Fréttablaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.11.2020, Blaðsíða 16
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Ragnar Guðmundur Jónasson fyrrum slökkviliðsmaður, lést 7. nóvember á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför auglýst síðar. Guðrún Árnadóttir Hannes Arnar Ragnarsson Halldóra S. Lúðvíksdóttir Jónas Ragnarsson Ragnhildur Sigurðardóttir Guðmundur Ingi Ragnarsson Sigrún Kristjánsdóttir Hermann Ragnarsson Sóley Víglundsdóttir Halldór Karl Ragnarsson Sigurður Vignir Ragnarsson Valdís I. Steinarsdóttir Unnar Ragnarsson María Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, Guðbjörg Tómasdóttir menntaskólakennari, lést á Landspítala Landakoti föstudaginn 30. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 17. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni: livestream.com/luxor/gudbjorg Guðbjartur Kristófersson Tómas Guðbjartsson Dagný Heiðdal Hákon Guðbjartsson Magnea Árnadóttir Ingibjörg Guðbjartsdóttir Brynjólfur Þór Gylfason Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður J. N. Ingólfsson málarameistari, Fornastekk 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum, Fossvogi aðfaranótt þriðjudagsins 10. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Þorsteinn V. Sigurðsson Hrefna G. Magnúsdóttir Ingólfur Sigurðsson Sigríður Þóra Þorsteinsdóttir Pétur Þór Guðjónsson Fanney Rut Þorsteinsdóttir Bjarki Heiðar Sveinsson Kristín Nordal Ingólfsdóttir Rakel Ósk Jóelsdóttir Jónas Birgir Jónasson Magnús Hlífar Jóelsson Frederik Ingólfsson Kristófer, Sunneva, Pétur, Tristan, Eva, Natalía, Logi, Viktoría og Lovísa Við erum flest föst heima en ég vil að fólk geti gægst út fyrir ramma heimilisins gegnum netið og notið þar íslenskrar menningar, hvenær sem því hentar,“ segir Ólöf Breiðfjörð sem nýlega hóf störf sem menningarfulltrúi Garðabæjar. Hún kveðst hafa verið búin að ráða lista- menn til að vera með smiðjur í söfnum bæjarins og tónleika í Vídalínskirkju nú á haustönn. „Ég var með fullskipað plan. En þjóðin gekk í gegnum svona tímabil í vor, þá var ég í Kópavoginum og með streymi beint frá viðburðum. Nú ákvað ég að fara aðra leið og búa til þætti sem eru aðgengilegir hvar og hvenær sem er á rásinni vimeo.com/menningigardabae og á síðu bæjarins.“ Bæjarlistamenn láta ljós sín skína Ólöf kveðst hafa lagt áherslu á að hafa efni þáttanna fjölbreytt. „Í Garðabæ hafa flottir bæjarlistamenn með ólíkar áherslur verið valdir gegnum tíðina og ég leitaði til nokkurra þeirra. Meðal annars tveggja rithöfunda, Bjarna Bjarnasonar sem var valinn 2019 og er að vinna að sögulegri skáldsögu. Í þættinum fer hann djúpt ofan í hvernig rithöfundar nota sögulegar heimildir í skáldsögur sínar. Næsti þáttur er með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Hún býður fólki heim á vinnustofu sína og leiðir það um sögusvið bóka sinna um Fíusól og f leiri hér í bænum. Hvoru- tveggja efnið er heillandi.“ Nýjasti bæjarlistamaður Garðabæjar er Bjarni Thor Kristinsson óperusöngv- ari. „Bjarni Thor er búinn að missa öll sín verkefni frá því COVID byrjaði og það er gaman að geta í senn gefið fólki sem kemst ekki út á tónleika færi á að njóta þeirra og styðja við bakið á lista- mönnum. Bjarni Thor setti saman dag- skrá með lögum sem hann tengir við sinn feril og talar við fólk milli laga. Þetta eru ekki bara Wagner-aríur heldur bland í poka.“ Djassgeggjun og uppáhaldslög Hin árlega Djasshátíð Garðabæjar féll niður í haust en Siggi Flosa, Ómar Guð- jóns, Kristjana Stefáns, Einar Scheving og Þorgrímur Jónsson rigguðu upp djass-stund sem heimurinn getur notið gegnum þessa gátt hennar Ólafar. Svo var nýlega búið að opna sýningu á Hönnunarsafninu, 100% ull, þegar allt skall í lás í haust en viðtöl við alla hönnuðina fylla einn þáttinn. „Það eru ekki einungis Garðbæingar sem koma við sögu, heldur líka fólk sem tengist bænum gegnum störf sín,“ tekur Ólöf fram og nefnir hjónin Jóhönnu Guðrúnu söngkonu og Davíð Sigur- geirsson gítarleikara sem stjórna kórum í Vídalínskirkju. Þau flytja uppáhaldslög Jóhönnu Guðrúnar í einum þættinum. „Um síðustu helgi fór Birta Guðjónsdótt- ir sýningarstjóri milli útilistaverka hér í bæ með upptökufólki og lýsir þeim. Þar eru verk sem ég hafði aldrei veitt athygli og hlakka sjálf til að horfa á þann þátt þegar búið verður að setja hann saman,“ segir Ólöf og lofar líka jólalegum þáttum í desember. Efni þáttanna er aðgengilegt heims- byggðinni og öllum að kostnaðarlausu. Ólöf giskar á að svona verði þetta til framtíðar. „Þó við losnum vonandi við kórónaveiruna sem fyrst þá eru aldrei allir sem komast á viðburði og það þarf að sinna þeim líka,“ bendir hún á. „Þarna fáum við að skyggnast inn í alls konar heima sem við þekktum ekki áður.“ gun@frettabladid.is Menninguna heim í stofu Tónlist, sögur, heimsóknir til rithöfunda og rölt milli útilistaverka eru meðal efnis á síðu Garðabæjar og sérstakri menningarrás sem heitir vimeo.com/menningigardabae. Ólöf við vegg í Sveinatungu, fjölnotasal á Garðatorgi sem var tilnefndur til hönnunarverðlauna erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nýjasti bæjarlistamaður Garðabæjar, bassasöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson, er einn þeirra sem við sögu koma í þáttunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Þjóðin gekk í gegnum svona tímabil í vor, þá var ég í Kópa- voginum og með streymi beint frá viðburðum. Nú ákvað ég að fara aðra leið og búa til þætti sem eru aðgengilegir hvar og hvenær sem er.  Merkisatburðir 1002 Aðalráður ráðlausi gefur út skipun um að drepa alla norræna menn í Englandi. 1035 Haraldur hérafótur er gerður að landstjóra í Eng- landi eftir lát föður hans Knúts mikla. 1441 Kristófer af Bæjaralandi er hylltur sem konungur Svíþjóðar. 1630 Svíar sigra her keisarans í orrustunni við Falkenberg. 1946 Flugvöllur er formlega tekinn í notkun í Vestmanna- eyjum. 1973 Alþingi samþykkir formlega samning við Bretland um lausn landhelgisdeilunnar vegna útfærslu landhelg- innar í 50 sjómílur. 1994 Michael Schumacher vinnur sinn fyrsta titil í Form- úlu 1-kappakstri. 2004 Geimkönnunarfarið SMART-1, frá Geimferða- stofnun Evrópu, fer á braut um Tunglið. 2013 Nýr turn á lóð Tvíburaturnanna í New York er vígður með viðhöfn. Hann er 72 hæðir og 297,7 metrar á hæð. 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.