Austri


Austri - 17.12.1998, Qupperneq 7

Austri - 17.12.1998, Qupperneq 7
Egilsstöðum, 5. nóvember 1998 AUSTRI 7 og handavinna vönduð. Athygli vekur Feneyjaútsaumurinn í dúk- um í mörgum verslunum. Hann er heimsfrægur. Afgreiðslufólk er mjög lipurt og háttvíst og mjög vel talandi á ensku og þýsku, að ég heyrði. Sín á milli tala Feneyingar ítalska mállýsku, sem er sérkennileg þannig að samhljóðarnir eru nærri slípaðir burt úr orðunum. Mállýsk- an er vart til á bók og er það hlið- stætt við Luxemburg- málið, sem er blendingsmál, aðeins talað af íbúum og ekki til á bók. Feneyingar fylgjast vel hver með öðrum og geta jafnvel verið smáborgaralegir. Erlend kona gift- ist Feneyingi og bjó þar um skeið. Hún sagði frá því síðar að hvert sinn sem hún fór út á götu, fylgd- ust þrjár föðursystur og tvær ömmusystur manns hennar með klæðnaði hennar og gátu tilgreint eftir marga daga, hvernig hattur hennar var á lit í hvert sinn. Gripdeildir eru sjaldgæfar í borginni og tekið er afar hart á slíku. Feneyjum má líkja við sköpun, sem rís upp af hafinu á mótum strauma hafs og lands. Margvís- legir straumar mannlífs hafa um hana leikið frá því bygging hennar hófst við upphaf miðalda. þá lauk fornöld með falli Rómarveldis, hið heilaga rómverska ríki þýskrar þjóðar hófst á legg, austrómverska ríkið, ríki Öttómana, herhlaup Napóleonsstyrjalda, yfirráð Aust- urríkis og Italíu, að ógleymdum tveimur heimsstyrjöldum og möndulveldunum, allt hefur þetta geisað kringum borgina, en hún stendur ósnert og fögur, sem minnisvarði menningar, verktækni og mannlegra samskipta. Loftárás- ir voru ekki gerðar á hana í seinni heimsstyrjöldinni. Er vandséð hvernig ástatt væri nú í Feneyjum, ef slíkt æði hefði þangað náð. Feneyjar eru mjög lítil borg, minna en 10 ferkílómetrar að flat- armáli. Henni tilheyrir allstórt svæði á “fastalandinu”, þar er Feneyjaflugvöllur og borgin Nestre með stóru svæði að Fen- eyjalóni. Þarna er raunar svefn- borg Feneyinga, því þar búa um 180.000 manns, eða nærri þrisvar sinnum fleiri en í Feneyjum sjálf- um. Hvorug borgin getur án hinn- ar verið. Talið er að nærri 40.000 manns streymi daglega milli þeirra vinnu sinnar vegna. Mörg þúsund manns vinna við það eitt að flytja vörumagnið að borginni og umbúðir frá henni til eyðingar eða endurnotkunar. Flutningur til verslana, frágangur og uppstilling- ar taka sinn tíma og allt þarf að vera tilbúið, þegar ferðamanna- straumurinn flæðir yfir. En vör- urnar eru fallegar og yfirleitt vandaðar, þótt lélegt minjagripa- dót sjáist líka. Mikill áhugi er víða um lönd að bjarga borginni og stórar peninga- fúlgur eru lagðar fram árlega í því skyni. Sumir segja að Feneyingar séu svo vanir þessu, að þeir séu orðnir kærulausir um framtíðina, hugsi aðeins um líðandi stund, finnist umheimurinn hugsa aðeins um borgina, en álíti þá sjálfa einskis virði. I Bandaríkjunum er félag sem nefnist Save Venice, eða, “Björg- um Feneyjum.” Félagið leggur ár- lega fram mikið fé til viðhalds á mannvirkjum og listaverkum. Fé- lagarnir segja þó að þetta sé til einskis, ef borgin sjálf sekkur. Feneyingar verða því að horfast í augu við raunveruleikann og hætta að fljóta sofandi að feigðar- ósi, í orðsins fyllstu merkingu. Líklega þarf svipaðar aðgerðir og í Hollandi. Við íslendingarnir héldum aftur til Portorose kl. 4 síðdegis. Venju fremur hljótt var í bifreiðinni og því auðfundið, að fólkið hafði orðið fyrir ýmsum hughrifum. Mér fannst besta að hafa átt þessa stund í bíllausri borg, við að skoða þessi miklu mannanna verk í næði. Hinn 13. júlí héldum við heim- leiðis. Farið var með flugvél frá Feneyjaflugvelli, svo að leiðin þangað lá aftur um iðjagræna Pósléttuna. Við fórum í loftið um kl. níu, en komum til Keflavíkur um kl. eitt um nóttina, eða um tólf að íslenskum tíma. Á leið til Reykjavíkur gaf á að líta, hraun- hrjóstur Reykjanesskagans vafin þoku í hægri suðvestanátt. En bjart og fagurt var að líta yfir suð- urströnd íslands og til jökla, allt til Suðausturlands, þar sem Snæ- fell gnæfir bak við Vatnajökul. Umhugsunarefni voru næg að lokinni ferð. (%Áam . (//r/frdá/c/c///^ (/ÁÁ/Áy/Yf/á/a a///fiirsÆ/cfar á ný/a ári Mk Stólpi - Verndaður vinnustaður - Lyngási 12, Egilsstöðum (ásAitm < (if'Sj/u'áfftyiuri öf/ittn {(//eá(/e(//t<r/ó/(f oí//á/ssu’h/a/1 á /io/na/u/i á/H. .fiöfífiurn (jáfsfi(/)/(/( HRAÐFRYSTiHUS ESK|FJARÐAR HF Strandgata 39 - 735 Eskifjörður hkiun viðskiptavinum okkar og Austfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári, með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Súnbúðin Hafnarbraut 6 Neskaupstað Á r \ ösfta/n öf/a/n ifáani ffá,/fafi/*eJjini <h/ öd/H/n//a,s/f(/'<((//(//(/// {<//e/fi/e<//H//ó/a oy/fa/Hiœfc/an á fion/azu/i á/H. Fellahreppur Einhleypingi 1, Fellabæ sími 471-1341 J Suraarbæklingurinn 1999 er korainn M/F Norröna Ævintýrasigling Vikuáætlun Smyril Line 1999 SMYRIL- LINE Áfanga- staðir Viku- dagur Stað Koma artími Brottf. Maí Júní Júl Ágúst Sept. Áfanga- * staðir Viku- dagur Staðí Koma irtími Brottf. Sept. Hanstholm Laugard. 16.00 22.00 15 22 29 05 12 19 26 03 10 17 24 3l| 07 14 21 28 04 Hanstholm Laugard. 16.00 20.00 11 Þórshöfn Mánud. 06.00 08.30 17 24 31 07 14 21 28 05 12 19 26 02 09 16 23 30 06 Þórhöfn Mánud. 07.00 15.00 13 Leirvík Mánud. 22.00 22.30 17 24 31 07 14 21 28 05 12 19 26 02 09 16 23 30 06 Seyðisfjörður Þriðjud. 08.00 12.00 14 Bergen Þriðjud. 12.00 15.00 18 25 01 08 15 22 29 06 13 20 27 03 10 17 24 31 07 Þórhöfn Miðvikud. 06.00 08.30 15 Leirvfk Miðvikud. 01.30 02.00 19 26 02 09 16 23 30 07 14 21 28 04 11 18 25 01 08 Hanstholm Fimmtud. 16.00 - 16 Þórhöfn Miðvikud. 15.00 18.00 19 26 02 09 16 23 30 07 14 21 28 04 11 18 25 01 08 * Ath. Eftir 7. september verður ekki komi ð við í Be -gen Seyðisfjörður Fimmtud. 09.00 12.00 20 27 03 10 17 24 01 08 15 22 29 05 12 19 26 02 09 Eftir 8. september verður ekki komið við í leirvík Þórshöfn Föstud. 06.00 08.30 21 28 04 11 18 25 02 09 16 23 30 06 13 20 27 03 10 Ath. Litla timatatlan a einungis við um siðustu siglingarviku Norröna. Gleðileg jól og gott farsælt komandi ár Með von um samsiglingu ánægjulega ^AAUSTFAR Seyðisfirði sími 472 1111 - 472 1105 Norræna ferðaskrifstofan hf. Sími 562 6362, fax 552 9450 Laugarvegi 3 Reykjavík

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.