Fréttablaðið - 13.11.2020, Side 19
Jóhanna Björnsdóttir fann fljótt
mun á hári sínu og húð með Smoot-
her Skin & Hair. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það hefur sýnt sig að bætiefnin frá Eylíf gera heilsunni gott og auka vellíðan.
Eftir að ég fór að
taka inn Smoother
Skin & Hair fór ég að
finna miklar breytingar
á bæði hári og nöglum,
ásamt því að vera orku-
meiri allan daginn.
Ég ætla svo sannarlega að halda áfram að taka þessa snilldarvöru sem Smoother
Skin & Hair frá Eylíf er,“ segir
Jóhanna Björnsdóttir.
„Eftir að ég fór að taka inn
Smoother Skin & Hair fór ég að
finna miklar breytingar á bæði
hári og nöglum, ásamt því að vera
orkumeiri allan daginn. Stað-
festingu fékk ég svo frá klippar-
anum mínum til margra ára, um
að hárið mitt væri í extra góðu
standi.“
Það besta úr náttúrunni
Bætiefnið Smoother Skin & Hair
frá Eylíf inniheldur þrjú íslensk
næringarefni með margra ára
rannsóknir að baki og sýna niður-
stöður fram á virkni fyrir húð og
hár. Smoother Skin & Hair styður
við heilbrigði húðar og hárs með
góðum og uppbygg jandi undir-
stöðuefnum. Efnin sem valin eru
í blönduna næra húðina og hárið
innan frá, auka raka og viðhal da
heilbrigðum eiginleikum. Að auki
njóta melting og liðir góðs af sömu
uppbyggjandi næringarefnum,
ásamt orkubúskapnum.
Íslenskt, hreint og gott
Active Joints og Smoother Skin
& Hair frá Eylíf eru unnin úr
hreinum íslenskum hráefnum og
Hár og húð í extra góðu standi
Nýjasta bætiefnið frá Eylíf, Smoother Skin & Hair, styður við heilbrigði húðar og hárs með íslensk-
um, náttúrulegum hráefnum. Það hefur auk þess góð áhrif á orkubúskapinn og meltinguna.
fer framleiðsla bætiefnanna fram
á Íslandi. Margra ára staðfestar
rannsóknir liggja að baki öllum
hráefnum. Hjá Eylíf er vandað til
verka og sótt í sjálf bærar auð-
lindir úr sjó og landi. Einungis
íslenskar náttúruafurðir og hrein
hráefni sem ekki eru erfðabreytt
eru notaðar í bætiefnin.
Eylíf vörurnar fást í öllum apó-
tekum, Fjarðarkaup, Hagkaup,
Heilsuhúsinu og Melabúðinni.
Ókeypis heimsending ef keypt er
á eylif.is
Guðrún segist hafa fundið fyrir ýmsum óþægindum árum saman.
„Þrátt fyrir að ég hafi farið í vel
heppnaða hnéaðgerð hef ég verið
gjörsamlega ónýt í líkamanum.
Gat ekkert gengið vegna mikils
sársauka. Ég hef farið til læknis og
prófað að taka inn ýmiss konar
náttúruefni sem áttu að hjálpa og
sömuleiðis hef ég farið í endur-
hæfingu. Það hjálpaði mér talsvert,
en óþægindin héldu áfram að hrjá
mig,“ bætir hún við.
Guðrún sá umfjöllun og
ummæli um Active Joints frá Eylíf
heilsuvörum.
„Ég las innihaldslýsingar og
þær hvöttu mig til að prófa. Einn-
ig hafði vinkona mín mælt með
Active Joints, svo það var ekkert
annað í stöðunni en að prófa. Vá,
ég er þakklát, því eftir einungis
tvær vikur var eins og ég væri
leyst úr fjötrum, eða bönd hefðu
verið skorin utan af mér. Allar
mínar hreyfingar urðu auðveld-
ari og án óþæginda,“ segir hún.
Guðrún segist finna örlítið fyrir
öðru hnénu, en að öðru leyti sé
þetta nýtt og betra líf.
„Undanfarið hef ég ekki getað
stundað æfingar vegna COVID-19.
Það eru tveir mánuðir síðan ég
byrjaði að taka inn Active Joints
og ég get gengið um í dag, sem ég
gat ekki áður með góðu móti. Fyrr í
vetur hélt ég að ég væri útbrunnin,
en svo er aldeilis ekki. Ég get því
hiklaust mælt með Active Joints
frá Eylíf. Það sem ég hef upplifað er
stórkostlegt og ég þreytist því ekki
á að dásama þessa vöru.“
Vörulína frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á þrjár
vörur, Active Joints, Stronger
Bones og Smoother Skin & Hair
sem hafa reynst vel fyrir liðina,
húðina og beinin. Vörurnar eru
unnar úr hreinum, íslenskum
hráefnum, framleiðslan fer fram
á Íslandi og öll hráefnin koma úr
sjálf bærum auðlindum.
Ólöf Rún Tryggvadóttir er
stofnandi vörulínunnar Eylíf,
en hugmyndin að henni kom til
vegna þess að hana langaði að
setja saman þau frábæru hráefni
sem eru framleidd á sjálf bæran
hátt úr náttúrulegum auðlindum
á Íslandi og auka þannig aðgengi
fólks að þessum hráefnum. Fram-
leiðslan fer fram á Grenivík og
þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís.
Eins og áður segir eru þrjár teg-
undir frá Eylíf komnar á markað,
Active Joints, Stronger Bones og
Smoother Skin & Hair, og er ný
vara fyrir meltinguna væntanleg
snemma á nýárinu.
„Active Joints inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og
margra ára rannsóknir sýna fram
á jákvæð áhrif þeirra á heilsu
beina, liðamóta, meltingar, húðar
og tanna. Það hefur áhrif á liði,
eykur sveigjanleika þeirra, styrkir
bandvef og verndar beinin, eykur
orku ásamt því að melting, húð,
neglur og hár njóta góðs af,“ segir
Ólöf Rún.
„Við vöndum til verka og
sækjum í sjálf bærar auðlindir úr
sjó og af landi. Við notum hreina,
íslenska náttúruafurð, náttúru-
leg og hrein hráefni sem ekki eru
erfðabreytt og stuðla að sveigjan-
legri liðum, því með sveigjanlegri
líkama erum við færari til að
takast á við verkefnin í dagsins
önn.“
Hrein hráefni
og sjálfbær framleiðsla
„Eins og áður sagði notum við
hrein, íslensk hráefni sem eru
framleidd á sjálf bæran hátt í
Eylíf-vörurnar,“ segir Ólöf Rún.
„Þau helstu eru kalkþörungar,
GeoSilica-kísill, smáþörungar
(astaxanthín) og íslenskar jurtir.
Kalkþörungarnir vaxa villtir
neðansjávar við Vestfirði og finn-
ast helst í Arnarfirði, þar sem þeir
eru tíndir neðansjávar. Áhrif og
virkni þeirra eru einstök og þeir
hafa verið rannsakaðir mjög ítar-
lega undanfarin ár.”
Margar rannsóknir hafa stað-
fest einstaka eiginleika þeirra og
góð áhrif á líkamann: þeir styrkja
beinvef, vernda beinin, hafa góð
áhrif á meltinguna og húðina,“
segir Ólöf Rún.
GeoSilica er náttúrulegur
hágæðakísill, sem er tekinn úr
náttúrulegu jarðhitaefni við
Hellisheiðarvirkjun.
„Kísillinn hefur öflug
áhrif á bandvef og beinvef,
hann styrkir húðina og
eykur teygjanleika hennar.
Kísillinn er líka talinn góður
fyrir beinin, örvar hárvöxt
og styrkir neglurnar, brjósk-
myndun og æðakerfið. Virkni
hans hefur verið staðfest með
rannsóknum,“ upplýsir Ólöf Rún.
Rannsóknir hafa líka staðfest
virkni astaxanthín, eða smáþör-
unga, sem er öflugt andoxunar-
efni.
„Astaxanthín hefur einstaka
eiginleika og góð áhrif á líkamann
og má nefna öfluga virkni fyrir
húðina, vöðvana, blóðrásina,
hjartað og heilann. Það reynist
vel fyrir ónæmiskerfið og sjónina
og virkar sem innri sólarvörn
fyrir húðina, ásamt því að auka
teygjanleika og mýkt hennar, en
margar rannsóknir hafa staðfest
þessi áhrif.“
Astaxanthín er framleitt í
lokuðu kerfi með hreinu, íslensku
vatni, en framleiðslan er bæði
vistvæn og sjálf bær og fer fram í
Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
„Allar jurtirnar sem eru notaðar
í Eylíf-vörulínuna eru handtíndar
og þurrkaðar af íslensku fyrirtæki
í Hafnarfirði. Birkilauf sem notuð
eru í Active Joints hafa verið notuð
frá örófi alda við ýmsum kvillum
og hafa vatnslosandi eiginleika,“
segir Ólöf Rún.
Þess má geta að engar
dýraafurðir eru í Active Joints og
Stronger Bones.
Nánari upplýsingar á eylif.is
Ég get því hiklaust mælt með Active
Joints frá Eylíf. Það sem ég hef upp-
lifað er stórkostlegt og ég þreytist
því ekki á að dásama þessa vöru,
segir Guðrún. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Eins og leyst úr fjötrum
Guðrún Jónsdóttir uppgötvaði Active Joints frá Eylíf eftir að hafa lengi fundið fyrir óþægindum.
Hún segir það hafa verið dásamlega upplifun að öðlaðist nýtt og betra líf með Active Joints.
Smoother Skin & Hair:
n Mýkir húðina og hárið
n Styrkir neglur og bandvef
n Öflug andoxun
n Gott fyrir þarmaflóruna
n Virkar vel á meltinguna
n Viðheldur sveigjanleika og
eykur liðleika
Inniheldur:
n Kollagen
n Smáþörunga (Astaxan thin)
n GeoSilica
n Vítamín A, B2, B6, C, D3
n Bíótín
n Níasín
n Kopar
n Zink
n Joð
n Selen
n Magnesíum
Bætiefnin Stronger Bones og Active Joints frá Eylíf heilsuvörum.
Útsölustaðir:
Öll apótek,
Heilsuhúsið,
Hagkaup,
Melabúðin,
Fjarðarkaup og
eylif.is
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 1 3 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0