Austri


Austri - 04.12.1997, Side 7

Austri - 04.12.1997, Side 7
Egilsstöðum, 4. desember 1997 AUSTRI 7 Pétur Guðvarðsson Snjóholti Gróðurhúsa- áhrifín Tölvukaup fyrir jólin Mikill fjörkippur hleypur nú í umræðuna um svokölluð gróður- húsaáhrif, sem eiga að stafa af los- un ýmiskonar lofttegunda út í and- rúmsloftið, og á lofttegundin koltví- sýringur (C02) að vera þeirra hættulegust þar sem hún er sögð hindra „hitaútgeislun" jarðarinnar og þar með valda því að hiti safnist upp, þar til allt er komið á suðu- mark, eða hvað? Gróðurhús gegna sama hlutverki og önnur hús, að mynda skjól fyrir vindinum því það er vindurinn sem kælir með því að dreifa hitanum. í loftinu er hins vegar ekkert skjól. Koltvísýringur er hluti af loftinu og lýtur nákvæmlega sömu eðlis- lögmálum og loftið sjálft og hefur því jafn mikið eða lítið einangrun- argildi eins og það. Allar jurtir binda koltvísýring. Það er frumskilyrði alls lífs á jörð- inni. Ef veður hlýnar þá vaxa jurt- imar hraðar og verða stærri og gróskumeiri og binda þar með koltvísýring hraðar. Hlýrra veðurfar þýðir líka meiri uppgufun og þar með meiri úrkomu sem örvar sprettu gróðursins enn meir. Þama er þannig innbyggt jafnvægiskerfi, sem ekki verður raskað. Ef koltvísýringur hindrar hitaút- geislun frá jörðinni myndi hann þá ekki einnig hindra hitageislun til jarðar frá sólinni? Ætti það þá ekki að valda kólnandi veðurfari en ekki hlýnandi? En þetta em allt óþarfa vangavelt- ur, því hiti getur ekki safnast upp, hann geymist ekki. Víðast á jörðinni er vandamálið að hita upp og halda hita í húsum manna, einnig gróður- húsum. I hitabeltinu er víða mjög heitt meðan sólin skín, en um leið og hún sest kólnar jafnvel niður fyr- ir frostmark sums staðar. Þetta á sér skýringu í þeirri staðreynd að heitt loft er léttara en kalt og stígur því upp og því heitara sem það er því örar stígur það. I háloftunum er fimbulkuldi. Hit- inn lækkar að jafnaði um eina gráðu fyrir hverja hundrað metra sem ofar dregur. Sé miðað við 0°C þá er 10°frost í eins km hæð, í 10 km hæð er þá komið 100°frost. Það er ekki meiri hæð en það að flugvélar fljúga oft hærra. Loft sem er -100° er létt- ara en loft sem er -110° og leitar því Smáar Einbýlishús á Djúpavogi til sölu Til sölu er 130 m2 íbúð 60 m2 bflskúr á neðri hæð og 20 m2 sólstofa (plexigler). Tilboð óskast. Upplýsingar hjá Kristjáni í síma 852- 2559 Tilboð óskast í Peaugut 505, 8 manna árg. 1987, með bilaða vél. Nánari upplýsingar í síma 471-2171 Tilboð óskast í leigu á túnum Eyjólfsstaða á Völlum næstkomandi sumar. Upplýsingar í síma 471-1732 Til sölu Chervolett Monza árgerð ‘88. Verðhugmynd 100 þúsund. Góður bfll. Upplýsingar í síma 478-1751 Til sölu 4 herbergja íbúð á Brekkunni á Akureyri. Laus strax. Upplýsingar í síma 464-4292 Til sölu sófasett 3-2-1 á kr. 8-1Ö þús. Upplýsingar í síma 471-1986. upp fyrir það. Svona mætti halda á- fram að telja upp staðreyndir, sem sýna að óttinn við gróðurhúsaáhrif og ofhitun jarðarinnar er ástæðu- laus, alveg sama hver efnasamsetn- ing loftsins er. Náttúran fer sínar eigin leiðir og sér um sig sjálf, þarfnast ekki aðstoðar mannanna, enda geta menn lítið hjálpað þótt þeir tylli fæti á jörðina í lítið brot úr augnabliki miðað við jarðsöguna. Hvers vegna þyrla menn upp slíku moldroki og það gegn betri vitund, því vísindamenn viðurkenna greið- lega að allt þruglið sé ósannað og geti því allt eins verið rangt? Lönd hafa sokkið í sæ af öðrum ástæðum en bráðnun ísa, en það gæti verið efni í annan pistil. Kenningin um gróðurhúsaáhrif lofttegunda verður að rökstyðja mun betur en gert hefur verið, helst sanna hana svo óyggjandi sé, áður en lengra er haldið. Vilji einhver gera athugasemd við það, sem hér hefir verið sagt, væri æskilegt að birta það hér í Austra annars er ekki víst að það komi fyrir sjónir undir- ritaðs. Nýjustu fréttir herma að nú sé hlýrra á heimsskautasvæðunum en verið hafi í heil 400 ár. Þetta þarf engan að undra. 400 ár er aðeins ör- lítið brot af jarðsögunni. Tíðarfarið sveiflast dag frá degi ár frá ári. Það koma hlýindaskeið og kaldari tíma- bil. Isaldir margar og einhvemtíma hefur verið mun hlýrra á norðurslóð en verið hefur nú um skeið. Það sýna t.d. leifar af jurtum sem vaxa í mun hlýrra loftslagi en nú er. Hverju reiddust goðin ...? Nú þegar jólin em að ganga í garð er kominn tími til að huga að tölvukaupum, fyrir sjálfan sig eða sem gjöf handa öðmm. Margar íslenskar tölvuverslanir hafa komið sér upp heimasíðu til að auka þjónustu við við- skiptavini. Meðal þeira stærri má nefna Einar J. Skúlason, sem hefur sína heimasíðu á slóðinni „http://www.ejs.is", Nýherji hefur síðu á Hver er á myndinni? Halldóra Gunnarsdóttir, Höfn, baö Austra aö birta nokkrar myndir sem varöveittar eru í dag á Skjalasafninu á Höfn. Fólkiö á myndunum átti sennilega heima á Hornafiröi hér áöurfyrr en safniÖ vantar nöfn á því. Þeir sem hugsanlega geta þekkt einhverja á myndunum eru vinsamlegast beönir aö hafa samband viö Halldóru Gunn- arsdóttur í síma 478-1711. „http://www.nyherji.is", Aco á „http://www.aco.is" og Apple Umboðið á „http://www.apple.is". Meðal annarra tölvu- sala má nefna Gagnabanka Islands („http://www.smart.is/gbi/"), Tölvukjör („http://www.itn.is/tolvukjor/") og Nett („http://www.nett.is/"). Ef þú vilt finna fleiri verslanir vil ég benda þér á að leita á heimasíðu Gulu Línunnar sem er að finna á slóðinni „http://www.gulalin- an.is". Sveit Herðis hf. sigur- vegari í Bikarkeppni BSA1997 Úrslitaleikurinn í Bikarkeppni Bridgesam- bands Austurlands var háður á Vopnafirði laugard. 29. nóv. 1997. Til úrslita kepptu sveit Landsbankans Vopnafirði og sveit Herðis hf. Fellabæ. Leiknum lauk með sigri Herðismanna, 113 gegn 86. Sigursveitina skipuðu: Pálmi Kristmannsson, Guttormur Kristmannsson, Stefán Kristmannsson, Bemhard N. Bogason og Hlynur Garðarsson. f sveit Landsbankans Vopnafirði voru: Ólafur Sigmarsson, Stefán Guðmundsson, Þórður Páls- son og Gauti Halldórsson. Stöðvarfirði l.des. 1997; Hafþór Guðmundsson. Beint innval hjá Hönnun og ráðgjöf Síðastliðið eitt og hálft ár hefur Póstur og sími boðið upp á svokall- aða samnetsvæðingu (ISDN). Fyrsta fyrirtækið á Austurlandi til að nýta sér þessa þjónustu er Hönnun og ráðgjöf hf. á Reyðarfirði, en við- skiptavinir geta nú náð símasam- bandi við fyrirtækið með beinu inn- vali. Til að byrja með verður þessi þjónusta aðeins á skrifstofu fyrirtæk- isins á Reyðarfirði, en ákveðið hefur verið að setja upp sams konar sím- stöð á skrifstofu Hönnunar á Egils- stöðum. Beint innval þýðir að hægt er að hringja beint í ákveðna aðila innan fyrirtækisins. Fram kemur hvaðan hringt er og möguleikar em á að fá enn frekari upplýsingar með númerabirtingunni. Til þess að geta nýtt sér samnetsvæðingu þarf að kaupa nýjar símstöðvar og taka upp svokölluð samnetsnúmer. Samnets- væðing bætir símaþjónustu fyrir- tækja og minnkar vinnu við sím- svörun á skiptiborði þar sem hægt er að ná inn beint. Hönnuit og ráögjöf á Reyöarfiröi erfyrstfyrirtœkja á Austurlandi til aÖ nýta sér sam- netsvœöingu. F.v. Gunnar Þór þjónustustjóri si'mans, Arni Ragnarsson tœknimaöur Pósts og síma ásamt Kára Óttarssyni og Jóhannesi Pálssyni hjá Hönnun og ráögjöf. Glókollur á flækingi í haust flæktist fugl er nefnist glókollur til landsins og gerði hann sig heimakominn hjá RARIK á Egilsstöðum. Þessi tegund er útbreidd í barrskógabelti Evrópu og það hefur bmgðið við að hann sjáist hér á landi, þó ekki sé það oft. Halldór Walter Stefánsson, fuglaáhugamaður, segir að reynt hafi verið að merkja fuglinn með merkjum sem passa á músarindil, en þau hafi verið of stór. Hann telur að glókollurinn sé þó mjög svipaður að stærð og músarindill, en lappimar séu ívið minni.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.