Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Blaðsíða 4
4
Sjónmál
S
<5
0$
Si
s
©
Opiö föstudags- og laugardagskvöld 22-03
Aðgangseyrir 500 kr.
Félagar Samtakanna 78 sem sýna
skírteini greiða aðeins 300 kr.
Meðal uppákoma í júní er hin
störkostlega Grand Gay Queen Contest
Aðalfundur Samtakanna 78
Samtökin 78 héldu aðalfund sinn
1991 þann 24. mars sl. Dagskrá
fundarins var hefðbundin: Guð-
rún Gísladóttir formaður flutti
skýrslu stjómar, Sigþór Sigþórs-
son gjaldkeri lagði fram reikn-
inga félagsins og félagsgjöld
ákveðin óbreytt frá fyrra ári -
2000 krónur. Utgáfumál voru
rædd og var að heyra á mönnum
að ekki myndi takast að endur-
vekja tímaritið Ur felum í sinni
gömlu mynd. Þess í stað var
samþykkt að styrkja ritnefnd
kvenna til að gefa út kvenna-
blað. Þar sem ekki hafði náðst
að endurskoða reikninga var
samþykkt þeirra vísað til fram-
haldsaðalfundar svo og stjómar-
kjöri en fullnægjandi framboð
höfðu ekki borist fyrir fundinn.
Framhaldsaðalfundur var hald-
inn 25. apríl og var hinn lífleg-
asti. M.a. var samþykkt tillaga
um að skipuð skyldi fjögurra
manna uppstillingamefnd
(tveggja kvenna og tveggja
karla) þrem mánuðum fyrir
næsta aðalfund.
Fram kom tillaga um að end-
urskoða lög félagsins og eftir
heitar tveggja tíma umræður var
laganefnd samþykkt. Hana skipa
Lana Kolbrún Eyþórsdóttir, Guð-
rún Gísladóttir, Guðbrandur
Baldursson og Sæmundur Jó-
hannesson.
Lagt var til við stjóm að efnt
Nýkjörin stjórn félagsins: Þorvaldur, Arni, Lilja, Maríus og Sigþór.
Guðbrandur og Eysteinn voru utan seilingar þegar myndin var
tekin. Ingólfur er með öllu óviðkomandi félaginu.
yrði til félagsfundar bráðlega til varaformaður, Sigþór Sigþórsson
að ræða m.a. útgáfumál og hús- gjaldkeri, Árni Kristjánsson rit-
næðismál og síðast en ekki síst ari, Guðbrandur Baldursson með-
var ný stjóm kjörin en hana stjómandi og varamenn þeir
skipa: Þorvaldur Kristinsson for- Eysteinn Ö. Traustason og Marí-
maður, Lilja S. Sigurðardóttir us H. Sverrisson.
Alnœmi
Minningar guðsþj ónusta
í Langholtskirkj u
Sunnudaginn 26. maí var haldin
minningarguðsþjónusta í Lang-
holtskirkju sem Samtök áhuga-
fólks um alnæmisvandann og
Samtökin 78 áttu fmmkvæði að.
Þar predikaði sr. Bragi Skúlason
prestur við Landspítalann, kór
Langholtskirkju tók þátt í at-
höfninni og Bergþór Pálsson
söng einsöng.
Tilefni guðsþjónustunnar var
sá dagur sem á ensku hefur ver-
ið nefndur International AIDS
Candlelight Memorial Day, en í
maí er þeirra minnst um allan
heim sem látist hafa úr alnæmi.
Islendingar minntust þessa dags
núna í þriðja skipti, en í fyrra
predikaði sr. Þórhallur Heimisson
við ógleymanlega athöfn í Lang-
holtskirkju.
Sífellt bætast fleiri lönd í hóp
þeirra sem taka þátt í þessari
sérstöku athöfn sem baráttu-
hreyfingar gegn alnæmi í San
Francisco áttu upptök að fyrir
sjö ámm. Blysfarir eru víða
famar á minningardeginum, en
eina ósk þeirra, sem fmmkvæði
eiga að athöfnum erlendis, er sú
að þær séu sannkallaðar ljósahá-
tíðir - að þátttakendur minnist
látinna og láti í ljósi von um
betri tíð með því að kveikja á
kertum og blysum. Þannig vilj-
um við minnast fómarlamba al-
næmis og styðja þá sem smitaðir
eru eða sjúkir með því að leggja
áherslu á nauðsyn þess að allur
almenningur - allar þjóðir fylki
liði og beri sameiginlega ábyrgð
á alnæmisvandanum.
Nýtt kvermablað í haust
Nokkrar lesbíur eru aö undirbúa tímarit þar sem fjallað
veröur um lesbíur og lesbíanisma á sem fjölbreytilegastan
hátt. Þær konur sem hafa áhuga á aö senda inn efni eöa
leggja eitthvað af mörkum, geta haft samband viö Elísa-
beti Þorgeirsdóttur, síma 10974, Höllu Frímannsdóttur,
síma 22523 eða Margréti Pálu Ólafsdóttur, síma 29798.