/6 KL. 20:00 skeið) á vegum Egilsstaðabæjar og Hattar verður fimmtudaginn
Miðaverð kr. 500,- 6. júní milli kl. 12 og 15 í síma
Frítt fyrir yngri en 16 ára. 471 1991. Einnig er hægt að
Ársmiðar seldir á staðnum. koma í Hettuna.
Ikjár fefflar Forsetakjör 1996
S ?iki l Kosningaskrifstofur
Brottför úr Reykjavík: þriðjudaga,fimmtudaga Olafs Ragnars Grímssonar á Austurlandi
og föstudaga. Afgreiðsla á Landflutningum. Neskaupstaður Egilsbraut 11 2. hæð.
Sími 568-5400. Sími 477-1992.
Bílasímar: Mánudagar og fímmtudagar kl. 19-22
sími 852-1193 Þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga kl. 13-18 og 20-22.
sími 852-7236 Helgar kl. 13-16.
SVAVAR& KOLBRÚN Egilsstaðir Tjarnarbraut 19 kjallari. Sími 471-2601 fax 471-2611.
Sími 471-1953 /fax 471-2564 Mánudagar og fímmtudagar kl. 13-18 og 20-22. Þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga kl. 15-18 og 20-22.
Miðás 1-5 Helgar kl.13-16.
700 Egilsstöðum Stuöningsfólk Austurlandi.