Harmonikublaðið - 01.09.2018, Qupperneq 10

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Qupperneq 10
Aðalfundurinn var haldinn í maí og þá urðu nokkrar breytingar. Fyrsti kvenfomaður félagsins, Elísabet Halldóra tók við keflinu að nýju og varaformaður er Gyða Guðmunds- dóttir, gjaldkeri Haukur Ingibergsson, ritari Ásgerður Jónsdóttir og meðstjórnandi Steinþóra Ágústsdóttir, varamenn eru Harpa Ágústsdóttir og Sveinn Sigurjónsson. I skemmtinefnd er æviráðinn og ákaflega Bodö trekkspillklubb leikurfyrir dansi áhugasamur náungi um harmonikuna, Friðjón Hallgrímsson, með honum eru Sigurður Harðarson eðalljósmyndari, Páll Elíasson ofurrútubílstjóri, Steinþóra fyrrverandi formaður, Erlingur hinn harmonikuhressi, Kristinn hennar Lísu og hin gjörvilega Guðrún Erla harmonikuleikari. Borgarhátíðin og landsmótið 2020 voru aðalumræðuefni fyrsta fundar stjórnarinnar. Við erum mjög sátt eftir Borgarhátíðina og síðasti aðalfundur félagsins samþykkti að félagið standi að næsta landsmóti SIHU, sem 10 haldið verði í Stykkishólmi árið 2020. Er undirbúningur hafinn að því verkefni. Félagsmenn okkar hafa verið ákaflega iðnir við að mæta á öll skemmtilegu harmonikumót sumarsins sem hófust í byrjun sumars á Borg í Grímsnesi. Um miðjan júní stormaði fríður flokkur líka á Laugarbakka í Miðflrði og sumir skunduðu áfram á Steinsstaði í Skagafirði og enn aðrir fundust í Fannahlíð við Akraíjall og Ýdalahátíðin í Þingeyjarsýslu dró að sér marga og nokkrir fóru á ballið í Valaskjálf sér til mikillar ánægju. Margir brugðu sér á Borg um verslunar- mannahelgina og komu víðs vegar að af landinu og veðrið lék við okkur. Við fengum heimsókn frá Norðmönnum sem komu frá Bodö og kalla sig Bodö-trekkspillklubb, ákaflega þægilegur hópur, en formaður félagsins er Knut Skjemstad og höfðu þau pantað sér gistingu í sumarhúsum að Minni- Borgum. Páll Elíasson sá um rútu fyrir þau og Friðjón annaðist annan undirbúning. Þau óskuðu eftir að fá að spila í kirkju og Friðjón fékk Reykholtskirkju fyrir tónleika, að loknu ferðalagi um Borgarfjörð undir leiðsögn Hilmars Hjartarsonar. Þeim þótti Friðjón vera spar á dansspilamennskuna að Borg og vildu koma fram á hverju danskvöldi og tónleikunum og því var snarlega kippt í liðinn. A Borg er þetta líkt og í Ydölum fólk kemur á þriðjudegi eða miðvikudegi til að tryggja sér svæði og Guðmundur staðarhaldari er mjög Iipur í samningum. Mikið fjölmenni var strax á föstudeginum og dansþátttaka alveg frábær. Tónleikarnir á laugardag voru mjög vel sóttir. Áður en tónleikarnir hófust kallaði formaður þá Reyni Jónasson og Sigurð Alfonsson á svið og færði þeim þakkarkveðju fyrir hljóm- sveitarstörf undanfarinna ára í þágu félagsins og þeir opnuðu tónleikana með nokkrum velvöldum dúettum við fögnuð áheyrenda. Bodö klúbburinn tók svo við og Astrid B. Dolmen kynnti lögin og sagði aðeins frá starfsemi hópsins á norsku sem ég held að flestir hafi skilið því ég bað hana um að tala rólega. Það var virkilega gaman að hlusta á margs konar lög úr ýmsum áttum. FHUR bauð Bodö-hópnum svo upp á kaffi og meðlæti og fengu þeir afganga með sér í bústaðina. Hópur hljóðfæraleikara safnaðist fyrir framan félagsheimilið að loknum tónleikum og spiluðu og sungu. EG tónar voru með markað í íþróttahúsinu og fleiri með handverksmarkaði með fallegum verkum. Dúndur aðsókn var að laugardagsballinu en nú stóðum við fast á að skerða ekki dansgólfið enda nóg af sætum upp á sviðinu bak við hljómsveitina. Þetta varð hin besta skemmtun og svefninn var sæll að loknum degi. Á sunnudag var áfram markaður og þá komu Norðmennirnir í runnaspil (buskspel) eða túnsamspil eins og við verðum að nefna það. Þar var mikil gleði við völd og margir spiluðu, sungu, hlustuðu eðaprjónuðu. Nokkuð fleiri tóku þátt í sunnudagsdansinum heldur en í fýrra. Það var mál manna að virkilega vel hefði tekist til með þessa hátíð enda eru harmonikuvinir einstök fjölskylda sem við erum hjartanlega þakklát fyrir. Staðurinn hefur verið pantaður að ári hjá okkar ljúfu, Láru húsverði og gjörvilegum Guðmundi staðarhaldara. Hittumst heil að ári! HarmonikukveSjur frd Elísabetu Halldóru Einarsdóttur formanni FHUR Myndir: Reynir Elíesersson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.