Austri


Austri - 17.12.1998, Side 12

Austri - 17.12.1998, Side 12
12 AUSTRI Jólin 1998 Papeyj arþáttur Um kirkjuna og gullið í Papey Heimildir herma að í Papey hafi kirkja staðið frá ómuna trð. í íslend- ingabók Ara fróða er sagt frá veru Papa fyrir komu norðrænna manna til landsins. Papamir voru kristnir menn frá Irlandi, sem höfðu sig á brott þeg- ar Norðmenn fóru að byggja ísland, því þeir vildu ekki vera innan um heiðna menn. Ömefni í Papey sem minna á vem hinna írsku munka em til dæmis, írskuhólamir og Papatættur. Nafn Papeyjar tengist þvr óneitanlega frá- sögninni af fyrstu íbúum Islands, meðan annað er ekki sannað. Það er því líklegt að upp undir Hellisbjargi í lítilli torfkirkju hafi Guð verið tilbeð- inn og lofsunginn af hinum írsku munkum, löngu fyrir Kristnitöku á Alþingi árið 1000. í Papey stendur elsta og minnsta timburkirkja á ís- landi. Hún er 16 fermetrar á stærð og að stofni til frá árinu 1807, byggð á hlöðnum gmnni inni í litlum heima- grafreit, á svonefndum Kirkjuhól norðaustan við bæinn Björg. Skammt þar frá stendur tígulegur hóll sem Ein- búi er nefndur og er kirkja huldufólks- ins í Papey. Þangað hefur huldufólkið sést mæta prúðbúið til helgiathafna frá byggð sinni í Kastalanum, sem er svipmikil klettaborg vestan til á eynni. Þessir tveir átrúnaðarstaðir hafa í ár- anna rás notið sérstakrar virðingar og friðhelgi heimilisfólksins í Papey. Saga Papeyjarkirkju er hulin ævin- týraljóma, eins og reyndar öll saga Papeyjar. Gamlar sagnir hafa varð- veist milli ábúenda allt fram á 20. öld, þess efnis að gull sé grafið í hól ein- um úti í Papey. Um aldamótin 1900 urðu eigendaskipti að eynni. Það ár keyptu hjónin Gísli Þorvarðarson og Margrét Gunnarsdóttir Papey af Sig- ríði Bjamadóttur, ekkju Eiríks Jóns- sonar frá Hlíð í Lóni, en þau höfðu búið þar í um þijú ár. Sagan um gullið fylgdi til nýrra ábúenda og jafnframt sagt að það mætti aldrei hrófla við undirstöðum kirkjunnar, því að það boðaði ekki gott. Gullhóllinn var tal- inn vera hóllinn þar sem kirkjan stendur og hefur verið nefndur Kirkjuhóll frá fyrri tíð. Undir altari kirkjunnar er sögð vera grjóthleðsla sem myndar hólf og yfir það lögð all stór steinhella, þar undir á samkvæmt munnmælasögnum að vera falinn auður tveggja ríkra bænda sem vom feðgar og bjuggu í Papey frá árinu 1723 - 1799. Ætt þessara feðga bjó í Papey allt fram til ársins 1882, eða alls í 159 ár. Ef hugmyndarfluginu er gefinn laus taumur, má ætla að hinn helgi Kirkjuhóll, þar sem kirkja hefur staðið frá ómunatíð hafi verið kjörinn staður til greftrunar á auðæfum sem álög fylgdu. I einangrun eyjalífsins hafa hinir helgu staðir og trúin á Guð og tilbeiðsla til hans, átt sterka strengi í bijóstum fólksins sem þar bjó. kirkj- an og Kirkjuhóllinn með litla heima- grafreitnum í kring, hefur því verið heilagt tákn kristinnar trúar í Papey, þess vegna hefur ekki verið hróflað við innsigli auðæfanna undir altari kirkjunnar. Til þess að gera grein fyrir tilurð kirkjunnar og sögnum þeim sem henni fylgja, verður nú greint frá hin- um auðugu feðgum sem þar koma við sögu. Maður er nefndur Jón Jónsson, ættaður af Suðurnesjum titlaður monsjör, sem ekki var algengur titill um bændur á þeim tíma. Hann fékk ábúð í Papey árið 1723. Kona hans er talin hafa verið Sesselja Pálsdóttir prests í Goðdölum Sveinssonar. Þau eignuðust ekki böm og geta heimildir þess að hún hafi sturlast fljótlega eftir giftinguna. Sesselja andaðist árið 1736. Jón Jónsson var talinn vel efn- aður mikilsmetinn maður, áður en hann fékk ábúð í Papey. Hann hafði haft til umráða hálft Þykkvabæjar- klaustur og þar á eftir hálft Kirkjubæj- arklausturs umboð. Jafnframt ábúð- inni í Papey fékk hann umboð kóngs- jarða í Múlasýslum. Ríkidæmi hans í Papey þótti svo með ólíkindum að hann er talinn eiga auðbuxur sem í al- þýðutrú hafa verið nefndar, Finnabux- ur eða Skollabuxur. Síðar er auðurinn þótti haldast við í Papey af hans af- komendum, sem þar bjuggu var farið að nefna auðbuxur þessar Papeyjar- buxur. Son átti Jón utan hjónabands með konu að nafni Valgerður Jóns- dóttir og var hann skírður nafni eftir hollenskum skipstjóra og látinn heita Mensaldur Raben. Með búskap sínum í eynni vann Jón sér inn aukanefnið “ríki”. Endalok Jóns Jónssonar ríka em talin vera þau að hann hafi orðið bráðkvaddur úti í Papey. Þegar þar er komið sögu árið 1762, tók Mensandur Raben við ábúð eftir föður sinn og er þá 26 ára gamall. Mensaldur Raben kunni vel að ávaxta og margfalda þann auð sem hann fékk eftir föður sinn. Auðsöfnun hans úti í Papey var slík að orðfleygt var um allt land. Var hann og við það kenndur og kallaður Mensaldur hinn auðgi. A efri árum sínum fékk hann Papey keypta af krúnunni fyrir rúmlega 1000 ríkisdali. Hann eignaðist fleiri jarðir eða part úr þeim, til dæmis átti hann hálfa jörðina Þverhamar í Breiðdal, þá er talið að hann hafi átt Bragðavelli í Hamars- firði og haft stórt bú á Melrakkanesi í Álftafirði. Eftirmæli um Mensaldur Raben herma að hann hafi þótt ein- kennilegur í háttum og einrænn og því um kennt að hann skyldi ekki kvong- ast og eignast erfíngja. Ekki ber sögn- um saman um það hvernig dauða hans bar að árið 1799. Almennt mun þó hafa verið álitið að hann hafi verið að huga að kindum uppi á háu bjargi austan til á eynni sem Eldriði heitir og að snögg vindkviða hafi feykt honum út af bjargbrúninni og í sjó fram. Mensaldur Raben var 63 ára gam- all þegar þessi óvænti atburður mun hafa átt sér stað með svo skyndilegum hætti. Álikta má aldursins vegna að hann hafi átt eftir að koma ýmsum áformum sínum í verk úti í Papey sem ættingjum hans hafi jafnvel verið kunnugt um. Mætti þar til nefna byggingu kirkju á Kirkjuhólnum. En nú bregður svo einkennilega við að Papeyjarauðurinn telur ekki jafn mik- ið og álitið hafði verið. Eignimar sem fram komu vom áttfalt kaupverð Papeyjar eða 8000 ríkisdalir. Þetta þótti með ólíkindum lítið, vegna orðrómsins um hinn mikla auð hans. Var þá gripið til alþýðlegrar skýr- ingar sem kallað var. Ein var sú að hann hefði falið fé í jörðu og mynd- uðust af því sagnir síðar um haugelda í Papey, önnur skýring var að mikið af bankaseðlum hans hafi verið fúnir, er til skyldi taka. Ekki er það nú mjög trúverðug skýring um jafn mikinn fél- sýslumann og raun ber vitni. en Rabensauðurinn fór ekki úr Papey. Hann bar undir Kristínu Jakobsdóttur systurdóttur hans. Hún var dóttir Olafar Steingrímsdóttur sem var hálf- systir Mensaldur Raben. ( sammæðra ). Kristín var gift Jóni Ámasyni og em þau skráðir ábúendur Papeyjar árið 1801. Sumarið 1807 var kirkja byggð í Papey og stóð fyrir þeirri smíð lærður trésmiður Þorsteinn Melstein að nafni. Það hefur því komið í hlut Kristínar systurdóttur Mensaldurs og manns hennar að velja stað undir kirkjuna sem staðið hefur þar síðastliðin 191 ár, á samt óhaggaða gmnninum. Um aldamótin síðústu, þegar Gísli Þorvarðarson kaupir Papey er kirkjan sögð mjög hrörleg og að hún þarfnist endurbóta. Árið 1904 hét hann á kirkjuna, að ef vel ræki á fjömr, myndi hann láta endurbyggja hana. Það áheit gekk eftir, því mikið af góð- um rekatrjám barst að landi í Papey. Tveir trésmiðir frá Djúpavogi voru kallaðir til að standa fyrir kirkjusmíð- inni, en það voru þeir Lúðvík Jónsson og Magnús Jónsson. Notuðu þeir hliðarnar úr gömlu kirkjunni og einnig prédikunarstólinn. Höfðu þeir seinna orð á því, hve kirkjan væri vel smíðuð og auðsé að hún væri eftir lærðan smið. Þeir félagar, Lúðvík og Magnús fóm þess á leit við Gísla að þeir fengju að spretta upp gólffjölum undir altari kirkjunnar og jafnframt velta við steinhellu, sem um er getið í sögnum. Með því ætluðu þeir á fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll, hvort gull væri falið undir altari kirkjunnar. Þessari beiði hafnaði Gísli bóndi umsvifalaust. Hann bað þá félaga að láta kjurt liggja, með þeim orðum, að ekki yrði hróflað við þessu svo lengi sem hann réði ríkjum í Papey. Lúðvík Jónsson mun hafa maldað í móinn, en án árangurs. Ástæða þess var sú, að hann ásamt fjórum öðrum mönnum frá Djúpavogi hafði í nóvember árið 1903 farið út í Papey á stóram árabát, til að huga að heimilisfólkinu. Tilefn- ið var að logi hafði sést frá Papey þijú kvöld í röð frá bæjum í suður Álfta- firði, Hamri, og Djúpavogi. Virtist logi þessi blossa upp við og við, en hjaðna alveg á milli. Urðu menn ótta- slegnir á Djúpavog og töldu víst, að Gísli bóndi óskaði eftir hjálp úr landi, en hann var fáliðaður og ýfingur í sjó. Ekki varð heimilisfólkið í Papey lít- ið hissa, þegar það sá til bátsins koma úr landi, í hálfgerðum bamingi og því meir hissa , þegar það vissi erindið. I eynni hafði enginn orðið logans var og allir við góða heilsu. Slíkur atburð- ur styrkti fólk í trúnni um að haugeld- ar loguðu í Papey. í júlímánuði árið 1991 var hafist handa við endurbyggingu Papeyjar- kirkju í annað sinn. Kirkjan var farin að láta mikið á sjá, bæði utan og inn- an. Fúi var kominn í burðargrind og hætta orðin á því að hún fyki af gmnni í slæmu veðri. Fmmkvæði að endurbyggingunni hafði áhugafólk á Djúpavogi og Safnastofnun Austur- lands. Hjörleifur Stefánsson, arkitekt hjá Þjóðminjasaftii íslands kom austur í Papey og gerði ítarlega úttekt á kirkj- unni. Eftir hans teikningum og verk- lýsingu hófst endurbyggingin undir verkstjórn Halldórs Sigurðssonar, lista- og kirkjusmiðs frá Miðhúsum í Eiðaþinghá. Síðar var unnið undir stjóm Magn- úsar Skúlasonar, arkitekts hjá Þjóð- minjasafni og Gunnars Bjamasonar, húsasmíðameistara í Reykjavík. Einnig var kirkjugarðurinn endur- byggður með nýjum hleðslum og grindverki að framanverðu, ásamt sáluhliði. Því verki stjórnaði Guð- mundur Rafn Sigurðsson hjá Biskups- stofu. Margir sjóðir og velunnarar kirkj- unnar lögðu þessu menningarmáli lið, með vinnu endurgjaldslaust og fjár- framlögum. Við þessar framkvæmdir á kirkj- unni og umhverfi hennar var í heiðri höfð sú skoðun Gísla bónda í Papey og bama hans, að ekki mætti hrófla við undirstöðum kirkjunnar, því það boðaði ekki gott. Heldur því kirkjan og saga hennar um falinn fjársjóð undir altarinu sínum dulbúna sjarma um ókomin ár. Papeyjarkirkja var síðan endurvígð við hátíðlega athöfn sunnudaginn 4. ágúst 1996 af Biskupnum yfir íslandi, herra Ólafi Skúlasyni. Séra Sjöfn Jó- hannesdóttir, sóknarprestur á Djúpa- vogi þjónaði fyrir altari. Aðrir sem tóku þátt í vígsluathöfninni vom: séra Davíð Baldursson, prófastur í Aust- fjarðaprófastdæmi, séra Gunnlaugur Stefánsson Heydölum, séra Carlos Ferres Kolfreyjustað og séra Sigurður Kr. Sigurðsson Höfn. Veðurguðirnir skörtuðu sínu feg- ursta á meðan að vígsluathöfnin fór fram. Islenski fáninn blakti við hún á Kirkjuhólnum. Þetta er eftirminnileg- ur hátíðardagur í sögu Papeyjar og kirkjunnar. Þetta var í annað skipti sem Bisup yfir íslandi sækir Papey heim. Síðla sumars árið 1940 kom herra Sigurgeir Sigurðsson, biskup í vísitasíuferð út í Papey og messaði þar. Papey og Papeyjarkirkju ætti með sanni að hlotnast sá sómi að skipa veglegan sess á 1000 ára afmæli Kristnitökunnar á Islandi og vera merkur minnisvarði um veru kristn- innar manna, Papa, hér á landi fyrir landnámstíð. Einnig sem verðugt tákn um upphaf kirkju- og kristnisögu ís- lands. Már Karlsson Náttúran skartaði sínu fegursta og veðurguðirnir léku við menn, þegar Papeyjarkirkja var endurvígð 4. ágúst 1996. Mynd/ Helgi Bjarnason. Frá endurvígslu Papeyjarkirkju 1996. F.v. sr. Gunnlaugur Stefánsson, sr. Sjöfn Jóhannesdóttirm sr, Sigurður Kr. Sigurðarson, hr. Olafur Skúlason, biskup, sr. Carlos Ferres og sr. Davíð Baldursson, prófastur. Mynd/Helgi Bjarnason.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.