Harmonikublaðið - 01.09.2018, Síða 15

Harmonikublaðið - 01.09.2018, Síða 15
Voru margir hljóðfæraleikarar á Flateyri? A Flateyri var nóg af góðum harmon- ikuleikurum. Margir þekkja Villa Valla sem er Flateyringur og reyndar nágranni minn. Bróðir hans, Guðmundur, var flinkur hljóðfæraleikari, lék á harmoniku og trompet. Hann spilaði um skeið í hljómsveitum í Reykjavík, til dæmis með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Auk þeirra bræðranna man ég eftir fimm ágætum harmonikuleikurum á Flateyri sem hlýtur að teljast gott í ekki stærra þorpi með íbúafjölda upp á liðlega fjögur hundruð manns. Þessir nikkarar spiluðu á Flateyri og víðar um norðanverða Vestfirði. Manstu eftir einhverju sögulegu við dansleiki fyrir vestan? Einu sinni var Guðmundur einn að spila á balli á Flateyri, spilaði á harmonikuna en hafði trompetið með sér eins og hann gerði stundum og spilaði þá stundum á það nokkur lög og systir hans, hún Sara, spilaði undir á píanó. Ballið var rétt að byrja, fáir mættir og aðeins eitt par að snúast á gólfinu - karlmaðurinn mikill á veili og gat verið fyrirferðarmikill við vín en gerði aldrei flugu mein. Að laginu loknu hrópar hann: „Eg drep þig helvítið þitt Guðmundur ef þú spilar ekki polka“ og steytir hnefa. Guðmundur leggur frá sér nikkuna, tekur trompetið og spilar „Erla góða Erla“ - Rumurinn á gólfinu hlustar undrandi en svo sígur hinn kreppti hnefi og um það er laginu lauk sáust tár á hvarmi. Þetta er eftirminnileg sena. Var mikið um dansleiki fyrir vestan á þínum sokkabandsárum? Það var víða dansað í Vestur-Isafjarðarsýslu á sumrin. Sýslan náði yfir norðurströnd Arnarfjarðar, Dýrafjörð, Önundarfjörð og Súgandafjörð. A þessu svæði var dansað á ellefu stöðum á mínum unglingsárum. A sumum þeirra aðeins einu sinni á sumri. Einn þessara staða, Rani í Hvammi í Dýrafirði, gekk þó fljótt úr skaftinu. Það hafði upphaflega verið íbúðarhús, en þegar eigandinn flutti inn á Þingeyri breytti ungmennafélagið því í samkomuhús Ég var á síðasta ballinu sem þar var haldið. Ætli dansgólfið hafi ekki rúmað svona fimmtán pör með góðu móti. Þessum dansleik lauk þegar annar endi gólfsins gafsig og seig hægt og rótt ofan í grunninn, var þá sjálfhætt. Á öllum þessum böllum var spilað á eina harmoniku, einstaka sinnum tvær, kannske lamið á trommur eftir eyranu - í þorpunum leikið undir á píanó. Var fjölbreytt félagslíf á Flateyri? Það er óhætt að segja að félagslíf á Flateyri hafi verið öflugt. Þar störfuðu auðvitað klassísk félög eins og kvenfélag, slysvarnarfélag og íþróttafélag. Þar að auki öflugt leikfélag. A sumrin var ekki mikið um dansleiki á staðnum nema á sérstökum fagnaðardögum svo sem sjómannadegi, lokadegi 11. maí og þjóð- hátíðardaginn, ekki mörg böll þar fyrir utan. Þar var annað uppi á teningnum kringum jól og áramót. Þá kom heim margt ungt fólk í jólafríi úr skólum eða úr atvinnu annars staðar. Þá var nú aldeilis tekið til óspilltra málanna. Ég man eftir ellefu böllum í sama jólafríi. Það var byrjað á Þorláksmessu - hlé á aðfangadag en byrjað aftur á miðnætti á jóladag og síðan á hverju kvöldi. Það þurfti ekki langan undirbúning, fá einhvern til að spila og fá lánað félagsheimilið. Það fengum við endurgjaldslaust með því eina skilyrði að þrífa effir ballið. Einhverjir gáfumenn á þingi höfðu komist að þeirri niðurstöðu að það væri óhollt og varasamt að dansa lengur en til klukkan tvö eftir miðnætti. Á sumrin, þegar allir vegir voru færir og samgangur greiður milli byggðarlaga voru þessi ákvæði jafnan í heiðri höfð. En um hávetur, þegar þorpið var einangrað, gegndi öðru máli. Við gengum samt á fund hreppstjórans, svona í upphafi „vertíðar" og báðum um leyfi til að dansa lengur en til klukkan tvö. Hreppstjóri sagði það ekki í sínu valdi að leyfa slíkt - en bætti brosandi við „annars geri ég ráð fyrir að vera sofnaður klukkan tvö.“ Hann lét ekki einhverja reglugerð standa í vegi fyrir góðri skemmtun. Það var líka þannig að böllin stóðu fram eftir nóttu. Einu sinni ákváðum við að dansinn skyldi standa þangað til kona í næsta húsi við félagsheimilið færi í vinnuna og það var gert. Sá dansleikur endaði klukkan hálf átta. Þegar nikkarinn varð þreyttur var gert hlé og farið í leiki eða bara setið og spjallað. Á þessum árum var áfengisneysla meðal unglinga á Flateyri nánast óþekkt. Það vissi hreppstjórinn og hafði ekki áhyggjur af samkomum þeirra. Þessar endurminningar um dansleikjahald sem hér hafa verið rifjaðar upp eru frá unglingsárum mínum og eiga aðeins við heimahaga. Undir lok sjötta áratugar síðustu aldar breytist myndin. Á ísafirði höfðu starfað hljómsveitir með hljóðfæraskipan þar sem harmonikan var að vísu ennþá með, en gegndi minna hlutverki en áður. Þessar hljómsveitir taka rnjög við hlutverki harmonikuleikarans sem sat - oft einn síns liðs - á palli eða úti í horni þar sem hann var minnst fyrir dansendum. Unglingar heima á Flateyri fóru að setja saman hljómsveitir, án harmoniku og sumar með ágætum árangri. Gamla góða nikkan ekki lengur í tísku. Við hvað starfaðir þú? Á Flateyri var ég barnakennari og skólastjóri í 29 ár. Svo kom að því að við hjónin fluttum suður til Reykjavíkur. Síðan eru liðin 30 ár. Konan mín heitir Anna Jóhannsdóttir og við erum bæði Flateyringar. Anna átti heima á Djúpavík í tíu ár en foreldrar hennar fluttu aftur til Flateyrar þegar hún var 12 ára. Við höfum þannig þekkst allt frá unglingsárum. Ég gerðist svo kennari við Varmárskóla í Mosfellsbæ. Þangað til ég varð löggilt gamalmenni. Anna vann síðast hjá félagsþjónustu Reykjavíkur. 13

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.