Fréttablaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Hræðilega svekkjandi 1-2 tap gegn Ungverjum var niðurstaðan í Búdapest í gær og er þar með ljóst að íslensku hetjurnar fara ekki á þriðja stórmótið í röð. Íslendingar náðu forystu á ell-
eftu mínútu eftir glæsilegt aukaspyrnumark Gylfa Sigurðssonar. Þegar stutt var til leiksloka náðu Ungverjar að jafna leikinn og tryggja sér svo sigur í uppbótartíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
+ www.hekla.is/audisalur
Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn
Verð frá 8.890.000 kr.
Dæmi um búnað: 20” álfelgur, loftpúðafjöðrun,
íslenskt leiðsögukerfi, hiti í stýri
*Bíll á mynd er
Advanced S-line
UMHVERFISMÁL Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverf is- og
auð lindaráðherra, hyggst leggja
fram frumvarp í desember þar sem
Endurvinnslunni verður gert kleift
að endurvinna gler.
Fram til þessa hefur gler, þar
á meðal glerumbúðir utan um
drykki, ekki farið til endurvinnslu
hér á landi. Samkvæmt Evróputil-
skipun er skylda að endurvinna
minnst 60 prósent af gleri og fer
hlutfallið upp í 75 prósent árið 2035.
„Við stöndum okkur mjög vel í
öðrum drykkjarvöruumbúðum,
en ekki þegar kemur að glerinu . Ég
er nú með í bígerð lagafrumvarp þar
sem við erum að gera Endurvinnsl-
unni kleift að fara í endurvinnslu á
gleri. Það þarf að hækka umsýslu-
gjald til þeirra til að það sé hægt. Ég
hyggst ná þeim markmiðum sem
við höfum sett okkur,“ segir Guð-
mundur Ingi.
Ítarlega hefur verið fjallað um
málefni úrgangs síðustu misseri.
Stór hluti plasts er ekki endurunn-
inn heldur sendur til Svíþjóðar þar
sem plastið er brennt. „Sumt plast
er óendurvinnanlegt og þá er betra
að brenna það en að urða, en það
mikilvægasta er að það sem raun-
verulega getur farið í endurvinnslu
af plasti fari í endurvinnslu. Annað
er óásættanlegt.“ Leggur hann
áherslu á gagnsæi þegar kemur að
því hvar úrgangur endar.
„Það er grundvallaratriði að við
vitum í hvaða farveg sá úrgangur fer.
Ég hyggst ræða það við Úrvinnslu-
sjóð.“ – ab / sjá síðu 8
Vill að gler verði endurunnið
Umhverfisráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem opnar dyrnar að endurvinnslu á gleri hér á landi.
Hann leggur áherslu á gagnsæi þegar kemur að farvegi úrgangs. Skerpt verður á því með Úrvinnslusjóði.
Það þarf að hækka
umsýslugjald til
þeirra til að það sé hægt.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfisráðherra
SKIPULAGSMÁL Reykjavíkurborg
mætir enn andstöðu vegna áforma
um smáhýsi fyrir skjólstæðinga
velferðarþjónustu sinnar. Faxa-
flóahafnir leggjast gegn því að fimm
slík smáhýsi rísi á bílastæði við hlið
Sorpu úti á Granda og segja að til-
lagan hafi verið unnin án vitneskju
eða aðkomu hafnarinnar sem sé
andstætt verklagi sem gilt hefur á
eignarlandi hafnarinnar. Tvö félög
sem eiga hagsmuni á Klettssvæðinu
við Laugarnes mótmæla síðan að
jafnmörg smáhýsi rísi við Héðins-
götu. Lögfræðingar eiganda lóða á
síðarnefnda staðnum segir borgina
sýna af sér óbilgirni. – gar / sjá síðu 6
Mótmæla
smáhýsum