Austri


Austri - 17.12.1998, Síða 17

Austri - 17.12.1998, Síða 17
Jólin 1998 AUSTRl 17 Sönn vinátta Einu sinni voru köttur og hundur á bæ saman. Kötturinn var grábröndótt- ur að lit, en hundurinn var svartur, betri vini hef ég aldrei þekkt. Þeir áttu sína sögu. En ég hef hvorki tíma eða rúm til að rekja hana alla hér, en þó ætla ég að segja ykkur ofurlítið frá uppvaxtarárum Snata, en svo hét hundurinn. Hann var gotinn alllangt frá bæn- um Hofi. Móðir hans var þar á ferð, þegar hvolpamir hennar kröfðust þess að fá að komast í heiminn. Fannst nú tíkinni Stássu illa komið fyrir sér, þar sem hún lá á 5 nýgotnum hvolpum, langt frá húsaskjólinu heima. En þá gerðist nokkuð óvænt. Stór grábrönd- óttur köttur kom röltandi fast að þeim stað, þar sem Stássa lá á hvolpum sín- um. Kötturinn Brandur staðnæmdist hjá tíkinni og leit á hana stórum aug- um, eins og hann vildi segja. “ Var það nokkuð fyrir yður?” Stássa lyfti höfð- inu ofurlítið frá jörðinni og leit von- leysislega á Brand, sem var ennþá í stórum vafa um hvort hann ætti að vera vinur eða óvinur þessarar fjöl- skyldu. En augnatillitið sem hann fékk var svo dapurt og biðjandi að hann virtist kenna í brjósti um tíkina. Hon- um hugkvæmist þá allt í einu að Stássa kynni að vera svöng eftir langa legu þama og honum datt til hugar að ná í fugl handa henni. Hann fór því að svipast um eftir veiði og kom von bráðar aftur með hálfdauðan spóa og lagði við framfætur tíkurinnar. En hún lyfti aðeins höfðinu og leit þakklátum augum á Brand, hún var alltof aðfram- komin til að geta étið. Brandi leist nú ekki á blikuna. Hann ranglaði fram og aftur, eins og hann biði þess að honum hugkvæmdist hvað gera skyldi. Dóttir hjónanna að Hofi, hafði verið send til að leita að hestum þá um morguninn. Þegar hún var á ferð skammt frá þar sem Stássa lá, kom Brandur auga á hana. Ofurlítið vonar- ljós rann upp fyrir honum. Máski gæti hann nú gert henni aðvart, tækist það var hann viss um að hún myndi hjálpa. Hún var nú í þann veginn að fara framhjá. Brandur sá að hann varð að láta til skarar skríða. Hann mjálm- aði hátt og hvellt. Helga, en svo hét stúlkan, leit upp. Hvað gat þetta ver- ið? Hafði hún heyrt rétt? Nei, þetta em ofheymir hugsaði hún , hér er enginn köttur. Hún hélt því áfram göngu sinni. Nú rak Brandur upp vein, mikið og sárt og hljóp í áttina til Helgu, sem stansaði og leit við, þá var kisi nærri búinn að ná henni. Þá þekkti hún að þar fór Brandur, kötturinn hennar og bar hann sig mjög aumlega. Hún hélt að hann væri veikur og hugsaði með sér að ekki færi hún heim, nema að ná honum með sér. Heiga ætlaði nú að taka kisa upp og bera hann, en nú brá svo við, aldrei þessu vant, að hann vildi ekki leyfa henni að ná sér, en fór undan henni í flæmingi þar til hann var búinn að láta hana elta sig að verustað Stássu og þar stansaði hann og stóð eins og stytta. Um leið og Helga sá tíkina, skyldi hún háttarlag Brands. Hún sá að hér þurfti skjótrar hjálpar við og hljóp eins og fætur toguðu heim að Hofi, sagði bræðmm sínum hvers hún hefði orðið vís og bað þá að bregðast skjótt við og sækja vesalings tíkina og hvolpana hennar, því að þau væru að daúða komin af kulda Qg sulti. Þeir fóm fóm strax og sóttu Stássu og hvolpana og fluttu þau heim að Hofi. Á meðan útbjó Helga hlýtt bæli fyr- ir þau í skemmuhorninu. Þar voru sjúklingarnir lagðir og allt gert sem hægt var til að hlynna að Stássu og hressa hana við, en allt kom fyrir ekki, tíkinni varð ekki bjargað og drapst hún fljótlega. Nú var ekki útlitið gott með hvolpana og ákveðið að farga þeim, þar sem vonlítið þótti að halda í þeim lífi, þegar móðirin var dauð. Þegar Helga sá þetta fór hún að gráta. Pabbi hennar kenndi í brjósti um hana og leyfði henni að halda einum hvolpi eftir, ef ske kynni að hún gæti haldið honum lifandi. Helga hlúði að Snata sínum, en svo nefndi hún hvolpinn, af stakri um- hyggju og dafnaði hann vel. En Helga virtist ekki sú eina sem lét sér annt um Snata. Þegar hann var orðinn einn eftir af hvolpunum, fór að bera á því að kötturinn Brandur hænd- ist að honum og að því er virtist urðu vináttubönd þeirra æ sterkari. Þeir léku sér saman, fóru í kapphlaup og því um líkt. Er Snati óx upp reyndist hann ágætur fjárhundur og tryggur í besta lagi. En Snati varð ekki langlífur. Hann var aðeins þriggja ára er hann féll fyr- ir dauðanum. Hundafárið geisaði um alla sveitina. Snati veiktist og þegar hann hafði kvalist í fimm daga drapst hann. Allan tímann sem hann var veikur, hjúfraði Brandur sig að hon- um. Hann bar sig mjög aumlega og bragðaði hvorki þurrt né vott og virt- ist yfirkominn af sorg yfir ástandi Snata. Þó hann væri tekinn frá bæli Snata, þá var hann undir eins kominn þangað aftur, hann vildi ekki annars- staðar vera. Morguninn eftir að Snati drapst fór Helga að huga að Brandi, þá lá hann dauður í bæli vinar síns. Hann hafði dáið úr sorg. Þorsteinn Eiríksson Æskulínufélagar sem leggja inn fá afsláttarmiða á Disneytölvuleikinn Q3ulan. Skemmtilegur leikur fyrir börn á öllum aldri. Leikurinn fæst hjá Rafeind, Egilsstöðum. Búnaðarbankinn Egilsstöðum * Néi frumvarp þess efnis í gegn á Alþingi Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar Skipagötu 9 eða í síma 460 4700. NORÐllHtANBS HF * HLUTABRliF í§íÉíÍSIÉéS:5;í; 62.432 kr. L úudtaxbþJLóitl ' . ' ; ; uv ? ■ Kaupþing Norðurlands býður nú einnig 50% afsiátt af mismuni á kaup- og sölugengi bréfa Hlutabréfasjóðs Norður- lands og Sjávarútvegssjóðs íslands fram til 31. des. 1998. Hjón sem fjárfesta fyrir 266.666 kr. í Hlutabréfa- sjóði Norðurlands eða Sjávarútvegssjóði íslands fyrir áramót fá 62.432 kr. í endurgreiðslu frá skatt- inum í ágúst á næsta ári.* Hægt er að ganga frá kaupum á bréfum með eínu símtali til Kaupþings Norðurlands í síma 460 4700. Hægt er að dreifa greiðslum á allt að 12 mánuði. KAUPÞING NORÐURIANDS HF -fyrsl otj fremtt í ffúnmilum

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.