Samtökin '78 - Sjónmál - 15.05.1991, Page 8
8
Sjónmál
Kópavogur:
Heiftarleg árás á rokkara
eftir Veturliða Guðnason
Þau eru allmörg fyrirtaekin
sem gera út á trúna í trausti
þess að menn telji það kristi-
lega skyldu sína að styðja allt
sem kennt er við guðsorð. Eitt
þeirra er Krossgötur, lítið en
harðduglegt fyrirtæki, sem gef-
ur út plötur, bækur og barna-
efni og tímaritið Abendingu.
Starfsmenn þess fara inn á
hvert heimili á landinu, að
minnsta kosti einu inni á ári
og láta í veðri vaka að þeir
séu sannir Drottins sendiboðar.
Blessun ráðherra og
landlæknis - Styrkur
frá 200 fyrirtækjum
Þetta fyrirtæki er fjárhagslegur
bakhjarl bókstafstrúarsöfnuðar,
Krossins, sem vakti á sínum
tíma athygli með harðorðum
blaðagreinum gegn ályktun Þjóð-
kirkjunnar um að samkynhneigð-
ir mættu eiga samneyti við aðra
krisma menn og hefur síðan
hvað eftir annað dæmt homma
og lesbíur til eilífrar kvalavistar í
helvíti.
Það hefur reyndar ekki farið
fyrir bijóstið á öllum. Fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, Guð-
mundur Bjamason, fyrrverandi
forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson og landlæknir,
Ólafur Ólafsson, eru meðal
þeirra frammámanna sem hafa
veitt söfnuðinum blessun sína
með inngangsorðum í blöðum
hans og bókum. Slíkt hlýtur að
teljast glámskyggni hjá sóma-
kærum embættismönnum, jafnvel
þótt Krossinn reki hæli fyrir
fíkniefnaneytendur og hafi sjálf-
sagt flíkað því meira við þá en
óhróðri sínum um venjulega
borgara.
Krossinn nýtur einnig stuðn-
ings 200 fyrirtækja til að gefa út
blað sitt og það verður fróðlegt
að sjá hvort Hljómbær og Japis
h.f. taka undir þá skoðun að
rokk sé tónlist djöfulsins.
Kölski rokkar, ríður
og dópar
I aðalgrein síðustu Abendingar
er ein helsta tónlistarstefna nú-
tímans, rokktónlist, bannfærð
með öllu sem henni fylgir. Tón-
listin sjálf, textamir, flytjendur
og hlustendur - allt er þetta á
valdi djöfulsins. Höfundurinn,
bandarískur bókstafstrúarmaður,
hefur greinilega staðgóða þekk-
ingu á rokki því honum tekst að
nafngreina obbann af vinsælustu
rokkurum undanfarinna ára vest-
an hafs og austan sem djöfla-
dýrkendur (Bítlamir, Rolling
Stones, Led Zeppelin, Black
Sabbath, KISS, Daryl Hall (N’-
Oates), kynbrjálæðinga, (Eagles,
David Lee Roth, Motley Crue,
Scorpions), homma, (David
Bowie, Queen, Elton John, Mick
Jagger) og vitaskuld alla sem
eiturlyfjaneytendur (að viðbætt-
um Yoko Ono, Bette Midler og
Söfnuðurinn Krossinn
helgar forsíðu og aðal-
grein Abendingar svæsn-
um áróðri gegn
rokktónlist og fullyrðir að
„rokk hafi alltaf verið tón-
list djöfulsins
Jimi Hendrix) og þar kemur líka
eina framlag Islands - Bubbi
Morthens.
Takmörk Satans
Best er að taka það skýlaust
fram að hér er ekki verið að
veitast að trúarhugmyndum
þeirra Krossmanna. Kjósi þeir að
trúa á tilvist einhvers konar per-
sónugervings hins illa er það
þeirra einkamál.
Þó er vert að geta þess í leið-
inni að djöfullinn hefur aldrei
verið kenndur við jafnháleitt og
merkilegt fyrirbrigði og tónlist,
né hún við hann. Aldrei - frá
því múrar Jeríkóborgar féllu að
minnsta kosti - hefur músík,
hvorki básúnukall, lúðraþytur né
strengleikar af neinu tagi fylgt
myrkrahöfðingjanum og ámm
hans.
Hitt er annað mál að flugna-
höfðinginn getur auðvitað læðst í
kvæði, hvað þá dans. Það vissi
vor sæli Hólabiskup Jón helgi
Ögmundsson og skyldi engan
furða að heilögum manninum
„líkaði ekki“ blautleg kvæði og
reigileg með mansöngs sneiðingi,
sámyrðum og sauryrðum og
reyndi að banna þau.
Klækilegar vísur, hæðilegar
og óáheyrilegar héldu þó áfram
að vera til og Ábending fer líka
strax yfir í rokktexta, kveðskap,
og það með vendingu sem fyrst
virist vera sálfræðilegt heljar-
stökk - þrefaldur „salto mortale“
- en fær samkvæmt viðtekinni
heimsmynd á engan hátt staðist
strax og að er gáð.
Viljalaus verkfæri
Ábending heldur því blákalt fram
að með því að hlusta á rokktón-
list fari menn „að dýrka djöful-
inn án þeirra eigin vitundar eða
eigin viljaákvörðunar; menn
verða djöfladýrkendur án þess að
gera sér grein fyrir því“. Þetta
byggist á bragði, sem rakið er
aftur til Aleister gamla Crow-
leys, og nefnist „andsælis boð-
skapur".
Abending: „Andsælis boð-
skapur er boðskapur, sem settur
er inn á hljómplötur á leyndan
hátt, þannig að þegar brot úr
söngtexta er spilað afturábak má
heyra allt annan boðskap. Þar
sem menn eru vanir að spila
plötur sínar „fram á við“ greinir
meðvitund manna ekki þegar
hún heyrir andsælis boðskap. Þar
sem þessi boðskapur stöðvast
ekki í meðvitundinni fer hann
beint inn í undirmeðvitundina."
Síðan er vitnað í sálfræðidokt-
ora sem rannsakað hafa svokall-
aðan „neðanmarkaboðskap“, þ.e.
leiftursnöggar myndir sem
bmgðið er upp á sjónvarpsskjá
eða kvikmyndatjald hraðar en
greint verður að fullu, og sagt
frá því, sem satt er, að slíkt hef-
ur áhrif.
Því næst eru tilfærð hin ýms-
ustu dæmi úr auglýsingaskmmi
rokkaranna um að þeir hafí
skellt einhverjum dónaskap aft-
urábak inn á plötur sínar - sem
vel má vera rétt.
En ályktunin - að þetta sé
sama fyrirbrigðið er auðvitað
hreint bull. Sjái maður „Coca
Cola“ ómeðvitað er vissulega
hugsanlegt að maður kaupi frem-
ur kók en pepsí en hve oft sem
maður heyrir „Ðug re natas“,
meðvitað eða ómeðvitað hefur
það bókstaflega engin áhrif því
það merkir ekki nokkum skapað-
an hlut.
Fyrst verður að snúa því við í
„Guð er Satan“ og slíkar kúnstir
iðkar undirmeðvitundin ekki.
Skrattanum hefur þá vaxið fiskur
um hrygg síðan á dögum Sæ-
mundar fróða ef hann getur snú-
ið sjálfum tímanum við.
Óvenjuleg sveifla í skemmtanalífinu
Skemmtun til
styrktar
alnæmissjúkum
Fimmtudaginn 6. júní nk. er
mikið um dýrðir á skemmti-
staðnum Yfir strikið. Friðrik
Weisshappel Jónsson, sem stóð
fyrir miklu málverkauppboði í
fyrra til styrktar þeim sem
smitaðir em eða sjúkir af
alnæmi, á aftur veg og vanda af
þessari uppákomu. Drjúgum
hluta af ágóða kvöldsins verður
varið til félagslegrar hjálpar við
alnæmissjúka. Kynnir kvöldsins
verður Sigmundur Emir Rúnars-
son. Allt undirbúningsstarf er
unnið í sjálfboðavinnu og allir
þeir sem eitthvað leggja af
mörkum, gefa framlag sitt. Og
allir borga aðgangseyri kvöldsins
- líka skemmtikraftamir.
Kvöldið hefst með herjans
miklu uppboði. Þar verða boðin
upp listaverk eftir Tolla, Hring
Jóhannesson, Cheo Cmz, Daníel
Magnússon, Megas og Sjón, svo
nokkrir séu nefndir. Auk þess
verður boðinn upp luftgítar
Sykurmolanna ásamt texta lags-
ins í frumriti að ógleymdum
þeim gítar sem Bubbi Morthens
hefur leikið á inn á fimm síðustu
hljómplötur sínar - stórkostlegir
gripir í einu orði sagt.
Þá verður boðin upp þriggja
vikna ferð fyrir tvo til Costa del
Sol, hún er 150 þúsund kr. virði
en seld hæstbjóðanda. Ekkert
lágmarksboð fylgir farseðlunum.
Páll Hjálmtýsson og Maríus
Sverrisson taka létta sveiflu og
loks leikur hljómsveitin Júpíters.
Skemmtunin hefst kl 20.30 og
aðgangseyrir er 500 kr. Einnig er
gestum boðnir happdrættismiðar
við innganginn. Aðeins er dregið
úr seldum miðum og em góðir
vinningar í boði, vænar úttektir á
veitingahúsum og í hljómplötu-
og tískuverslunum Reykjavíkur.
Vice* And Versa.
lamei f^ox.
And íamoi. Fo*.
See them all »n a film about fantasy. And reality.Vice. And versa.
performance.
Mick ja^ger.
And M»ck lagger.