Harmonikublaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 13
dagskvöldinu og Magnus Jonsson leysti þá síðan
af og fór létt með. Sveinn Sigurjónsson var næstur
á svið og helginni lauk síðan, sá er hóf hana,
Erlingur Helgason. Samkvæmt venju mynduð
gestir hring á dansgólfinu klukkan eitt og sungu
„Hvað er svo glatt“. Þeir taktmælarnir Helgi E.
Kristjánsson gítarleikari, Hreinn Vilhjálmsson
bassaleikari og Eggert Kristinsson trommari stóðu
vaktina alla helgina og Númi Adólfsson hljóp
undir bagga, þegar þess þurfti. Var síðan haldið
út í ágústnóttina og tekið til við að spila aðeins
meira.
Þessari fimmtu Varmalandshátíð var að ljúka.
Flestir héldu til síns heima á mánudeginum, en
nokkrir framlengdu.
Bent er á sérstaka myndasíðu frá Varmalandi. Þar
eru margar stórkostlegar myndir frá mótinu.
www.harmoniku-unnendur.com
Texti:Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Sigurður Harðarson
Sólskinstund á Varmalandi
Magnus Jonsson heillaði áheyrendur
Sigurpór Kristinsson 12 ára og Bragi Hlíðberg 92 ára, yngsti og elsti harmonikuleikarinn
á Varmalandi
Stjörnupolkinn tekinn meðglœsibrag
13