Austri - 17.12.1998, Blaðsíða 10
10
AUSTRI
Jólin 1998
Ranaskógur í Fljótsdal
Utarlega á Rananum, þar sem nefnist Kiðuhóll, og á sléttum „palli“ utan við hann meðfram Gilsárgili eru mörg og fögur reynitré. Kiðuhól er ókunnugum auðveldast að finna vegna þess,
að þar er mikill trjálundur af greni og lerki, sem Metúsalem Kjerúlf á Hrafnkelsstöðum gróðursetti til minningar um Pál bróður sinn (sjá jólablað Austra 1997). Nefnist hann Pálslundur og er
hentugt að hafa til staðgreiningar reynitrjánna. Um 100 til 200 m neðan við Pálslund standa í skóginum tvö stærstu reynitrén í skóginum, sem hér á eftir eru sýnd á myndum. Innar eru svo
a.m.k. fjögur reynitré allvæn, sem ókunnugum mun torvelt að finna. Hér birtist mynd af einu þeirra.
Við höfum til þessa fundið 21 reynitré í Ranaskógi, auk smáplantna. Sum þeirra eru meðal hinna mestu, sem finnast á Islandi.
Reynitrén í Ranaskógi eru ættfeður fjölmargra reynitrjáa, sem nú vaxa í görðum á Austurlandi og víðar á Islandi. Fyrir því er sú ástæða, að þar voru einkum eftir 1950 tínd reyniber fyrir
gróðrastöðina á Hallormsstað til ræktunar reyniviðar. En síðustu hálfa öld var kannski ennþá meira tínt af reyniberjum í garðinum á Hrafnkelsstöðum (sjá mynd).
/ hlíð vestan við svonefnda Engimýri í Ranaskógi, gegnt
Skjögrastöðum hinum megin Gilsár. Hœð 8,15 m og þver-
mál í brjósthœð 24,0 cm í mars 1998. 9.mars 1998.
Mikið tré við austurhorn Pálslundar. Ómœlt. 27.apríl 1996.
Trjágarðurinn ofan við gamla bœjarhúsið á Hrafnkelsstöðum í
Fljótsdal. Reynitrén þarna voru gróðursett hugsanlega 1916 eða
órlítið seinna. Sum voru sótt út í Ranaskóg, en önnur komu úr
gróðrastóðinni á Hallormsstað og voru vaxin af frcei frá Skafta-
felli í Oræfum. I nóv. 1997 var hœsta tréð 13,80 m og þvermál í
brjósthœð 35-46 cm. Hœsta reynitré á íslandi. 30.sept. 1997.
Fagurgráir bolir eins og af stóru reynitrjánum í Ranaskógi. Það stendur beint
niður af svonefndum Pálslundi. I nóvember 1997 varþað 9,65 m hátt og kross-
þvermál stofnanna í brjósthœð 28,9-23,0 og 28,8-28,5 cm. Þorvaldur S. Þor-
valdsson arkitekt og stjórnarmaður í Skógrœktarfélagi Islands virðir bolinn
fyrir sér. 30.ágúst 1995.
LOGMENN
AUSTURLANDIehf
(9's/tam «... tus^ f/rarír/t yant
t (j/eoifeymi jó /a ojj^/u/'.sœ/t/an á
/omanc/i ári mecf /»ö/t/t^ fijrir
ocO'S/tcftlcn
Kaupvangur 2, 700 Egilsstaðir logmenn@austurland.is www.austurland.is/logmenn Simi: 470-2200 Fax. 470-2201
Eitt af stœrstu reynitrjám í Ranaskógi. Beint inn og niður
af syðsta hjólhýsinu í skóginum. Hœð 9,95 m og þvermál í
brjósthœð 52,5 cm í nóv. 1997. 30.sept. 1997.
Egilsstaðakirkja og
Valþjófsstaðarprestakall
auglýsa
Hjónanámskeið
- Samskiptanámskeið
á jákvæðum nótum -
Leiðbeinandi er séra Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi
kirkjunnar á Norðurlandi.
Námskeiðið er ætlað hjónum og
fólki í sambúð.
Námskeiðið verður haldið í
Egilsstaðakirkju mánudaginn
4. janúar 1999, kl. 20:00 - 23:00.
Þátttaka tilkynnist í síðsta lagi
4. janúar 1999 til
séra Vigfús I. Ingvarssonar
í síma 471-1224 / 471-1366
og til séra Láru G. Oddsdóttur
^^^^^^suna471-2872^^^^^
íslenskt ...að sjálfsögðu