Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Blaðsíða 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Áróðursmerki lögreglumanna
Athygli vakti þegar mynd birtist í fjölmiðlum af lögregluþjóni
sem bar merki á búningi sínum sem sýndu fána með áróðri
nýnasista. Myndin er nokkurra ára gömul en vakti fyrst at-
hygli nú í vikunni. Málið hefur verið tilkynnt til nefndar um
eftirlit með lögreglu. Embætti lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem umræddur lögregluþjónn starfaði, sendi frá
sér yfirlýsingu þar sem atvikið var harmað og tekið fram að
notkun slíkra merkja væri ekki studd með neinum hætti. Lög-
reglumönnum hafi nú verið gert skylt að fjarlægja öll merki
af búningum sínum sem ekki eru í samræmi við reglugerð.
Snarpur jarðskjálfti
Jarðskjálfti af stærðinni 5,6 reið yfir klukkan 13.43 á þriðju-
dag og fannst vel á höfuðborgarsvæðinu. Skjálftinn átti upptök
í Núpshlíðarhálsi, 5 kílómetrum vestur af Seltúni á Reykja-
nesskaga. Fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið. Þingfundur var
á Alþingi þegar skjálftinn reið yfir og hefur myndskeið sem
sýnir þingmann Pírata, Helga Hrafn Gunnarsson, hlaupa úr
ræðustól vakið mikla athygli.
Líkamsræktarstöðvar opnaðar
Líkamsræktarstöðvar gátu hafið starfsemi að nýju í vikunni,
þó með ströngum reglum. Aðeins má starfrækja hópatíma þar
sem einstaklingar skrá sig í tíma fyrir fram og eru sturtur og
búningsklefar lokuð svo dæmi séu tekin. Þetta vakti mikið um-
tal. Sóttvarnalæknir kvaðst vera mótfallinn slíkum opnunum
og benti á að gífurlegan fjölda COVID-19 tilfella mætti rekja
til slíkra stöðva. World Class hóf starfsemi en stöðvarnar
Hreyfing og Reebok kusu að gera slíkt ekki og vísuðu þar í
vilja kúnna og til samfélagslegrar ábyrgðar. Fullbókað er í
alla opna tíma hjá World Class.
Manntjón í eldsvoða
Kona á áttræðisaldri lést í eldsvoða í uppsveitum Borgarfjarð-
ar á sunnudag. Talið er að eldur hafi kviknað út frá rafmagni.
Íbúðarhúsið er gjörónýtt eftir brunann. Ekkill konunnar á nú
um sárt að binda þar sem hann missti maka sinn og aleiguna
og hafa aðstandendur hafið söfnun til að styðja við hann á
þessum erfiðu tímum.
Dómur fallinn í Mehamn-harmleik
Dómur er fallinn í Mehamn-harmleiknum í Noregi. Íslend-
ingurinn Gunnar Jóhann Gunnarsson var fundinn sekur um að
hafa banað bróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, af ásetningi.
Gunnari var gert að sæta 13 ára fangelsi en samkvæmt lög-
manni hans verður þessari niðurstöðu áfrýjað á næsta dóm-
stig.
Afreksstarf leyft á höfuðborgarsvæði
Meistaraflokkar og afrekshópar/-fólk mega hefja æfingar í
mannvirkjum á vegum sveitarfélaganna en húsunum hafði
verið lokað nokkru fyrr vegna kórónaveirunnar. Yngri flokkar
verða þó að bíða áfram, en þeir sem eru fæddir 2005 og síðar
mega ekki hefja æfingar fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku.
Á æfingum þarf að virða tveggja metra reglu og ekki má
snerta boltann með höfði. Allur búnaður verður hreinsaður
eftir hverja æfingu.
1 Eygló og Valdís ákærðar fyrir stórfelld skattsvik – Gáfu
sjálfum sér einbýlishús í Garðabæ
Héraðssaksóknari hefur ákært tvær
konur fyrir stórfelld skattsvik fyrir að
hafa látið hjá líða að gera grein fyrir
85 milljóna króna tekjum frá árinu
2014.
2 Varað við leðurbuxum úr Zöru – Ástæðan sprenghlægileg
Ung kona komst að því að leðurbuxur
úr Zöru gefa frá sér prumpuhljóð
þegar hún hreyfir sig í þeim.
3 Skammast sín ekki fyrir það sem hann gerði – „Það var ég
eða hann“ Tom Brewitt, fyrrverandi
akademíu-leikmaður Liverpool,
viðurkennir að hafa meðvitað reynt
að meiða liðsfélaga sinn til að fá
sjálfur tækifæri með aðalliðinu.
4 Vaknaði við undarlegt hvæs-hljóð við höfðalagið – Áfallið
var gríðarlegt þegar hún áttaði sig á
upptökum þess Eiginmaður Pep itu
Nicholls reyndi að koma henni fyrir
kattarnef með því að dæla gasi inn í
hjólhýsi hennar.
5 Þetta eru fyrirtækin sem Efling segir hafa svikið starfsmenn
um laun Stéttarfélagið Efling nafn-
greindi fyrirtæki sem eru með fleiri
en 10 útistandandi launakröfur í ferli
hjá félaginu.
6 Mynd hennar vekur athygli vegna kynfæris – „Ég sá það
ekki fyrst en nú get ég ekki hætt að
sjá það“ Ung kona birti mynd af sér
fyrir framan spegil. Fótur hennar sést
í speglinum en við fyrstu sýn minnir
hann frekar á getnaðarlim sem
virðist hanga á milli fóta hennar.
7 Þórólfur svaraði fyrir ákvörð-un sem vekur furðu margra:
„Við erum að reyna að koma í veg
fyrir hópmyndun“ Sóttvarnalæknir
svaraði fyrir það hvers vegna farið
var þá leið að loka fyrir keppnis-
íþróttir á höfuðborgarsvæðinu.
8 Hertar sóttvarnareglur taka gildi á þriðjudaginn Hertar
reglur tóku gildi í vikunni og gilda til
3. nóvember.
Skemmtileg og spennandi bók skrifuð af
mikilli virðingu og næmi fyrir flóknum tilfin-
ningum sem fylgja unglingsárunum
Sigurvegari Íslensku barnabókaverð-
launanna 2020
DÁSAMLEGA
FYNDIN
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
4 FRÉTTIR 23. OKTÓBER 2020 DV