Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Síða 7

Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Síða 7
Sjónmál 7 Af vettvangi félagsins Opiö hús Á Lindargötu 49 er opið hús tvisvar í viku, mánudaga og fimmtudaga milli kl. 20 - 23. Óskað er eftir fólki á vakt til að hita kaffi og taka á móti þeim sem þama eru að koma í fyrsta sinn. Það skiptir meira máli en gömlu naglana í húsinu gmnar að fá góðar móttökur þegar fólk loks herðir upp hug- ann og lætur sjá sig á Lindargöt- unni til að nálgast aðra homma og lesbíur. Ungliöahreyfing Ungliðar félagsins undir 26 ára aldri hittast annað hvert sunnu- dagskvöld á Lindargötu 49 - uppfullir af vilja, orku og bjart- sýni. Sjón er sögu ríkari og þeir sem vilja blanda geði við ung- liðana og hafa aldur til ættu að láta sjá sig á sunnudagskvöldum. Nánari upplýsingar eru gefnar í símatíma Samtakanna á mánu- dags- og fimmtudagskvöldum. Sjálfstyrktarhópur „Basisgrúppur“ Nú síðla vetrar tóku nokkrir fé- lagsmenn höndum saman og stofnuðu sjálfstyrktarhóp sem hittist í húsakynnum félagsins annað hvert sunnudagskvöld. Aðalumræðuefnið er það að koma úr felum. Það vefst fyrir öllum eitthvert skeið ævinnar og tekur langan tíma að leysa. Suma tekur það ár og dag að læra að lifa í sátt við sjálfa sig. Því eins og þátttakendumir sjálf- ir segja: „Vandamálin sem mæta okkur eru óteljandi - pabbi og mamma - systkini okkar - maki, ef við höfum verið gift og eign- ast böm - vinnustaðurinn - leigusalinn og þar fram eftir göt- unum. Við þurfum öll að styrkja sjálfsmynd okkar í gagnkyn- hneigðu þjóðfélagi og gæta þess að festast ekki í ákveðnum hlut- verkum sem heimurinn réttir að okkur.“ Þau sem taka þátt í þessu starfi segjast sækja jákvætt afl í reynslu annarra og fá svör við mörgum spumingum, því aðrir eru að ganga í gegnum það sama og maður sjálfur. Og ekki síst segja þau það mikilvægt við hópumræðuna að hún auðveldi þeim að tjá líðan sína og tilfinn- ingar varðandi eitt og annað í reynslu homma og lesbía sem maður hefur annars ekki mörg tækifæri til að tala um. Leitið nánari upplýsinga í símatíma Samtakanna 78 á mánudags- og fimmtudagskvöld- um milli kl. 20 - 23. AA fundir AA fundir em haldnir í hverri viku á Lindargötu 49, á þriðju- dagskvöldum kl. 21. Þau kvöld fer engin önnur starfsemi fram í húsakynnum Samtakanna 78. Fundimir em vel sóttir og þeim fjölgar stöðugt sem telja sig eiga erindi á Lindargötuna á þriðju- dagskvöldum. Hér hittast al- kohólistar á batavegi til að miðla reynslu sinni, styrk og vonum. Hér koma þeir sem eiga við áfengis- og vímuefnavandamál að stríða og eru þreyttir á því oki sem víman leggur á menn. Löngunin til að hætta að drekka er eina skilyrðið fyrir þátttöku í AA samtökunum og enginn kemur fyrr en hann er sjálfur til- búinn að horfast í augu við eigin vanda. Nafnleyndin er hinn and- legi gmndvöllur erfðavenja AA samtakanna og félagar í AA svara í síma 2 85 39 klukkutíma fyrir fund. Þar þarf enginn að segja til nafns frekar en hann vill. Bókasafn Bókasafninu hefur borist mikið af bókum upp á síðkastið. Það er einkum að þakka örlátum félögum sem hafa verið ósparir á gjafir. Takk, örlátu félagar. Af klassískum heimspekiritum má nefna rit Platons, Gorgias, Síðustu daga Sókratesar, Menon og Samdrykkjuna. Þær voru ritaðar um 400 f.Kr. en okkar út- gáfur eru frá árunum 1959-1977. Einnig hefur okkur áskotnast ágætt safn leikrita í samantekt Michael Wilcox sem einfaldlega nefnast Gay Plays, 3. og 4. bindi, svo og samantekt Phillip Osment á vegum leikhópsins Gay Sweatshop sem nefnist Four Plays and a Company, en þar er sögð saga þessa merkilega leikhóps. Áhugafólk um leiklist ætti því að hafa úr góðu að moða á næstunni. Af skáldsögum homma má nefna Doing Business eftir Jeremy Beadle, Cast the First Stone eftir Chester Kimes, en það er rómantísk ástarsaga sem gerist í fangelsi og Enchanted Youth eftir Richie McMullen sem fjallar um vændi. Smá- sagnasöfnin Fairy Tales Mother Never Told You eftir Benjamin Eakin og Gay Tales and Verses Glaövakandi Hrákur Pervert skrifar: Eins og allir vita em til svartir smánarblettir á þjóð- félaginu sem fara neðar öllu óeðli í siðgæði. Þeir hafa bundið með sér samtök til þess að tæla ungt fólk í glötun og þrælahald nautnarinnar. Þessi siðblinda gerir þá líkari hund- um en mönnum í frumskógi kynvillunnar, þar blómstrar syndin sem blindar fallna engla og hin ljótu böm Adams og Evu. Samt held ég undirritaður, eins og annað bjartsýnt fólk. að ekkert sé svo slæmt að ekki fylgi því neitt gott. Jafnvel pest- in stóra verður réttlæti syndanna, því guð skapaði heiminn en ekki hommann. Homminn hefur alltaf verið réttdræpur á bestu tímum mannkynssögunnar, t.a.m. í Hitler-Þýskalandi nasismans og Viktoríutímanum í Bretlandi, sem lagði sannkristið lífemi ofar öllu. Tímamir breytast ekki án þess að marka eilíf spor á réttum stöðum, órjúfanlega minnisvarða um fomar dýrðir og kirkjunnar sverð; menn sem vita muninn á réttu og röngu, t.a.m. Amnesty Intemational. Hommar, kynvillingar, öfuguggar og það versta, lesbíur, eru í raun ekkert annað en þjóðfélagsleg niðurrifsstarfsemi í hinu vestræna tölvuþjóðfélagi. Eins og geislavirkur vírus lifa þau jafnt iðnbyltinguna sem gasofna Hitlers og lögmál Gyðinga. Athugasemd ritstjórnar: íslandsdeild Amnesty Intemational neitar enn að samþykkja samkynhneigða sem samviskufanga. from the Arabian Nights í rit- stjóm Henry M. Christman eru líka komnar á safnið. Af öðmm bókum nefnum við The Yage Letters, það em bréfaskipti Wil- liam S. Burroughs og Allen Ginsberg 1953-1963. Einnig kvikmyndahandrit eftir þann fyrmefnda, The Last Words of Dutch Schultz. Nautnastuldur Rúnars Helga Vignissonar er nýjasta íslenska bókin, en hún er m.a. merk fyrir það að þar er dregin upp trúverðug lýsing af homma, líkast til fyrsta heiðar- lega lýsingin í íslenskum bók- menntum. Og í þeirri bók eru Samtökin 78 í fyrsta sinn nefnd á nafn í íslenskum skáldskap. Svo minnst sé á hagnýta fé- lagsfræði þá er sú gagnlega og stórmerka bók Loving Someone Gœy komin í nýrri og endur- bættri útgáfu. Því miður áskotnaðist safninu bara ein lesbísk bók í maí. Það er hin stórmerka bók Heritage eftir Ritu Sackville West. Gerðar hafa verið umfangsmiklar ráð- stafanir til að bæta um betur því að á næstu vikum er von á væn- um pakka nýrra kvennabók- mennta frá Bandaríkjunum sem sérlegur innkaupandi safnsins þar í landi útvegar okkur. Þá er á næstunni fyrirhugað að bjóða til sölu á safninu erótísk tímarit fyrir karla og konur svo að sem flestir ættu að láta sjá sig á safn- inu ef þeir vilja fylgjast með því sem á boðstólum er, því upplagið er takmarkað. Ný myndbönd eru nokkur, Eldheita konan sem fjallar um vændi karla og kvenna og Kvennamál Richards sem er lesbíumynd. Þá er Rocky Horror komin í nýju eintaki að ógleymdri hinni listilega góðu tónleikaspólu með Michelle Shocked, The Captain Swing Revue. Bókasafn Samtakanna 78 er opið á mánudags- og fimmtu- dagskvöldum. Jákvæöi hópurinn Jákvæði hópurinn er fyrst og fremst ætlaður öllum HlV-já- kvæðum einstaklingum en einnig mökum þeirra, aðstandendum, nánum vinum og þeim sem hafa einlægan áhuga á að starfa með hópnum. Til að tryggja trúnað og nafnleynd þurfa aðrir en HIV jákvæðir samþykki hópsins til inngöngu. Jákvæði hópurinn æskir fulls samstarfs við heilbrigðisyfirvöld, Félag áhugafólks um alnæmis- vandann, Samtökin 78 og önnur skyld félög innan lands og utan. Markmið Jákvæða hópsins eru meðal annars þau að gefa HIV- jákvæðu fólki tækifæri til að hittast á eigin forsendum í ör- uggu umhverfi, að taka þátt í að bæta aðstæður HIV jákvæðra al- mennt - jafnt félagslega, heilsu- farslega og pólitískt, að taka þátt í að breiða út raunhæfar upplýs- ingar um HlV-smit og hagi HIV- jákvæðra. Þeir sem vilja slást í hópinn geta skrifað honum í pósthólf 9300, 129 Reykjavík. Ö5 S .1 88 £ tjh & & »9 a 5 a 2 o “ ö* f f I ^O ^o Oir 5 6 & Oir B" S- a, a a- oa S S. st <2 a a «,°s. oa s-e. | g 5* o* 3 ÍS S £ •ö- ö, S: on ö 3 S" g* a a ö Oe ö o* Öv s Ö ®* a* S" ö< *>». a R »»-. a a

x

Samtökin '78 - Sjónmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónmál
https://timarit.is/publication/1490

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.