Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Qupperneq 6
6
Sjónmál
sekir, átta fangelsaðir og af þeim
sitja þrír enn inni.
Dómurinn hefur vakið mikinn
úlfaþyt í Bretlandi og þykir
dæmigerður fyrir refsigleði yfir-
valda þessi misserin. 16. febrúar
söfnuðust 7000 manns saman og
mótmæltu opinberlega í London.
En menn eru vanir að láta hart
mæta höfðu þar í landi. Gefin
hefur verið út bæklingur sem
kallast S/M and the law ritaður
af sérfróðum þar sem gefin eru
ráð um hvemig fólk skuli bregð-
ast við lögregluyfirheyrslum. Þar
er líka að finna lista yfir lög-
fræðinga sem sérstaklega þykja
hæfir til að fást við mál af
þessu tagi.
Reporter
Bandaríkin
Mótmæli sem tengjast stríðs-
rekstri Bandaríkjastjómar eru tíð-
ari þar í landi en íslenskir
fjölmiðlar kunna ffá að segja.
Þeir sem smitaðir em og sjúkir
af alnæmi láta líka í sér heyra. I
janúar fylktu þeir liði þúsundum
saman á götum New York til að
vekja athygli á því óhemjulega
fjármagni sem veitt hefur verið í
stríðsreksturinn fyrir botni
Persaflóa - fjármagn sem betur
væri komið til hjálpar sjúkum
heima fyrir. Talsmenn mótmæl-
anna benda í því sambandi á að
fjöldi þeirra sem látist hafa af
alnæmi vestan hafs nálgast óðum
tölu fallinna Bandaríkjamanna í
sjálfu Víetnamstríðinu - einni
blóðugustu styrjöld á okkar öld.
Reuter
Við lögreglu New York borgar
starfar sérstök deild sem fæst við
afbrot er rekja má til fordóma
vegna trúarbragða og kynhneigð-
ar. A dögunum var Mark nokkur
Caruso ráðinn þar til starfa. Það
sætir tíðindum að Caruso er
fyrsti yfirlýsti homminn sem fær
lögreglumannsstöðu í þeirri borg.
Advocate
Fyrir tíu árum stofnuðu tíu
blindar konur í Minnesota tíma-
rit sem nefnist Women’s Braille
Press (WBP) því eins og þær
sögðu: „Við viljum sjálfar
ákveða hvað við lesum.“
Áratug síðar telur WBP 275
áskrifendur í Bandaríkjunum,
Canada, Bretlandi og Þýskalandi.
Á bókasafni þeirra eru til rúm-
lega 500 bækur á snældu auk
alls þess efnis sem birtist í WBP.
Það vekur athygli að 75% þessa
lesefnis er lesbískt.
ILIS Newsletter
Kýpur
Alexander Modinos sem fyrir
fjórum ámm stofnaði félagsskap-
inn Gay Liberation Movement of
Cypms vann á dögunum eftir-
minnilegan sigur.
Á Kýpur er hægt að refsa
fólki fyrir samkynhneigð mök
með allt að 14 ára fangelsi.
Bretar innleiddu lögin 1885 og
þegar eyjan öðlaðist sjálfstæði
1960 var þessu ákvæði haldið í
refsilögunum. Modinos kærði
stjóm sína til Mannréttindadóm-
stólsins í Strasbourg og vann
sigur. En stjómvöld berja höfð-
inu við steininn og því er málinu
nú vísað til Evrópuráðsins. Sam-
tök lesbía og homma á Kýpur
telja um 500 félaga, en einungis
þrír þeirra hafa treyst sér til að
tala máli samkynhneigðra opin-
berlega.
Gai Pied
Sovétríkin
Ein af uppáhaldssögum Mikhail
Gorbatsjovs: Mitterand á sér 100
ástkonur, ein af þeim er smituð
af alnæmi en hann veit ekki
hver. Bush hefur í kringum sig
100 lífverði, einn af þeim er
hryðjuverkamaður en hann veit
ekki hver. Sjálfur á ég mér 100
efnahagsráðgjafa, einn af þeim
er sérfræðingur en ég veit ekki
hver. Kaldhæðinn maður, Mikki,
ef rétt er eftir haft!
Gai Pied
Kína
í kínverskum lyfjabúðum hefur
upp á síðkastið verið hægt að
kaupa „ástarkrem“, undralyf sem
að sögn apótekara þar í sveit á
að geta drepið HlV-veimna. Gott
ef satt væri! Þó að Kínverjar af-
neiti tilvist sjúkdómsins opinber-
lega og segi hann dæmi um
úrkynjun kapítalismans á Vestur-
löndum, fer þó uggur um marga.
I Yunnan-héraði við landamæri
Burma mun alnæmisfaraldur
hafa breiðst út meðal stungu-
efnaneytenda svo að yfirvöld þar
sáu sig knúin til að hrinda af
stað fræðsluherferð um sjúkdóm-
inn.
Gai Pied
Frakkland
Á þingi Evrópuráðsins í Stras-
bourg var fyrir skömmu lögð
fram þingsályktunartillaga sem
felur í sér áskorun þess efnis að
í Mannréttindasáttmála Evrópu-
þjóða verði hið fyrsta bætt við
sérstökum vemdarákvæðum fyrir
Sir lan McKellen sem
Coriolanus í samnefndu leikriti
Shakespeares á sviði Breska
þjóðleikhússins
Heimur í
Sjónmáli
samkynhneigða. Fulltrúar frjáls-
lyndra og sósíalista leggja fram
tillöguna - m.a. frá Sviss, Hol-
landi, Belgíu og Noregi.
LAMBDA Nachrichten
Svíþjóö
Sænskar konur héldu fyrir
nokkru menningarviku í Norr-
köping undir yfirskriftinni
Kvinnokraft och Fruentimmers-
vecka. Ljósmyndaranum Barbro
Lindh var boðin þátttaka og
sýndi hún þar Ijósmyndir af kon-
um sem teknar voru á grísku
eyjunni Lesbos. Myndimar fóru
svo fyrir brjóstið á fulltrúa
Kvenfélags Sósíaldemókrata í
Svíþjóð, Marianne Gustavsson,
að hún fjarlægði myndimar án
þess að spyrja neina þeirra
kvenna sem stóðu að menningar-
vikunni. Þær í kvenfélaginu eru
ekkert að tvínóna við hlutina!
Reporter
Bretiand
Sadó-masókistískt kynlíf er
glæpur þótt það sé stundað af
fúsum og frjálsum vilja. Að
þeirri niðurstöðu komst breskur
dómstóll í nóvember sl. 15 karl-
menn voru dregnir fyrir rétt í
Old Bailey fyrir að iðka hörku-
legri sex-leiki en gengur og ger-
ist. Þeir höfðu af fúsum og
frjálsum vilja hist innan veggja
einkalífsins og iðkað S/M-leiki.
Dómarinn ályktaði sem svo að
ekki mætti rugla saman frelsi
einstaklingsins og athöfnum sem
að mati samfélagsins væru villi-
mannlegar. Allir 15 voru fundnir
18 þjóðfrægir og jafnvel heims-
ffægir breskir listamenn hafa op-
inberlega látið í sér heyra og
lýst yfir samkynhneigð sinni.
Þeirra á meðal eru leikaramir
Anthony Sher og Stephen Fry
og kvikmyndaleikstjórinn John
Schlesinger. Þetta er framlag
þeirra til baráttunnar sem sam-
kynhneigðir eiga í á Bretlandi
eftir að ríkisstjóm Thatcher herti
refsilögin fyrir nokkrum misser-
um og bannaði fræðslu um sam-
kynhneigð í skólum og á
opinberum vettvangi með hinni
illræmdu „Section 28“.
Tilefnið í þetta skipti var það
að kvikmyndaleikstjórinn Derek
Jarman réðst opinberlega á einn
af mestu leikurum Breta, homm-
ann Ian McKellen fyrir að hafa
þegið aðalstign að tillögu
Thatcher-stjómarinnar. Ofan-
nefndir listamenn lýsa yfir
stuðningi við Sir Ian og kalla
nafnbótina einstæðan virðingar-
vott við mann sem ekki fer í fel-
ur með það hver hann er.
Lövetann