Harmonikublaðið - 01.09.2018, Page 13
Skoski dansinn á Borg
Marsúrkinn verður að vera með
Garðars Olgeirssonar að Ijúka ballinu og var
aðdáunvert hve stór hluti dansgesta dansaði
lengi.
Sunnudagurinn heilsaði með sól í heiði og
fljótlega hljómuðu harmonikutónar víða um
svæðið. Strax upp úr hádeginu mætti svo
norski hópurinn og hóf að leika af hjartans
lyst. Fjölgaði spilurum jafnt og þétt og varð
úr hin besta skemmtun. Eftir matinn var tími
til að snúa sér að dansinum. Erlingur Helgason
var fyrstur á svið um kvöldið og sem áður
hópuðust harmonikuunendur í dansinn.
Reyndist Erlingi það létt verk að halda þeim
á gólfinu, en Vindbelgirnir tóku síðan við af
honum um tíu leytið. Þeirra framlagi var
ágætlega tekið og mikið stuð í húsinu þegar
Bodöklúbburinn mætti klukkan ellefu og lauk
þessari danshátið FHUR. I lokin kölluð þeir
á svið þá forsvarsmenn FHUR, sem skipulagt
höfðu heimsóknina og veitu þeim viður-
kenningar fyrir mótttökurnar, sem að þeirra
sögn höfðu farið fram úr þeirra björtustu
vonum. Mánudagurinn fór að mestu í kveðjur
og loforð um að mæta að ári hvað sem á dyndi.
Það var lítiðfarið að draga afliðinu á sunnudagskvöldinu
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Reynir Elíesersson
i
I
HARMONIKA TIL SÖLU!
Victoria A 400V Principe II Trebl 41 Bass 120
Reeds T/4 B/5 Register T/11 B/7
og Cassotto.
Einnig með Condenser Microphoner.
Árgerð 2007, verð kr. 380.000.-
Upplýsingar í síma 8990700 (Baldur)
og í netfangi ( bg@snerpa.is)
13