Harmonikublaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 21

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 21
onatansson Höfundur lagsins að þessu sinni er Karl Jónatansson. Karl fæddist á bænum Blikalóni á Melrakkasléttu 24. febrúar 1924. Harmonikan var löngum í hávegum höfð á Melrakkasiéttunni og þar var sagt að strákar spiluðu á harmoniku og stelpur á gítar. Karl flutti ungur að árum með foreldrum sínum að Krossanesi við Eyjafjörð. Hann varð mjög fljótt liðtækur harmonikuleikari enda hæfíleikaríkur í meira lagi og var farinn að leika á dansleikjum um tvítugt, þegar hann flutti til Reykjavíkur. Ekki skemmdi fyrir að hann var góður saxofónleikari og lék ágætlega á klarinett. Þá þótti gott að geta breytt venjulegri danshljómsveit í jassband á einu augabragði. Karl var ágætur dansspilari og stjórnaði danshljómsveitum árum saman í höfuðstaðnum. Mjög fljótlega eftir komuna suður fór hann að segja öðrum til, en það átti ágætlega við hann. Með tímanum varð hann afkastamesti harmonikukennari landsins og ákaflega vinsæll meðal nemendanna, sem skipta hundruðum, á þeim fimm ártugum sem hann kenndi harmonikuleik. Karl átti frumkvæði að stofnun Félags harmonikuunnenda í Reykjavík og síðar Sambands íslenskra harmonikuunnenda. Karl var ekki gamall þegar fyrstu lögin urðu til og hann samdi fjöldann allan af góðum lögum. Upp í hugann koma lög eins og Vestanvindur, rællinn Austangjóla, Norðannepja, Krossanesminni, Sumarfrí og Bærinn okkar Akureyri svo einhver séu nefnd. Eftirlifandi eiginkona Karls er Sólveig Björgvinsdóttir og eignuðust þau tvo syni. Héraði Starf Harmonikufélags Héraðsbúa hefur gengið vel á árinu. Hefðbundnir viðburðir hafa verið á dagskrá auk annarra sem efnt hefur verið sérstaklega til. Á bóndadaginn spiluðu tveir félagar í leikskólum á Egilsstöðum. Voru leikin lög tengd þorranum og eins almenn danslög. Undir nokkrum lögum voru dansaðir þjóðdansar. Forráðamenn leikskóla á Egilsstöðum hafa í allmörg ár haft samband við harmonikufélagið og fengið spilara á bóndadaginn til að leika fyrir börnin. Hefur þetta samstarf verið með ágætum. Dagur harmonikunnar, 5. maí, var haldinn hátíðlegur hjá félaginu með því að félagar tóku nikkurnar með sér á nokkra valda staði á Egilsstöðum. Spilað var í Húsasmiðjunni, Nettó og Dyngju sem er hjúkrunarheimili á Egilsstöðum. Undirtektir voru góðar á þessum stöðum. Eftir áramót var sá háttur hafður á að haldin voru böll í Hlymsdölum sem er félagsmiðstöð eldri borgara á Fljótsdalshéraði. Var spilað fyrir dansi einu sinni í mánuði á laugardagskvöldum frá febrúar og til vors. Böllin stóðu frá klukkan átta til ellefu. Aðsókn var mjög góð og mikið dansað. Að auki var reglulega spilað fyrir íbúa á Dyngju. Gott samstarf hefur verið milli félagsins og félags eldri borgara á Héraði. I júlí fóru Héraðsmenn norður í land og spiluðu á sumarhátíðinni í Ydölum í Aðaldal. Pdlmi Stefdns, Jón, Gylfi og Jónas í Ýdölum Fjórir tóku þátt í spilamennskunni fyrir hönd Héraðsmanna. Spiluðu þeir bæði á föstudags- og laugardagskvöld. Spilamennskan gekk vel og allir komu ánægðir heim. Áralöng hefð er fyrir síðsumarballi harmonikufélagsins og var það haldið síðustu helgina í ágúst. Eins og venja hefur verið komu góðir gestir úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum auk þess sem fólk kom úr Reykjavík. Spiluðu bæði heimamenn og gestir fyrir dansi. Á ballinu voru hátt í 200 manns og var mikið fjör. Var mál manna að ballið hefði verið mjög vel heppnað í alla staði. Eins og sjá má á þessum skrifum þá er Harmonikufélag Héraðsbúavel álífi. Starfsemi félagsins hefur gengið vel á árinu og áfram verður haldið á sömu braut. Jón Sigfússon formaður Harmonikufélags Héraðsbúa Mynd: Siggi Harðar 21

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.