Austri


Austri - 04.12.1997, Qupperneq 3

Austri - 04.12.1997, Qupperneq 3
Egilsstöðum, 4. desember 1997. AUSTRI 3 / dagsins önn Jól á Suðurpólnum Ég er einn af þeim mönnum sem er ekki gefinn fyrir lífsháska. Satt að segja á ég bágt með að skilja menn sem una sér ekki hvfldar nema þeir hafi klifið lífshættu- leg fjöll, eða storkað örlögunum á einn eða annan hátt. Aðrir segja að þetta sé það sem hafi gert mannkyninu öllu kleift að sækja fram, lengra og hærra, og án slíkra ofurhuga á hvaða sviði sem er væri engin framþróun til. Ólafur Örn í þingflokki okkar framsóknarmanna er þingmaður sem hefur setið þetta kjörtímabil. Hann er fremur lágur vexti, hæglátur og dagfarsprúður og fer ekki mikið fyr- ir honum þegar hann situr með okkur á þingflokksfund- um. Eigi að síður vitum við hvert þrek býr í mannin- um, því fyrir nokkmm ámm gekk hann með syni sínum við þriðja mann yfir Grænlandsjökul, en yfir hann liggja ekki kúagötur. Ég hélt í einfeldni minni að þar hefði Ólafur Öm unnið afrek lífs síns og mundi nú þegar hann er fimmtugur láta sér nægja að rölta yfir Kjöl og til Borgarfjarðar eystri og niður á Víkur og til Loðmundar- fjarðar, eins og hann gerði í sumar. Ég varð því meira en lítið hissa þegar Ólafur kom til mín um daginn og sagðist vera á leið á Suðurpólinn, gangandi, og tók mig tali til þess að ganga frá nokkmm málum áður en hann færi í þessa för. Ég hlustaði á Ólaf með opinn munninn þegar hann skýrði stuttlega frá ferðinni. Þetta væm 1200 kflómetr- ar og þama væri yfirleitt stórhríð og fimbulfrost. Ég tjáði honum að mér þætti það vera nokkurt afrek að ganga frá Tómasarhaganum niður í þinghús, eins og ég geri stundum á morgnana, en það er um tuttugu mínútna gangur. Með vindinn í fangið En Ólafur er farinn, og fréttir berast okkur félögum hans af honum þar sem hann röltir áfram í tuttugu og fimm stiga frosti með átta vindstig í fangið, gegn um skaflana með sleða í eftirdragi á gönguskíðum sínum tuttugu kflómetra dag hvem, tjaldar á kvöldin í hríðinni og snæðir sínar þurrkuðu kaloríur. Þannig heldur þetta áfram allt til jóla ef ekkert óvænt kemur upp á. Þá á að borða hamborgarhrygg sem leynist á einum sleðanum sem þeir félagar hafa í eftirdragi. En svona er lífið, sumir fá lífsfyllingu með því að sigra vind og snjó og kanna ókunna stigu. Eins og ég sagði í upphafi hefur þessi árátta mannsins að sækja sí- fellt „hærra og lengra“ og sigrast á því ókunna skilað mannkyninu miklu. Við hinir hóglífari njótum ávaxt- anna sem viljastyrkur og harka landkönnuðanna, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu, færa okkur. Sumir fara út í geiminn, aðrir ganga á Evrest, eða eyða jólunum á Suðurpólnum, enn aðrir vinna vísindaafrek með hörku og viljastyrk og missa aldrei sjónar á tak- markinu. Ég er viss um að góðar hugsanir gera gagn, og ég sendi Ólafi Emi og félögum hans þær reglulega þar sem þeir em á göngunni og vona að þeir snúi heilir heim og við endurheimtum félaga okkar í þingflokkinn, hressan og reynslunni ríkari á nýju ári. Jón Kristjánsson. Spáð í blíðviðrið Ekkert lát er á blíðviðrinu, sem hefur í allt haust og það sem af er vetri leikið við landsmenn og hefur nóvember verið ein- staklega góður. Sums staðar heyrast þær raddir að títt nefndra gróðurhúsaáhrifa gæti nú í veðráttunni, en þegar gluggað er í veðurfar fyrr á öldinni kemur í ljós, hvað varðar Reykjavík, að á 5. og 6. áratugnum var veðurfar í nokkrum nóvembermánuð- um með svipuðum hætti og jafnvel hlýrra. Þessar upplýsingar fengust hjá Trausta Jónssyni veðurfræðingi á Veðurstofu Is- Blómstrandi stjúpmóðir í garði á Egils- stöðum. Myndin er tekin um 20 nóvem- ber. lands sem segir nýliðinn nóvember í hlýrra lagi en engan veginn þann hlý- asta sem komið hefur á öldinni. Hvað varðar Austurland liggja meðaltals- tölur ekki fyrir, þar sem meirihluti veðurathugana fer hér fram á sjálf- virkum veðurathugunarstöðvum, en þær hafa starfað svo stutt að ekki er hægt að gera samanburð. Hér eru þó enn starfandi nokkrir veðurathugun- armenn sem starfa samkvæmt gamla laginu og verður meðalhitastig í nóv- ember reiknað út þegar veðurdag- bækur hafa borist frá þeim. Náttúran fer sínar leiðir og skapar listaverk, eins og þennan sveppakrans á ösp sem búin hafa verið þau örlög að falla í valinn. Litla stúlkan á myndinni heitir María Lena og auðvitað fékk tíkin Tinna að vera með. AUGLÝSINGA- SÍMI AUSTRA 471-1984 Eg skal kveða við þig vei Umsjón: Arndís Þorvaldsdóttir Ágætu lesendur! Nýlega kom út vísna- og ljóða- safnið I fjórum línum og er það þriðja bókin sem kemur út í þess- um flokki. Ritstjóri, sem fyrr, er Auðun Bragi Sveinsson. Bókin hefur að geyma mikinn fjölda lausavísna og ljóða og er víða getið að hvaða tilefni var kveðið. Alls koma 212 höfundar við sögu frá ýmsum tíma en mikill hluti kveð- skaparins er frá þessari öld. Hér verður gripið nánast af handahófi niður í bókina sem hefur margt skemmtilegt að geyma. Mannlýsing eftir Ágúst Vigfús- son: Þó að drottinn þyki snjall, þá kom samt á daginn, að þegar hann gerði þennan karl, þá var hann ekki laginn. Deilur innan kirkjunnar eru ekki nýjar af nálinni. Valdimar Hólm Hallstað, sem lengi var búsettur á Húsavík, kvað í tilefni af trúmála- deilum kirkjunnar manna: Hart er nú barist um heilög vé; hempuliðið er statt í vanda. Það nagar að rótum hvert nýtilegt tré í nafni guðs sonar og heilags anda. Þegar Krafla gaus sumarið 1982 var Hákon Aðalsteinsson búsettur á Húsavík. Þótti honum sú aldraða gera sér ónæði: Kröflulœtin leiðast mér; landið tœtist niður. Þar við bœtist, að hér er enginn nœturfriður. Aðalsteinn Gíslason frá Kross- gerði á Berufjarðarströnd kveður um heimaslóðir: Meðan brotnar brim við sand að blómum skrýðist jörðin, alltaf þrái ég Austurland, einkum Berufjörðinn. Jón Sigurðsson bóndi í Skolla- gróf í Hrunamannahreppi hefur þetta að segja um tilgang lífsins: Tilgang lífsins tel ég þann að takast á um vandann, gleðja bœði guð og mann og glettast ögn við fjandann. Hallveig Guðjónsdóttir frá Dratthalastöðum kveður um hlut- skipti kvenna fyrr á tíð: Kvennaiðja áður var inni að prýða og bursta. I ellefu langar aldirnar urðu á karla að hlusta. Bróðir Hallveigar Einar H. Guð- jónsson segir: Þó að heimsins gott sé gjald og gullið auki framann, í lokin fúið ferðatjald flestir brjóta saman Stefán Jónsson, alþingismaður, orti í orðastað Jóns á Akri: Einatt drekk ég áfengt vín af því verð ég rakur. Blessuð sértu sveitin mín sérstaklega Akur. Egill Bjarnason kvað á þessa leið um annríki sitt og umstang: Ýmsu veldur annríkið oft á mínum högum. Eg er svona við og við við á flestum dögum. Meira verður ekki kveðið að sinni. Kveðja Aþ. Austfirsk skáld og önnur skáld - Bókavaka í Safnahúsinu Föstudaginn 5. des. (á morgun) kl. 20:30 verður efnt til Bókavöku í anddyri Héraðsskjalasafns Austfirð- inga, í boði Safnahússins á Egils- stöðum og Menningarmálaráðs Eg- ilsstaðabæjar. Þar munu koma fram austfirskir höfundar, auk lengra að kominna höfunda. Gestir kvöldsins verða Anna Valdimarsdóttir, sem les út ljóðabók sinni Ulfabros, Elín Ebba Gunnarsdóttir, sem les úr smá- sagnasafni sínu Sumar sögur en Elín Ebba hefur hlotið verðlaun Tómasar Guðmundssonar. Guðjón Sveinsson mun lesa úr skáldsögu sinni Sagan um Daníel og Hákon Aðalsteinsson mun flytja kafla úr ævisögu sinni, Það var rosalegt. Þá mun Páll Bergþórsson lesa úr bók sinni Vínlandsgátan. Sigrún Björgvinsdóttir hefur sent frá sér bamabókina, Eg er kölluð Día, og hún mun lesa kafla úr henni á Bókavökunni. Eins mun Vilhjálmur Hjálmarsson lesa kafla úr bókinni Dugga frönsk og framboðsfundir Að lokum verður lesið úr smá- sagnasafni Borgfirðingsins Gyrðis Elíassonar, Vatnafólkið og mun ná- frændi Gyrðis, Baldur Grétarsson gera það. Aðgangur að Bókavök- unni er ókeypis.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.