Harmonikublaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 19
Harmonikudagurinn á Selfossi
Harmonikufélag Selfoss var með opið hús
laugardaginn 2. maí í Tryggvaskála í tilefni
Harmonikudagsins, sem haldinn er árlega
um allt land.
Létt og skemmtileg harmonikutónlist var flutt
af félögum HFS og gestaspilurum frá Reykja-
vík, Akranesi og einnig tóku þátt nokkrir
félagar okkar frá Harmonikufélagi Rangæinga.
Harmonikufélag Selfoss byrjaði skemmtunina,
en með þeim léku Guðmundur Samúelsson
og Alfhildur Alfþórsdóttir á harmonikur og
stjórnandi Harmonikufélags Selfoss, Helgi E.
Kristjánsson á gítar og bróðir hans Smári
Kristjánsson á kontrabassa.
Næstir á svið voru kunnir kappar frá Harmo-
nikufélagi Vesturlands, þeir Jón Heiðar, Geir
Guðlaugsson og Gestur Friðjónsson. Harmon-
ikukvintett eldri nemenda Guðmundar Samú-
elssonar lék því næst nokkur lög, en hann
skipa Álfhildur Alfþórsdóttir, Bjarni Gunn-
arsson, GuðmundurÆgirTheodórsson, Helgi
E. Kristjánsson og Hreinn Vilhjálmsson, en
síðan tóku félagar Harmonikufélags Rang-
æinga við keflinu. Grétar Geirsson lék nokkur
sving- og jasslög og síðan kom dúett frá vin-
unum Guðmundi Samúelssyni og Grétari
Geirssyni og færðist þá heldur betur fjör í
spilamennskuna. Harmonikufélag Selfoss lauk
svo skemmtuninni með nokkrum lögum.
Bræðurnir Helgi og Smári spiluðu undir allan
tímann og gerðu það vel eins og þeirra er von
og vísa.
Töluverður fjöldi gesta mætti í Tryggvaskála
og hlustaði á þessa löngu dagskrá og var
almenn ánægja með hvernig til tókst.
Texti og myndir: Guðmundur Theodórsson
Harmonikufélag Selfoss í hátíðarskapi
Jón Heiðar, Geir og Gestur frá Harmonikuunnendum Vesturlands með nikkurnar ásamt brœðrunum og Smára og Helga
E. Kristjánssonum
19