Austri


Austri - 17.12.1998, Blaðsíða 26

Austri - 17.12.1998, Blaðsíða 26
26 AUSTRI Jólin 1998 r Myndagátan geymir að þessu sinni 2 setningar f beinu samhengi. Ekki er gerður greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Dregið verður úr réttum lausnum og bókaverðlaun veitt. Svör sendist fyrir 12. janúar til: Austra Tjarnarbraut19 700 Egilsstaðir Rithöfundur og skáld sem ís- lendingar höfðu löngu sett á bekk með fremstu lausa- málshöfundum sínum þegar hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, fyrstur Islendinga, árið 1976 fyrir ljóðabækurnar, Að laufferjum og Að brunnum. Sem sagnaskáld var hann félagslega gagnrýninn raunsæishöfundur, en í ljóðum sínum fremur „klassisisti“ eins og sumir hafa kallað það. Meðal verka hans voru sérlega list- rænar smásögur, en úrval þeirra var gefið út í smásagnasafninu Ljósum dögum sem kom út árið 1959. Viðamestu verk hans í lausu máli voru sagnabálkarnir, Drekar og smáfuglar, Seiður og hélog og Gangvirkið. Hann lést árið 1988, þá sjötugur að aldri. / Islensk kona sem sat á Al- þingi fyrir Alþýðubandalag- ið á árunum 1971-1979. Hún er þó mun þekktari fyrir að vera einn fremsti fulltrúi absúrdisma og femínisma í íslenskum bók- menntum 20. aldar. Með smásagna- söfnunum 12 konur og Veisla undir grjótvegg hóf hún umræður um stöðu konunnar með allt öðrum hætti en áður hafði tíðkast og brá einnig fyrir sig vopnum fáránleik- ans. Stíll hennar er blanda af hvers- dagslegum raunsæislýsingum og óheftri fantasíu þar sem sagt er frá óhugnanlegum atburðum sem sjálf- sagðir væru og ráðist gegn klisjum og vanhugsun. Síðari verk hennar hafa fluttu skyldan boðskap en flóknari og flóknari uns náð er Gunnlaðarsögu, þar sem norræn heiðni og nútíminn blandast í sköp- un nýrrar goðsagnar. Stjórnmálamaður í Evrópu- ríki á síðustu öld. Var að- sópsmikill og hafði viður- nefni sem átti að vísa til hörku hans og er tengt ákveðnum málmi. Sam- einaði ríkið sem hann réði fyrir eftir að hafa staðið í stríðum við ná- grannaríki. Til að efla hið nýja ríki réðst hann gegn kaþólsku kirkjunni með menningarbaráttu og til að draga úr byltingarhyggju verkalýðs- stéttarinnar beitti hann sér, fyrstur evrópskra stjórnmálaleiðtoga, fyrir löggjöf um elli-, sjúkra- og slysa- tryggingu. I utanríkismálum reyndi hann að tryggja veldi hins nýja ríkis með það í huga að einangra eina af nágrannaþjóðunum. Dró lappirnar í nýlendukapphlaupinu og var vegna þess vikið úr embætti árið 1890. Erlent tónskáld og fiðluleikari sem átti sitt blómtímabil í upphafi 18. aldar. Starfaði í Feneyjum. Hann samdi um 40 óp- erur, en merkustu tónsmíðar hans eru um 600 hljómsveitarverk. Þessi bakarasonur rauf hefðina í fjöl- skyldunni til þess að gerast tónlist- armaður og starfaði við Markúsar- kirkjuna frá árinu 1685. Hann tók einnig prestvígslu, en páfi lýsti hann óhæfan sem prest, þegar upp komst að hann var í tygjum við söngkonu sem tók þátt í uppfærslu á einni af óperum hans. Meðal hljómsveitar- verka hans er mikið af konsertum þ.á.m. um 250 einleikskonsertar, en hann hafði mikil áhrif á þróun konsertformsins og fiðlutækninnar. Eitt þekktasta verk hans er náttúru- lýsingin Le quattro stagioni. / slensk afrekskona í íþrótt- um. Hún er frá Akranesi og er yngst í fimm systkina- hópi. Hún var landsliðsmaður í sundi frá 13 ára aldri og setti yfir 200 íslandsmet á ferlinum og var árum saman á lista yfir 10 bestu íþróttamenn landsins. Vann til sex gullverðlauna og einna silfurverð- launa á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989 og fimm gullverðlauna og tvennra silfurverðlauna á Smáþjóða- leikunum í Andorra 1991. Hún var kjörinn Iþróttamaður Smáþjóðaleik- anna bæði 1989 og 1991. Hún var kjörin Sundmaður Islands þrisvar sinnum, íþróttamaður Akraness sjö sinnum og Iþróttamaður ársins einu sinni. / Islenskur leikari. Er meðal fremstu leikara sinnar kyn- slóðar og býr yfir mikilli líkams- og raddtækni. Hann vann mikinn leiksigur árið 1963, þá að- eins tvítugur að aldri, í aðalhlutverki í leikritinu Gísl eftir Brendan Beh- an. Tók þátt í að stofna Leiksmiðj- una og Alþýðuleikhúsið. Hann hef- ur leikið mörg hlutverk í Þjóðleik- húsinu þ.á.m. titilhlutverkið í Galdra Lofti eftir Jóhann Sigurjóns- son og hlutverk Þorleifs Kortssonar í Skollaleik eftir Böðvar Guð- mundsson. Hann hefur einnig leik- ið í kvikmyndum og lék m.a. aðal- hutverkið í Útlaganum sem frum- sýndvarárið 1981. Eiginkona hans hefur setið á Alþingi og er auk þessa eitt af stóru nöfnunum í íslensku leiklistarlífi. Islensk myndlistarkona. Hún stundaði listnám á ís- landi, í Kaupmannahöfn og New York. Hún var fyrst íslenskar myndlistarmanna til að sýna sam- klipp hér á landi og hún vann braut- ryðjendastarf í steingler- list. Hún þróaði abstraktlist út frá kúbisma á 5. áratugnum og tók sér- staklega mið af áferðarmiklum stemmum franska listmálarans Nicolas de Staél, en málaði jafn- framt tilkomumiklar mannamyndir. Hún var mjög afkastamikill lista- maður og vann m.a. glermyndir í Þjóðminjasafni íslands, mynd- skreytti bækur, t.d. Tindáta Steins Steinars og svo eigin barnabækur s.s. Köttinn sem hvarf. Þegar á leið feril hennar fóru skírskotanir til ís- lenskrar náttúru að verða fyrirferð- armeiri í verkum hennar. Hún lést aðeins 55 ára að aldri. ýskur lífeðlis- og sálfræð- ingur. Er talinn hafa lagt grundvöllinn að vísindalegri sál- fræði. Upphaf þessarar sálfræði er oft rakið til ársins 1879 en þá opn- aði þessi maður fyrstu rannsóknar- stofuna í sálfræði, við háskólann í Leipzig í Þýskalandi. I rannsóknum sínum fékkst hann aðallega við at- huganir á skynfærum, einkum sjón- inni. Komst að merkri niðurstöðu varðandi viðbragðstíma. Allt til dauðadags síns 1920 hafði hann feiknamikil áhrif á þróun sálfræð- innar og hlutu frumkvöðlar amer- ískrar sálfræði þjálfun í rannsóknar- stofu hans. Stanley Hall sem setti á stofn fyrstu tilraunastofuna í sál- fræði í Bandaríkjunum árið 1883 hafði hlotið þjálfun hjá þeim manni sem um er spurt. Lausnir sendist til Austra, Tjarnar- braut 19, 700. Egilsstöðum, fyrir 12. janúar n.k., merktar: Austri - Hver er maðurinn. Einnig er hægt að senda tölvpóst, netfangið er Austri@eldhorn.is. Dregið verður úr réttum lausnum og bókaverðlaun veitt. Athugið að hér er ekki um neitt lausnarorð að ræða, heldur að- eins nöfn þeirra einstaklinga sem um er spurt. Góða skemmtun! HL ÓrÁ///ri o /shÁý){aom//m oÁ/Ju/r, l/áa/rr. f/M'/o/Ám/Áy o// /amJsmörmarri ö/ÁmrnjJetJi/apra ( jó/o oj^fa/sœÁJa/^ á r/j/a ári. SÓLDEKK ehf. Þverklettum 1 Egilsstöðum

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.