Austri


Austri - 17.12.1998, Síða 11

Austri - 17.12.1998, Síða 11
Jólin 1998 AUSTRI 11 Austfírðir Hér eru myndir af reynitrjám í tveimur görðum á Austfjörðum, sem vitað er með vissu, að voru sótt í skóga eða kjarrlendi í nágrenninu og hafa náð háum aldri. Þriðja tréð á Hraunum í Breiðdal gæti hugsanlega verið ættað úr Breiðdal. Skuggahlíð í Norðfirði, trjágarðurinn. Reynitrén voru gróðursett 1923. Þau voru sótt í kjarrlendi neðst í hlíðinni innan við bœinn, þar sem nú standa nokkrir sumarbústað- ir. Hœð trjánna hefur ekki verið mceld, en miðað við hœð mannsins á myndinni eru þau um 8 m há. Ennþá eru þau hraust, engin sýnileg merki um reyniátu. 12.ágást 1995. Hof í Álftafirði. 1 kirkjugarðinum stendur gamall reynivið- ur, að því er virðist tvístofnafrá rót. Hann er nú um 5 m hár. Var gróðursettur 1907 og sóttur í skóginn í Hofsdal. Hann varfluttur þaðan á klakk (= á hestum, skýring fyrir unga les- endur), svo að hann hlýtur að hafa verið nokkuð stór. Nú eru 11 ár síðan ég kom að Hofi og tók myndina, en þá var reynirinn hraustur að sjá. Hvað sem því líður, þá er þetta eitt af elstu gróðursettu reynitrjám á Austurlandi. Reyniátan hefur ekki hrjáð hann. 18.júlí 1987. Hraun í BreiðdaL MilU Ásunnarstaða og Innri-Kleifar í Suðurdal stóð bœrinn Hóll (Dísastaðahóll), sem nú er í eyði Nú sést aðeins móta fynr túninu og liœgra megin við þjóðveg nr. 1, þegar ekið er út dalinn, stendur ferhyrndur steinsteyptur stöpull Á honum stóð vindraf- stöðin á Hólsbtenum. Ef vegfarandi gáir vel út og upp í hlíðina þama fyrir ofan, glittir í stakt tré þarna í naktri hlíðinni. Þetta reynist vera margstofna reyniviður, sem stendur undir hlöðnum steinvegg. Annar steinveggur vísar niður í rétthorn frá hinum. Þetta eru mannvist- arleyfar. Stutt saga þeirrar mannvistar er írastagreininni hér við liliðina. Hlaðni steinveggurinn sem tréð stendur undir, var undirstaða hlöðunnar. Fyrir neðan hann gerði Sigurrós jurta- og blómagarð, og hefur steinhleðslan íforgrunni myndarinnar afmarkað vesturkant- inn. Ljóst er, að reynirinn er gróðursettur eftir 1930. Enginn veit hvenœr. Guðjón Sveinsson á Breiðdalsvík telur hugsanlegt, að Sigur- rós hafifengið “afleggjara“ af reyniviði í Höskuldstaðaseli, sem gróðursettur var þar um síðustu aldamót. Sá gœti hafa verið sóttur í kjarr- lendi innan við Þorgrímsstaði. Þar hefur Guðjón fundið villtan reynivið ísvonefndum FlataSkógi. Einstœðingur á vel við þetta merkilega reynitré, sem stendur eldhresstþarna íauðninni og bregður sér hvergú 3. sept. 1996. Einsetukonan á Hraunum Um 1930 reisti einhleyp kona, Sigurrós I. Gísladóttir (1875-1965), lítinn kofa á svonefndum Kúahjalla, sem liggur um 200 m út og upp frá túninu á Dísastöðum. Hún kallaði kofann að Hraunum. Við hliðina á kofanum var heyhlaða og geymsla. Blóma- og jurtgarð gerði hún neðan við hlöðuna. „Hún kom sér vel við nábúana á Dísastöðum og Hóli, hverjir sem þar voru, og naut þess, að alltaf var séð til með henni þaðan og víðar, einkum síðustu árin,“ segir í „Sveitum og jörðum í Múlaþingi II“, bls 327. Séra Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur á Valþjófsstað Jólatréð Mig langar að segja ykkur sögu af jólatré. Þetta jólatré er 50 ára gam- alt. Það spratt ekki upp af litlu frækorni úti í mörkinni og er ekki margra metra hátt. Greinar þess hafa ekki breiðst út mót sólinni og verið fuglum himins skjól og hvíld- arstaður. Mannfólkið hefur ekki haft tækifæri til þess að virða það fyrir sér úti í skóginum og dást að fegurð þess. Nei, þetta jólatré varð til í litlu eldhúsi, undir súð, vest- ur á fjörðum. Efniviðurinn í jólatréð var spýta, sem notuð var í bol- inn og önnur í pall eða stétt trésins, niðurrakinn hampur, vír og fatalitur. Hampurinn var klipptur niður og lagður á milli tveggja vírbúta og þeim snúið, þar til hampurinn sat vel fastur á milli víranna. Það með voru greinar trés- ins komnar og að sjálfsögðu voru þær mislangar. Inn af eldhúsinu var svefnher- bergi íbúðarinnar og þar svaf lítill stelpuhnokki. Svefninn var laus því hún hafði orðið þess vör að eitthvað mikið stóð til hjá foreldrunum og hún vildi að sjálfsögðu fylgjast með, en hún var of lítil og plássið í eld- húsinu var líka of lítið, til þess að hún gæti orðið þátttakandi í því sem þarna átti að fara fram. En nú stóðst sú stutta ekki lengur mátið. Hún skreiddist fram úr rúm- inu og læddist fram að dyrum og kíkti fram í eldhús. Þar stóðu for- eldrar hennar við eldavélina og voru að elda. Eða svo sýndist. Þau voru að fiska eitt- hvað langt og mjótt upp úr stóra, stóra pott- inum. Og lyktin var skrítin. Sú stutta fitjaði upp á nefið. Hvað skyldum við fá að borða? Er nóttin búin? Telpan gerði vart við sig við lítinn fögnuð foreldranna. Þau voru allt annað að hugsa og gera og töldu sig þurfa að hafa góðan vinnufrið. Telpan var því vinsamlegast beðin að koma sér aftur í rúmið, en hurðin fram í eldhús mátti standa opin og því gat hún heyrt á tal foreldranna, þangað til Óli Lokbrá kom öðru sinni að rúmi hennar og hreif hana með sér inn í draumalandið. En í eldhúsinu stóðu foreldrarnir við eldavélina, yfir stórum potti, þeim stærsta á heimilinu. I pottin- um var grænn vökvi og í hann voru greinarnar settar og allt gert sam- kvæmt leiðbeiningum á umbúðum pakkans, en þarna var sem sagt grænn fatalitur. A réttu augnabliki voru greinarnar fiskaðar upp úr pottinum og þær hengdar til þerris frammi á loftinu. Nú var verkefni kvöldsins lokið, enda komið langt fram á nótt og vinnudagur að morgni. Það var kominn morgunn. Telp- an lá vakandi í rúminu sínu. Hún heyrði í pabba og mömmu frammi í eldhúsi, en allt í einu heyrði hún óp í mömmu sinni. Telpan hrökk við, hvað hafði komið fyrir? „Ó, nei, nei, þær eru bláar!!!” Telpan heyrði pabba sinn flýta sér fram á loftið og nú flýtti hún sér líka fram til að sjá hvað væri blátt þarna frammi. Og viti menn, greinarnar sem áttu að fara á jólatréð og áttu að vera fagur- grænar, voru bláar. Mamman var gráti nær, en pabbinn reyndi að hugga hana og sagði að þær væru nú enn þá blautar, þetta væri ekki að marka enn. En það reyndist nú með þennan lit eins og litinn sem Anna í Grænuhlíð notaði í hárið á sér og átti að gefa kastaníubrúnan lit, en gerði hárið á henni grænt á litinn; liturinn sem átti að verða fagur- grænn, varð það aldrei, heldur fengu greinarnar dökkgrænan lit með sterkri blárri slikju. En úr þessu var ekkert hægt að gera. Það var kominn Þorláks- messa. Þegar greinarnar voru orðnar þurrar, var þeim stungið í stofn trésins sem búið var að mála grænan eins og pallinn undir trénu. Og tréð var fallegt. Greinarnar voru þéttar og það var fallegt í lag- inu. A aðfangadag var nýja jólatréð skreytt. A það var sett ljósasería sem pabbinn hafði búið til. Perurn- ar voru mislitar og höfðu verið litaðar með lakki - gular, rauðar, grænar, bláar, hvítar. A trénu voru líka litlir jólapokar og rauðir jóla- sveinar, sem mamma og pabbi höfðu búið til. Og augun í litlu telp- unni urðu stór þegar kveikt var á ljósunum og jólatréð stóð þarna á borðinu í allri sinni dýrð - svona nokkuð hafði hún aldrei séð. Að jólum loknum var skrautið tekið af trénu, greinar þess lagðar upp með stofninum og það pakkað inn og sett í geymslu til næstu jóla ásamt jólaskrautinu. Þetta jólatré hefur síðan þá verið tekið fram fyrir hver jól, umbúðirn- ar teknar utan af því, greinarnar lagðar niður og strokið um þær og áreiðanlega talað við þær í hljóði á meðan. Alltaf hefur tréð fengið heiðursstað í stofunni - staðinn þar sem það blasir við öllum sem inn koma - þarna sem það býður alla velkomna í ljós og yl jólanna. Jólaskrautið á trénu breyttist í ár- anna rás, eftir þvf sem efni og aðstæður leyfðu og úrval verslan- anna óx. Af fyrstu ljósaseríunni, heimagerðu, tók við ljósasería með mislitum perulaga perum - sú var keypt í búð. Næst kom kertasería, sem hafði þann eiginleika að í kert- unum ólgaði mislitur vökvi þegar perumar hitnuðu. Slík sería er enn notuð á tréð. Heimagerðir jóla- sveinar og jólapokar viku fyrir jólakúlum og öðru skrauti og yfir allt var svo lagt fínlegt englahár, sem bætti á dulúð trésins. Lengst af hefur jólatréð staðið á hvítu bómull- arbeði og þar verið útbúið jóla- sveinaland, þar sem rauðir pípu- hreinsarajólasveinar koma til byggða með pokaskjatta sína á bak- inu. Og stundum verður þeim hált á spegilhálli bæjartjörninni. Þetta litla jólatré sem ekki spratt upp af frækorni úti í stórum skógi varð uppspretta dýrmætra minninga. Minninga um ást og hlýju yndis- legra foreldra, þar sem ætíð var skjól og friður. Minninga um jól í faðmi fjölskyldunnar. Minninga um bernskujólin. Minninga um jól full- orðinsáranna. Slíkar minningar eru afar dýr- mætar. Þær eru okkur mönnunum jafn dýrmætar og stórt og fagurt tré í skógi er mikilvægt fuglum himins- ins.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.