Harmonikublaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 2

Harmonikublaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 2
Ávarp formanns Ágætu harmonikuunnendur Ég vil byrja á að þakka öllum þeim aðildar- félögum er stóðu fyrir harmonikumótum í sumar. Þessi mót voru hin glæsilegustu og augljóst að félögin lögðu allt sitt í að gera þessi mót sem vönduðust og er ótrúlegt að sjá hvað allir er að mótshaldi koma leggja mikið á sig til þess að gera mótin sem skemmtilegust. Fyrsta mót sumarsins var í Básnum í Ölfusi á vegum Harmonikufélags Selfoss. Þetta mót fór fram í góðu veðri og var aðsókn að mótinu með besta móti. Boðið var upp á dansleiki og skemmtilega tónleika á laugardeginum. Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum og Nikkolína voru með sitt mót á Laugarbakka í Miðfirði og því miður átti ég þess ekki kost að mæta þar, en mér hefur verið sagt að þetta hafi verið skemmtilegt mót og vel sótt. Félag harmonikuunnenda í Skagafirði hélt sitt mót að þessu sinni að Steinsstöðum í Skagafirði og tókst það mót mjög vel að sögn þeirra er sóttu mótið og ég hefi hitt. Harmonikuunn- endur Vesturlands boðuðu fólk í Fannahlíð í síðasta skipti að þeirra sögn. Þar fór fram að margra mati eitt þeirra besta mót í einstakri veðurblíðu. Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð og Harmonikufélag Þingeyinga voru með sitt mót síðustu helgina í júlí að Breiðumýri í Reykjadal. Þetta mót hefur mér alltaf þótt í gegn um árin vera eitt skemmti- legasta mótið og það er umhverfið og stað- setningin sem gefur þessu móti svo skemmtilega umgjörð. Dansað í samkomu- húsinu og eins í stóru tjaldi, sem gerir stemminguna á staðnum einstaka. Síðasta mót sumarsins var að Varmalandi í Borgarfirði og stóð Félag harmonikuunnenda í Reykjavík fyrir þessu móti, eins og undan- farin ár. Þarna ríkti gleði og góð stemming, enda veðurguðirnir mótshöldurum hagstæðir þetta árið. Dansleikir föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Einnig var boðið upp á stórgóða tónleika á laugardeginum þar sem sænski harmonikusnillingurinn Magnus Jons- son sá um að skemmta tónleikagestum. Þetta var frábært mót í óvenjulega góðu veðri. Starf stjórnar sambandsins hefur verið með hefðbundnu sniði þetta starfsárið og hefur stjórnin haldið fjölmarga símafundi á starfs- árinu. Helstu verkefni sem lágu fyrir stjórn- inni voru að halda æfingabúðir fyrir ung- mennin okkar, en því miður varð ekkert af þessu verkefni vegna ónógrar þátttöku. Það virðist ekki vera áhugi fyrir þessu verkefni og tel ég ástæðuna vera fyrst og fremst kostnað- urinn, sem hefur hækkað óheyrilega síðustu ár. Ég á ekki svar við því hvernig við getum brugðist við þessu en þetta mál þarf að skoða ofan í kjölinn. Stjórn S.I.H.U. ætlar að halda fjáröflunardansleik í samkomuhúsinu Iðnó við Tjörnina í Reykja- vík á haustdögum. Það er von okkar í stjórninni að þessi samkoma geti skilað sambandinu smá tekjuauka. Sam- starf S.I.H.U. og sjónvarpsstöðvarinnar INN mun halda áfram á komandi vetri og hefur undirritaður nú þegar tekið upp tvo þætti á Egilsstöðum. Fyrsti þáttur verður sýndur síðustu helgina í september og síðan einn þáttur í mánuði yfir vetrartímann. Þetta verk- efni er háð því að hægt verði að fjármagna þessa þætti með sölu auglýsinga til fyrirtækja og félagasamtaka. Það var stjórn sambandsins mikið gleðiefni að Harmonikufélag Vestfjarða ætlar að standa fyrir Landsmóti árið 2017. Stjórn sambands- ins mun reyna eftir megni að veita þeim alla aðstoð við framkvæmd þessa móts. Aðalfundur S.I.H.U. verður haldinn dagana 18. - 20. september nk. á Hellu á Rangár- völlum og er það Harmonikufélag Rangæinga sem ber hita og þunga af þessum aðalfundi, enda munu Rangæingar fagna 30 ára afmæli þessa sömu helgi. Það er von okkar að öll aðildarfélög sendi formann og fulltrúa á fund- inn og að fundurinn verði sem málefnaleg- astur, eins og alltaf. Að lokum er það von mín að vetrarstarf harmonikufélaganna í landinu verði skemmti- legt og fjölbreytt í vetur. Gunnar Kvaran, formaður Sagnabelgurinn Helvítis harmonikuleikarinn Fyrir allnokkrum árum, tók ég undirritaður að mér að fara með í óvissuferð hjá ónefndu fyrir- tæki hér í borg. Hlutverk mitt var að þenja dragspil í ferðinni, svona eftir því sem aðstæður og tækifæri gæfu tilefni til. Við eftirgrennslan um það, við hvernig aðstæður ég ætti að spila, þá var því svarað að það yrði eingöngu innan- húss, eða eftir atvikum í rútunni. Þennan dag sem ferðin skyldi farin, hittist svo á að í stórfjölskyldunni var verið að skíra barn, þannig að þar mætti ég áður en farið skyldi í ferðina. Þangað var ég síðan sóttur, á tilsettum tíma og fór eins og ég stóð í mínu „fínasta pússi“, en ekki beinlínis skjólklæddur enda átti aðeins að spila innandyra. Tekið skal fram að þetta var í september, þannig að allra veðra var von. Skemmst er síðan frá að segja, að „innandyra" var gömul og gisin hlaða, meira og minna opin í allar áttir og veðrið var að sjálfsögðu norðan kuldaþræsingur með hvössum regnhryðjum og hitastigið „innandyra“ eftir því. Þarna var síðan grillað og kvöldverðar neytt. Þrátt fyrir aðstæður reyndi ég að kvelja einhver hljóð úr nikkunni og voru undirtektir allgóðar og var meira að segja nokkuð um að fólk tæki undir með söng. En það verður að viðurkennast að spila- mennskan, sem aldrei hefur nú verið merkileg, var ekki til þess að hrópa húrra fyrir, króklopp- inn og með munnherkjur af kulda. Þegar líða fór á kvöldið var síðan farið að huga að heimferð, gekk að óskum að komast af stað og var haldið sem leið lá til höfuðborgarinnar. Nokkuð var um að fólk væri orðið „góðglatt", en allt var það í hófi. Er ekið hafði verið um stund, kom fram ósk um að ég tæki aftur til við spilamennsku og þar sem mér var nú heldur farið að hlýna, þá lét ég ekki hjá líða að verða við þeirri ósk. Var nú tíðindalaust um hríð. Er ekið hafði verið sem svaraði helmingi leiðar til borgarinnar, þá uppgötvuðu tveir ungir menn úr hópnum að hægt væri að fá afnot af hljóðkerfi rútunnar og þar með að skemmta fólki með gamansögum nokkrum. Gerði ég þá hlé á nikkuspili, en lagði þó hljóðfærið ekki frá mér að sinni. Fljótlega varð ljóst að gamansögur ungu mannanna voru nær eingöngu „neðan mittis“ húmor og eftir því sem á leið, virtust þeir komnir í nokkurs konar keppni um það hvor gæti sagt djarfari sögur. Þegar svo hafði gengið um hríð og sögurnar gerðust æ grófari og raunar orðið vafamál að kalla þær gaman- sögur, þá varð eldri manni sem sat skammt frá mér að orði: „Er nú ekki hægt að stoppa rútuna og henda þessum helvítis fíflum út.“ Heyrði ég þá unga stúlku sem sat rétt fyrir aftan mig tauta í lágum hljóðum: „Hendið þið þá þessum HELVÍTIS HARMONIKULEIKARA út líka.“ - Svo mörg voru þau orð. Páll Elíasson 2

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.