Safnablaðið Kvistur - 2019, Síða 7

Safnablaðið Kvistur - 2019, Síða 7
7 Hilmar J. Malmquist 1.a. Ég tel að nýja skilgreiningin bæti fremur litlu við fyrir starfsemi safna 21. aldar miðað við gildandi skilgreiningu. Sumt í nýju skilgrein- gingunni er góð viðbót, einkum atriði sem snúa að samfélagslegri ábyrgð og umhverfismálum. Nýja skilgreiningin er hins vegar mun lengri en sú fyrri og flóknari og álitamál hvort hægt sé að kalla þetta skilgreiningu, fremur yfirlýsingu um stefnu og gildi. Ég er einnig ósáttur við það hvernig nýju viðbæt- urnar eru orðaðar, t.d. varðandi um- hverfismálin þar sem segir á ensku efnislega að: museums contribute to planetary wellbeing. Þetta er að mínu mati of veikt og óljóst orðað. Nær hefði verið að lýsa yfir að söfn stuðli með starfsemi sinni að aukn- um skilningi á menningu, náttúru og umhverfi og tengslum þar á milli og takist á við ógnir og aðkallandi vandamál sem snerta mannkyn og náttúru, þ. á m. hlýnun jarðar vegna loftslagsbreytinga, plastmengun o.fl. Þá er ég mjög ósáttur við íslensku þýðinguna á nýju skilgreiningunni, sem er allt of hástemmd og tyrfin. Orðanotkun þar er undarleg og óskiljanleg á köflum, samanber „Söfn eru fjölradda, innigildandi rými“ og síðar „Söfn viðurkenna og ávarpa átök og áskoranir“. Hér þarf að vanda betur til íslenskrar tungu þannig að lesandinn skilji með auð- veldum hætti hvað átt er við. 1.b. Nýju kröfurnar lúta einkum að því að starfsemi safna skuli beinast í meira mæli en áður að sam- félagslegum þáttum líðandi stundar – að söfn verði virkari þátttakendur í og standi vörð um þætti á borð við menningarlega fjölbreytni og jafnrétti hvers konar, sem er tví- mælalaust af hinu góða. Ég tel að líta beri á söfn sem lýðræðislegar þjónustustofnanir, grunnstoðir í mennta– og upplýsingakerfi þjóða í þágu almennings. Söfn búa yfir mannauði og faglegri þekkingu sem má að mínu viti nýta betur til að taka þátt í samfélags– og þjóðmálar- umræðunni. 2.a. Ég tel að söfn hér á landi geti og eigi almennt að hafa sig í frammi þegar um er að ræða umfangsmikil og/eða þýðingarmikil málefni sem snerta almannahag, svo sem hnatt- rænar áskoranir á borð við hlýnun jarðar, plastmengun i höfunum, eyðingu búsvæða og rýrnun líffræði- legs fjölbreytileika. Þetta eru mál- efni sem Náttúruminjasafn Íslands vinnur með og þekkir til. Þetta gild- ir einnig um staðbundin málefni og ágætt dæmi um það er ágreiningur hér á landi um hvalveiðar. Áskoranir af þessu tagi eru þess eðlis að söfn á öðrum sviðum geta einnig unnið með þær út frá sínum sjónarhóli og sérþekkingu. Þátttaka safna í þessu samhengi felst þá í því að halda til haga gögnum og upplýsingum sem hvíla á faglegum, vísindalegum grunni, sem og að gæta að jafnræði og kynna til sögunnar ólík sjónar- mið og skoðanir. 2.b. Það held ég ekki. Þetta helst í hendur, þ.e.a.s. að virk þátttaka og framlag í mikilvægum sam- félagslegum málum er afleiðing og grundvallast bæði á öflugri og vandaðri rannsókna– og safnastarf- semi, þ.m.t. varðveislu á munum og vitnisburði. Opið aðgengi að menn- ingar– og nátúruarfinum er einnig snar þáttur í því að halda starfsemi safna virkri. Hætt er við að safn sem hefur ekki bolmagn til rannsókna og akademískrar vinnubragða hafi ekki mikið til málanna að leggja sem hægt er að reiða sig á. Á hinn bóginn geta þau og eiga ekki að sinna öllum málum sem eru efst á baugi hverju sinni. Þátttakan veltur m.a. á eðli og gerð málsins sem um ræðir og tengslum við sérsvið safnanna. Hilmar J. Malmquist er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands Núverandi skilgreining: Safn er varanleg stofnun opin almenningi, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni heldur í þágu þjóð- félags og framþróunar og hefur það hlutverk að safna efnislegum heimildum sem snerta manninn og umhverfi hans, standa vörð um þær, rannsaka þær, miðla upplýsingum um þær og hafa þær til sýnis, svo að þær megi nýtast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar.

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.