Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Blaðsíða 30
Uppáhalds bækurnar
DREGNAR FRAM
Í SÓTTKVÍ
Una Borg Garðarsdóttir var send í sóttkví ásamt
skólafélögum sínum í síðustu viku. Una er bjartsýn
að eðlisfari og fór beint í að gera gott úr málunum.
Hún er fjórtán ára karatehetja sem elskar góðar
bækur. Svarið við inniverunni var ekki vandfundið.
LOFORÐIÐ
eftir Hrund Þórsdóttur
Útgáfuár: 2007
Loforðið var valin besta sagan í
samkeppninni um Íslensku barna-
bókaverðlaunin 2007 og þykir
einstaklega vel skrifuð. Höfundur
bókarinnar, fjölmiðlakonan Hrund
Þórsdóttir, nær á einstakan og
nærgætinn hátt að fjalla um sorg
og missi. Bókin lýsir þeim tilfinn-
ingum sem bærast með ellefu ára
stelpu sem verður fyrir því að
missa bestu vinkonu sína. Sagt er
frá vináttu stelpnanna, áfallinu og
söknuðinum, og síðast en ekki síst
skrýtna lyklinum og loforðinu sem
Ásta gefur vinkonu sinni og sver
við leynistaðinn að standa við.
RÖKKURHÆÐIR
eftir Birgittu Elínu Hassell og
Mörtu Hlín Magnadóttur
Útgáfuár: 2012-2014
Rökkurhæðir eru sex bóka sería
sem rífur upp gæsahúðina. Fyrsta
bókin, Rústirnar, fjallar um Pétur
Kristin sem er nýfluttur í gamalt
hús við Kirkjulund þar sem stuttu
áður áttu sér stað hræðilegir at-
burðir. Hann er samt sannfærður
um að þar sé ekkert illt á sveimi …
þar til hann rekur augun í dular-
fullar verur sem eru að baksa í
garðinum hans, garðinum sem
liggur upp að kirkjugarðinum.
SKRIFAÐ Í STJÖRNURNAR
eftir John Green
Útgáfuár: 2014
Önnur sleggja frá John Green.
Sagan kannar á stórkostlegan
hátt þá fyndnu, spennandi og
sorglegu hlið þess að vera á lífi og
ástfanginn. Kjarkmikil, virðingar-
laus, hrá og full af innsæi.
Bókin fjallar um langveika stúlku
að nafninu Hazel. Þrátt fyrir það
kraftaverk að æxlið hafi minnkað,
hefur Hazel ætíð verið dauðvona
og lokakafli hennar lagður strax
við greiningu. En þegar glæsilegur
viðsnúningur á sögunni, í líki Aug-
ustus Waters, birtist skyndilega
í stuðningshópnum fyrir krabba-
meinsgreind börn, er saga Hazel
skrifuð upp á nýtt.
SKJALDBÖKUR ALLA LEIÐINA NIÐUR
eftir John Green
Útgáfuár: 2018
John Green þykir einn fremsti ung-
mennahöfundur samtímans. Bókin
fjallar um Azu sem ætlaði aldrei
að velta sér upp úr ráðgátunni um
horfna milljarðamæringinn Russell
Pickett. En þar sem hún þekkir eldri
son hans, Davis, finnst bestu vin-
konu hennar að þær eigi að rann-
saka málið – enda eru verðlaun fyrir
upplýsingar, hundrað þúsund dalir.
Aza reynir að vera góð dóttir, góður
vinur, góður námsmaður og kannski
meira að segja góður spæjari en
það er erfitt þegar óboðnar hugs-
anir þrengja sífellt að.
HARRY POTTER
OG BÖLVUN BARNSINS
eftir J.K. Rowling
Útgáfuár: 2016
Áttunda sagan um Harry Potter
gerist nítján árum eftir að síðustu
bók lauk. Bókin er leikrit sem nú
er sýnt í London. Bókin kom út níu
árum eftir að sú síðasta í Potter-
seríunni leit dagsins ljós.
30 FÓKUS
U na hefur alltaf verið mikill lestrarhestur en fyrsta bókin sem hún
man eftir að hafa lesið var
Hvar er Depill? „Ég las hana
örugglega yfir 100 sinnum,“
segir Una og hlær.
Hún segist stundum hlusta
á hljóðbækur en kjósa frekar
að lesa sjálf því þá lifi hún sig
betur inn í söguna. „Næsta
bók sem ég ætla að lesa er
Órar og svo framhaldið af
henni Óreiða efir Lauren Oli-
ver.
Þegar ég leita mér að bók
reyni ég alltaf að finna bók
með góðum söguþræði og ég
dýrka að lesa ástarsögur.“ n
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Umsögn: „Vel skrifuð bók og ég
hef lesið hana allavega fjórum
sinnum. Hún fékk mig til að hlæja
og gráta.“
Umsögn: „Þessi sería er frábær
fyrir þá sem fíla hryllingsbækur
sem eru ekki of hræðilegar. Mæli
með þessum bókum, fær hárin á
höfði manns til að rísa!“
Umsögn: „Mjög falleg og sorgleg
saga. Ég fann fyrir öllum mögu-
legum tilfinningum á meðan ég las
hana. Gleði, sorg og reiði.“
Umsögn: „Spennandi og skemmti-
legur söguþráður sem heldur les-
andanum vel. Mæli með ef þið hafið
áhuga á ráðgátum.“
Umsögn: „Skemmtileg og sér-
staklega ef þú ert Harry Potter
aðdáandi. Það er gaman að fá loks
framhald.“
Una Borg æfir karate af kappi og elskar góðar bækur. MYND/RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
23. OKTÓBER 2020 DV