Fréttablaðið - 13.11.2020, Page 13

Fréttablaðið - 13.11.2020, Page 13
Guðmundur Steingrímsson Í DAG Afgreiðslutímar á www.kronan.is Skemmtilegasta spurning dagsins ... HVAÐ ER Í MATINN? Íslensku menntaverðlaunin hafa nú verið endurvakin. Þau voru stofnuð af Ólafi Ragnari Gríms- syni og fyrst veitt 2005. Því miður lögðust þau af skömmu eftir hrun þegar bakhjarlar þeirra gátu ekki lengur stutt við þau. Um nokkurt skeið hefur áhugahópur skólafólks unnið að því að koma þeim á fót að nýju og nú hefur það tekist með fulltingi forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og öf lugum stuðn- ingi Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og men n i ng a r má l a r áðher r a , og Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra. Alls koma 15 aðilar að verð- laununum; háskólar, stofnanir og félög sem tengjast menntakerfinu og mynda þau viðurkenningar- ráð. Ráðið tilnefndi á alþjóðlega kennaradeg inum, 5. október, framúrskarandi skóla, kennara og þróunarverkefni til verðlaun- anna, fimm í hverjum f lokki. Til- nefningarnar tengjast jafnt leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, formlegri menntun og óformlegri, bóknámi, verknámi, listnámi og félagsstarfi. Fjölbreytnin er raunar beinlínis heillandi eins og sjá má á vefsíðu verkefnisins: skolathroun. is/menntaverd laun/ Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metn- aðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum og hefja það til vegs og virðingar. Er þörf á því að verðlauna framúrskarandi skóla- og frístundastarf? Einhver kann að spyrja um þörfina á enn einum verðlaununum. Því er til að svara að kennsla og önnur uppeldisstörf hafa aldrei verið mikilvægari. Væntanlega hefur flestum orðið þetta enn betur ljóst nú síðustu misserin. Það er ærin ástæða til að vekja oftar og meiri athygli á kennarastarfinu og öðrum uppeldisstörfum. Ljóst er að þessar stéttir starfa undir vaxandi álagi og til þeirra eru gerðar auknar kröfur. Nefna má mikilvægar væntingar til þess að komið sé til móts við þarfir allra nemenda í almennum skólum, þróun skólans í fjölmenn- ingarsamfélagi sem er afar krefjandi viðfangsefni, hraða þróun í tölvu- og upplýsingatækni sem krefst stöðugrar og mikillar endurmennt- unar, að ekki sé minnst á breytingar á námskrá og námsefni. Við þurfum sem samfélag að sýna að við metum þessi störf mikils. Hvað gerðu Finnar? Þetta tókst Finnum. Þeir breyttu viðhorfum til kennarastarfsins. Þar er nú hörð samkeppni um að komast að í kennaranámi og kom- ast miklu færri að en vilja. Finnska menntakerfið vekur athygli um allan heim fyrir árangur, metnað og nýsköpun. Lykillinn að því er áreiðanlega sá að þeim tókst að breyta viðhorfum til kennslu- og uppeldisstarfa. Til stóð að af henda Íslensku menntaverðlaunin á Bessastöðum 13. nóvember, en aðstæður valda því að það verður ekki hægt en verður gert með öðrum hætti. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með, samfagna og gleðjast yfir þeim metnaði sem einkennir það starf sem tilnefnt hefur verið og verðlaun hlýtur. Í honum birtast þau viðmið sem okkur þykja eftirsóknarverð og við eigum að keppa að. Íslensku menntaverðlaunin endurvakin Gerður Kristný formaður viðurkenning- arráðs Íslensku menntaverð- launanna Ingvar Sigurgeirsson verkefnisstjóri Síðastliðin vika einkenndist af tveimur stórum viðburðum sem eiga eftir að valda miklum straumhvörfum í náinni framtíð. Annar var sá, að þau Joe Biden og Kamala Harris unnu sigur á Donald Trump og þótt hann neiti að viðurkenna það, þá er sá þrjótur sem sagt á útleið og allt hans fólk. Ég horfði á þetta gerast á CNN, þegar Biden vann Penns- ylvaniu eftir langdregna talningu. Slík var geðshræringin að virðulegir pólitískir greinendur fóru að hágráta. Í gegnum ekkasog stjórnmálaskýrandans Van Jones mátti greina þessi skilaboð sem við hjónin tókum heilshugar undir heima í stofu, og gátum satt að segja ekki annað en fellt tár yfir sjálf: Núna, þegar Trump fer, með góðu eða illu, verður auðveldara fyrir foreldra að segja börnum sínum hvað er rétt og hvað er rangt. Sem sagt: Hefði Trump unnið, þá hefði það verið bakslag fyrir alla viðleitni fólks um allan heim til þess að hafa viss grundvallarsiðferðisgildi í hávegum, gagnvart börnum sínum og öðrum. Ekki ljúga. Ekki svíkja. Ekki ala á ófriði. Ekki sýna fólki vanvirðingu. Ekki vera siðlaus egóisti. Svona geta stjórnmál haft mikil áhrif. Það skiptir miklu máli hverjir eru í stjórn- málum. Hverjar fyrirmyndirnar eru. Hver gildin eru. Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum voru fyrst og fremst kosningar um persónuleika og gildi. Eldri maður, þekktur að samhygð, sanngirni, heiðar- leika og pólitískri brúarsmíði var kjörinn í stað helstirnis, sem úðar illsku yfir heims- byggðina til þess að komast í fréttir. Kjör Bidens og Kamölu sýnir að enn er von. Bara eitt dæmi: „Velkomnir aftur,“ sögðu vísindamenn heimsins við bandaríska kollega sína á Twitter. Bandarískir vís- indamenn geta núna aftur óhindrað tekið þátt í baráttunni við loftslagsvána, ásamt öllum hinum, eftir að hafa verið kippt aftur til miðalda af Trump. Það munar um bandaríska þekkingu og hæfni á hinu alþjóðlega sviði. Og á meðan Trump var upptekinn við að neita að viðurkenna ósigur sinn — talandi um gildi sem fólk reynir almennt að hafa í hávegum í uppeldi barna — og hans fólk var haldandi blaðamannafundi á bílastæðum fyrir utan kynlífshjálpar- tækjabúðir í úthverfum, hótandi grand- vöru talningafólki lögsóknum hægri, vinstri, þá gerðist hinn stórviðburðurinn. Yfir þeim viðburði var svolítið annað yfirbragð en hinum fyrri. Ekki jafnmikil dramatík. Engin átök milli stríðandi póla. Bara fólk að störfum. Það er merkilegt stundum með stórvið- burði. Það er eins og sumir þeirra gerist einhvern veginn allt í einu, fullkomlega eðlilega og með hægð, rétt eins og þegar sólargeisli brýst stundarkorn gegnum skýjaþykkni, og maður staldrar við og brosir. Heimsbyggðin hefur beðið eftir bóluefni við COVID. Í byrjun vikunnar kom bóluefni við COVID. Og f leiri eru á leiðinni. Það er risaviðburður. Eins og með hinn, þá eykur þessi viðburður líka von, ekki bara vegna sérlega ánægjulegs innihalds tíðindanna, heldur líka vegna fólksins sem á í hlut. Ég þekki þau auðvitað ekki, en af fréttum að dæmi virðast hjónin dr. Ugur Sahin og dr. Özlem Türeci vera einstakt fólk. Þau eru tyrkneskir innflytjendur í Þýskalandi. Þau stofnuðu og eiga fyrir- tækið BioNTech, sem í vikunni tilkynnti bóluefnið ásamt lyfjarisanum Pfizer. Þegar tíðindi bárust um að bóluefnið virkaði í 90% tilvika munu þau hjónin hafa fagnað með því að blanda sér tyrkneskt te. Og svo fóru þau víst aftur að vinna. Þau eru forrík. Þau byggðu upp fyrir- tæki sitt í líftækniiðnaði úr engu nema þekkingu sinni. Þau búa hins vegar í lítilli íbúð nálægt vinnunni ásamt unglings- dóttur sinni og hjóla í vinnuna á hverjum degi. Þau eiga engan bíl. Fegurðin er mikil. Úti um allt Þýska- land og Evrópu öskra og æpa nýnasistar og hvítrasistar um að innf lytjendur séu skraðræði og að loka eigi löndum og í Bandaríkjunum læsti Trump innf lytj- endabörn inni í búrum til að framfylgja þannig hatursboðskap, og þá gerast svona viðburðir, svona eins og veröldin öll, örlögin, náttúran, sagan og lífið hvísli í einni andrá í eyrað á öllu þessu æsinga- fólki: Þið hafið rangt fyrir ykkur í for- dómum ykkar og hatri. Þið munið alltaf hafa rangt fyrir ykkur. Tyrkneskir innf lytjendur í Þýskalandi, hjón, fundu upp bólefnið við COVID. Og það sem meira er: Þau gerðu það í sam- starfi við Grikkja. Hann heitir Albert Bourla og er yfirmaður Pfizer. Í æsinga- heimum eiga Grikkir og Tyrkir í lang- varandi deilum um eitthvað sem enginn man hvað er. Í raunheimum venjulegs fólks starfar það saman og leitar lausna við ógnarstórum sammannlegum vanda. Svona geta dagarnir aukið manni von. Rauði þráður stórtíðandanna beggja vegna Atlantsála snýst um fólk — sam- starf þess, auðmýkt þess, visku, ábyrgð og hæfni, og sigur þessa fólks í viðureignum við tilvistarlegar ógnir. Og það eru góð skilaboð til barnanna okkar. Tyrknesku hjónin S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 1 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.