Austri


Austri - 17.12.1998, Side 14

Austri - 17.12.1998, Side 14
14 AUSTRI Jólin 1998 „Þegar hallar undan öðrum fætinum má spyrna við með hinum“ - Heimsókn í Svartaskóg í byrjun desember lagði ég leið mína í Hlíðina til þess að hitta hjón- in Helgu Jónsdóttur og Benedikt Hrafnkelsson sem reka þar Hótel Svartaskóg. Það var jólalegt að líta heim að Svartaskógi - það vantaði bara snjóinn og svolítið jólalegra veður. Húsið var búið að skreyta innan sem utan og fyrsta jólahlað- borðið hafði verið kvöldið áður. Þau hjónin eru búin að prófa ýmis konar rekstur í sinni búskap- artíð til þess að geta lifað og búið á sinni jörð og nú í haust fengu þau viðurkenningu á bændahátíð fyrir áræðni og kjark í sinni viðleitni til þess að skapa sér atvinnu í sveit- inni. Það eru eflaust ófáir í sveitum landsins í þeirra sporum - að vilja búa í sinni sveit, en þurfa að finna sjálfir út úr því að búa sér til af- komumöguleika. Þú ert fæddur og uppalinn í Hlíðinni Benedikt og þekkir hana væntanlega vel. Er þetta sama sveit og þú ólst upp í? Það hefur mikið breyst. Þegar flest fólk var hér í sveitinni voru hér um 166 manns, en núna eru hér liðlega 80 íbúar. Þá var hér líka mikið af ungu fólki. Það má segja að við séum nýkomin inn á tækniöld því rafmagn kom hér ekki fyrr en 1971, en á sumum bæjum var búið að raflýsa fyrr og notuðust menn þá við ljósamótor. Heima var raflýst 1966. Þá voru samgöngur lé- legar, vegir niðurgrafnir og ófærir strax á haustin. Ég man eftir því þegar ég var krakki svona í kring- um 1960 að það var farið í kaupstað á haustin á vörubíl og keypt til heimilisins. Þetta var stórt heimili og það þurfti að kaupa mikið magn. Síðan var jafnvel ekkert farið aftur fyrr en á vorin. Þá var alltaf farið á Reyðarfjörð í innkaupaferðir. Svona ferð tók heilan dag. Það voru póstferðir einu sinni í viku og hægt að fá einhvern smávarning með þeim. Bara það að fara í Egilsstaði var meiriháttar mál og reiknað með að dagurinn færi í það. Það voru víða hlið á veginum sem tímafrekt var að opna, sérstaklega ef menn voru einir á ferð, en þannig hagaði víða til að girt var ofan í Jökulsá. Nú skjótast menn í Egilsstaði helst á hverjum degi og jafnvel oft á dag og þykir ekkert mál. Það var mjög mikið félagslíf - alltaf eitthvað um að vera. Menn fóru á milli bæja á skíðum yfir veturinn og hópuðust saman á bæjunum. Það var spilað og sungið og menn bjuggu til sín skemmtiatriði sjálfir. Það kom ekki sjálfvirkur sími fyrr en 1984. Sveitasíminn gat haft sína kosti. Þetta var aðal fréttamiðillinn, það var hægt að halda fundi í símanum og það var mjög algengt að menn tefldu í gegnum síma. Nú eru sam- göngurnar svo miklu betri, en fé- lagslífið að sama skapi minna og allt öðru vísi en það var. Þú ert úr óvenju stórum systk- inahópi. Var ekki sérstakt að al- ast upp á svona stóru heimili? Við erum 16 systkinin og fædd á tímabilinu 1936 til 1959. Ekki minnist ég þess að manni hafi fund- ist þetta neitt sérstakt að vera úr svona stórum systkinahópi. Stund- um var enn fjölmennara því hér var farskóli og var hann hluta úr vetrin- um heima og þá bættust við 10-15 börn. Húsið var stórt og ekki held ég að manni hafi fundist þröngt, en það gekk oft mikið á og var ógur- legur hávaði stundum aðallega í stelpunum. Það var farskóli hér í sveitinni langt fram á sjöunda ára- tuginn og ég gekk í farskóla megn- ið af minni skólagöngu. Farskólinn var búinn að vera á flestum bæjum í sveitinni. Tvö síðustu árin sem ég var í skóla var kennt í gamla bæn- um á Hrafnabjörgum. En þú Helga, hvaðan kemur þú? Ég er úr Mjóafirðinum. Þar er ég fædd og uppalin og á ættir að rekja úr Mjóafirði og af Héraði. Mjói- fjörður var ekki síður afskekkt sveit en Hlíðin. Þaðan voru ferðir einu sinni í viku með póstbátnum á Norðfjörð. Vegur upp á Hérað kom en um 1968 og það var varla vegur heldur vísir að vegi, enda um erf- iðan fjallgarð að fara. Það var mik- ið um að vera á síldarárunum 1962 - 1967. Þá var byggt síldarplan og stóðu menn frá Akranesi að því. Þetta voru 5 eða 6 sumur sem síldin hleypti miklu lífi í tilveruna hjá ungum og gömlum. Það var mikil vinna í kringum síldina, en skemmtileg og allir unnu á planinu yfir sumartímann sem það gátu ásamt aðkomufólki. Þegar ég var í skóla voru 8-12 krakkar í skóla í Mjóafirði. Við vor- um öll í sömu stofunni frá 7 ára og upp úr og Vilhjálmur Hjálmarsson var kennarinn okkar og kenndi okk- ur meðal annar gömlu dansana. Vil- hjálmur var orðinn alþingismaður á þessum árum og þegar hann þurfti að sinna þingstörfum setti hann okkur fyrir heimavinnu. Síðan fór ég í Eiða eins og unglingar svo víða á Austurlandi gerðu í þá daga. Ég hef grun um að þið séuð búin að prófa ýmislegt í ykkar búskapartíð og langar að biðja ykkur að segja mér frá því í stór- um dráttum. Helga: Við bjuggum fyrst á Eg- ilsstöðum í 2 ár og síðan í Fellabæ í 6 ár. Þá fluttum við í Hallgeirsstaði og höfum búið hér í 18 ár. Benedikt: Þegar við fluttum í Hallgeirsstaði byrjuðum við með sauðfjárbú þetta 150 - 160 fjár, það var ekki meiri kvóti. Svo fór mað- ur að leita að annarri hliðarvinnu og til að byrja með voru það refir. Við byrjuðum með þá 1982 þegar ref- aræktin stóð sem best og keyptum lífdýrin háu verði, en fengum svo alla niðursveifluna. Þegar við byrj- uðum var refaskinnið á við rúmlega tvö lambsverð, en þegar við hætt- um hafði dæmið snúist rækilega við og þurfti þrjú skinn í eitt lambs- verð. 1987 hættum við með refi og ég keypti steypustöð sem ég rek enn í dag og þjónar Héraði og fjörðum. Hellusteypu rak ég einnig á árunum 1988 til 1994 og nýtti refahúsið fyrir hana og gekk hún vel. Árið 1994 byrjuðum við að byggja Hótel Svartaskóg og seld- um þá hellusteypuna. Það er mottó- ið hjá mér að vera ekki meira en 10 ár í sömu atvinnugrein því nýir vendir sópa best. Hvernig datt ykkur í hug að fara út í hótelrekstur? Helga: Ég hef verið með Brúar- ás á sumrin frá því 1992 og út frá því þróaðist þessi hugmynd og þeg- ar auglýstar voru til sölu vinnubúð- ir sem voru á Egilsstaðaflugvelli keyptum við þær og fluttum hingað norður og hófumst handa. Hvernig gekk byggingin fyrir sig? Benedikt: Björn Kristleifsson hannaði útlínur hússins, byggður var 100 fermetra salur sem tengir saman svefnálmur bar og eldhús. Þetta var heilmikil vinna því við byrjuðum hér eins og frummenn þar sem hvorki var vatn eða raf- magn á staðnum. Rafmagnið lögð- um við frá heimilisrafstöð sem er í eins kílómetra fjarlægð. Einnig þurfti að brúa Fossá sem er hér á milli þjóðvegar og Hótels Svarta- skógar. Við opnuðum síðan staðinn 24. ágúst 1996. Og er fullbókað hjá ykkur allt sumarið? Helga: Það má segja það. Gisti- aðstaðan er allt of lítil yfir vissa tíma. Ferðamannatíminn er alltaf að lengjast. Það má segja að hann hafi náð frá miðjum maí og fram í miðj- an september nú í ár. Júní var mjög fínn mánuður, en það er ekki langt síðan að ekkert var að gera fyrir 20. júní. Benedikt: Það hafa margir furð- að sig á því að við skyldum byggja þetta upp svona langt úti í sveit, en það er tilfellið að maður nýtur fjar Helga Jónsdóttir og Benedikt Hrafnkelsson á góðri stundu á œttarmóti Hallgeirsstaðasystkina sem haldið var í Svartaskógi ll.júlí s.l. ítilefni af áttrœðisafmœli Láru Stefánsdóttur móður Benedikts. Hótel Svartiskógur umvafið skóginum sem þarna hefur bceði vaxið villtur og verið plantað. Heyjað með gamla laginu á svipuðum slóðum og Hótel Svartiskógur stendur nú. Myndin er tekin 1964. Mynd: Orri Hrafnkelsson.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.