Austri


Austri - 17.12.1998, Qupperneq 22

Austri - 17.12.1998, Qupperneq 22
22 AUSTRI Jólin 1998 STAÐREYNDIR Líf þitt og fjölskyldunnar getur oltið á því að eldvarnirnar séu í lagi! Gættu þess að: Hafa reykskynjara á þínu heimili. Það er þín ódýrasta líftrygging! Skipta um rafhlöðuna í reykskynjaranum einu sinni á ári,annars veitir hann aðeins falskt öryggi. Rjúfa straum af rafmagnstækjum og jóla- seríum þegar heimilisfólk er ekki nær- statt, t.d. með fjöltengi með straumrofa og gaumljósi sem víða eru fáanleg! Hafa kertaskreytingar á óeldfimu undir- lagi. Brennanlegt skraut fjarri kertinu sjálfu og ávalt undir eftirliti. Hægt er að fá sérstaka álbotna undir kertið! Tökum öll á og fækkum slysum og stuðlum að fyrirbyggjandl hegðun! Skyndihjálp getur skipt sköpum! •Kælið strax í 15-20 °C köldu vatni uns sviði hverfur, í 20-25 mínútur áður en farið er á sjúkrahús. •Nái bruninn yfir stór svæði skal kæla með blautum lökum. Haldið hita á heilum svæðum með teppum. •Aldrei má setja þann brennda í kalt bað. •Bleytið í fötum eftir eldbruna og fjarlægið þau strax. Fjariægið einnig skartgripi og skó. •Hækkið upp brennda útlimi og látið fólk með andlitsbruna sitja upprétt. •Forðist ofkælingu. Upplýsingar um námskeið í skyndihjálp í s. 570 4000 RAUÐI KROSS ÍSLANDS Með Brunavarnaátaki um jól og áramót vilja slökkviliðsmenn um land allt miðla af þekkingu sinni og reynslu í þágu aukinna slysa- og forvarna. LANDSSAMBAND SLÖKKVILIÐSMANNA SÍÐUMÚLA 8-108 REYKJAVÍK • S: 588 2988 -FAX: 581 3988 Ráðgjöf og kennsla til fyrirtækja, húsfélaga og einstaklinga. Gleðilegjol og farsælt komandi ár.

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.