Austri - 04.12.1997, Side 1
Verið velkomin
Verslanir fyrir þig
42. árgangur
Egilsstöðum, 4. desember 1997.
44. tölublað
Verð í lausasölu kr. 150
Hraðfrystihús Eskifjarðar kaupir rækjuverksmiðju
Stefnt að 100%
afkastaaukningu
Hraðfrystihús Eskifjarðar hefur
fest kaup á nýlegri rækjuverksmiðju
í Noregi og er það hluti af endumýj-
un rækjuverksmiðju fyrirtækisins.
Haukur Björnsson, rekstrarstjóri,
segir verksmiðjuna hafa staðið rétt
hjá Hammerfest, en búið er að taka
hana í sundur og er hún væntanleg í
gámum til Islands innan skamms.
Haukur segir að það eigi að setja
rækjuverksmiðju Hraðfrystihússins
upp í nýju húsnæði, sem svari betur
kröfum markaðarins. Ekki er nægi-
legt pláss í núverandi húsnæði til að
koma fyrir hlutum eins og t.d. eftir-
frystingu. Afkastaaukning í nýrri
verksmiðju verður veruleg, 6-7000
tonn á ári, og afkastar norska verk-
smiðjan um helmingi þess. Afkasta-
getan í allt eykst á hinn bóginn um
100% frá því sem nú er.
Ætlunin er að nýja verksmiðjan
verði tekin í notkun næsta sumar, en
kostnaður við að koma henni upp er
að sögn Hauks alltaf um 100 millj-
ónir. „Þetta verður gjörbylting. Við
verðum með rækjuverksmiðju af
flottustu gerð á landinu. Við viljum
alltaf vera fremstir ef við mögulega
getum,“ segir Haukur.
■í. ;;í
; ;;; ;:;;;;;;
Það hefur lítið veiðst af sild að undanförnu, en þegar Ijósmyndari Austra átti leið fram hjá fiskvinnslunni Friðþjófi á Eskifirði
nýverið var allt ífullum gangi við tilfœrslu tunna. Einn starfsmaðurinn sýndi blaðasnápinum þó að það var ekki mikið í tunnunum
og jafnhnattaði eina, enda allar galtómar enn sem komið er. Austramynd: sbb
Skýrsla Byggðastofnunar um búferlaflutninga
Fimmtimgur Aust-
firðinga ætlar burt
Sameining Austur-Skaftafellssýslu
Um 90% sögðu já
- kjörsókn dræm á Hornafirði
Skv. skýrslu sem nefnist Búseta á
Islandi - Rannsókn á orsökum bú-
ferlaflutninga, og var unnin fyrir
Byggðastofnun af Stefáni Olafssyni
prófessor, kemur í ljós að 21%
Austfirðinga ætla að flytja úr fjórð-
ungnum á næstu tveimur árum. Þar
að auki langar 17% að flytja sig um
set og 25% hafa hugleitt það.
Astandið í þessum málum er verst
hér á Austurlandi og á Vestfjörðum,
þar sem hlutfallið er svipað, en
langfæsta langar að flytja frá höfuð-
borgarsvæðinu og Vesturlandi.
Helstu ástæður sem menn
gefa fyrir þeirri ætlan sinni að
flytjast burt eru atvinnumál,
menntakostir og almenn lífs-
gæði.
Það er tekið fram í skýrsl-
unni að mjög ólíklegt sé að
svo stór hluti íbúa flytji brott
þegar á hólminn er komið,
enda væri það mjög mikil
aukning frá því sem verið hef-
ur. Hafa verður í huga að
brottflutningur er meiri á hverjum
tíma en heildarfækkun íbúa vegna
þess að hverjum straumi brott fylg-
ir straumur í gagnstæða átt.
Það er á hinn bóginn ljóst að
mikils rótleysis gætir hjá íbúum
fjórðungsins, í það minnsta í ein-
hverjum byggðarlögum hans. í
skýrslunni segir að miðað við þau
svör sem fengust við spurningum
um búferlaflutninga má gera ráð
fyrir að brottflutningur verði áfram
mikill af Vestfjörðum og Austfjörð-
um.
Sameining Borgarhafnar-, Bæjar-
og Hofshreppa og Homafjarðarbæjar
var samþykkt með miklum meirihluta
í kosningum sl. laugardag. 89,2%
kjósenda sögðu já, en 8,9% nei. Þar
með er öO Austur-Skaftafellssýsla orð-
in eitt sveitarfélag.
Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri
á Höfn segist eðlilega vera ánægður
með úrslitin. Hann segir úrslitin í Ör-
æfúnum hafa vakið mesta athygli, en
92% kjósenda þar samþykktu samein-
inguna. Fyrirfram var talið að úrslitin
þar gætu orðið tvísýn. „Þar var mesta
fylgið, sem er athyglisvert. Öræfingar
hafa ákveðið að koma af fullum krafti
inn í þetta,“ segir Sturlaugur.
Kjörsókn var ákaflega dræm á
Homafirði, einungis 37,4% kjörbærra
manna mættu á kjörstað. Sturlaugur
segir áhugaleysið þar hafa verið
ákveðin vonbrigði. „Hins vegar ef
miðað er við þann áhuga sem ég hafði
fundið fyrir þá er ég ánægður með
þessa kjörsókn, ég var hræddur um að
þetta gæti orðið enn minna.“
Nú á eftir að finna nafn á
nýja sveitarfélagið og segir
Sturlaugur að þar séu skiptar
skoðanir. Kjósendum gafst
kostur á því að skrifa á at-
kvæðaseðlana hugmyndir síh-
ar að nafni og verða niður-
stöður þeirrar könnunar gerð-
ar opinberar eftir helgina.
Nokkur nöfh hafa verið nefnd
og hefur Homafjörður oftast
verið nefndur í því sambandi.
Sturlaugur segir þó að það séu
alls ekki allir sammála því.
Sameiningin tekur formlega gildi 6.
júní nk. og fram að þeim tíma þarf að
huga að ýmiskonar samræmingu.
Sveitarfélögin hafa haft mikinn sam-
eiginlegan rekstur fýrir, þannig að íbú-
ar munu líklega finna lítið fyrir sam-
einingunni.
Ibúar nýja sveitarfélagsins em um
2500 og verður þetta annað stærsta
sveitarfélag á Austurlandi, næst á eftir
nýsameinuðu sveitarfélagi Eskfirð-
inga, Norðfirðinga og Reyðfirðinga.
Eskifirðingar mótmæla auðlindaskatti
Þann 2. desember sl. samþykkti bæjarstjóm Eskifjarðar ályktun þar sem hún lýsir yfir and-
stöðu við þá hugmynd að setja sérstakt veiðileyfagjald á veiðar úr norsk-íslenska síldarstofhin-
um. Telur bæjarstjómin að auðlindaskattur á sjávarútveginn sé hið mesta óráð og komi ekki til
greina.
í ályktuninni segir, að veiðileyfagjafd á fiskistofna sé sérskattur á sjávarútvegsfyrirtækin,
starfsmenn jreirra til sjós og lands og jreirra sveitarfélaga, sem mest eiga undir í sjávarútvegi.
Veiðileyfagjald verði því fyrst og fremst skattur, sem auka muni enn á misvægi búsetuskilyrða
milli landshluta. Allir bæjarfúlltrúar samþykktu ályktunina að undanskildum fulltrúa Alþýðu-
flokksins sem sat hjá.
w
Vörutegund Eining Tilboðsverð Verð áður
Mr. Muscle ofnhreinsir 300 ml 275 320
Mr. Muscle eldhúshreinsir 500 ml 248 325
Mr. Muscle glerhreinsir 500 ml 246 262
Goddard koparfægilögur
Goddard silfurfægilögur
Goddard fægiklútur
Tilboðs-
verð
125 ml 278
125 ml 278
1 stk. 316
Eining verð áður ' B
Johnson Parkett bón 500 ml 369 420 Johnson Klar gólfbón 500 ml 369 420
Pledge húsgagnaáburður 250 ml 219 256
Pledge tekkolía 150 ml 248 310
Pledge viðarsápa 500 ml 239 268
Verslanir