Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 6
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennisHÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Móttaka VSFK lokuð!
Á meðan neyðarstig varir vegna útbreiðslu
COVID-19 munu stéttarfélögin Krossmóa 4
eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu.
Þetta er gert með velferð félagsmanna
að leiðarljósi.
Öllum fyrirspurnum er svarað í síma 421-5777.
Eins má senda fyrirspurnir á netföngin vsfk@vsfk.is og á
Facebook-síðu VSFK og þeim verður svarað svo fljótt sem
unnt er.
Umsóknir er hægt að skilja eftir í póstkassa félagsins á 1. hæð.
Þjónustuþegar VIRK eru beðnir að hafa samband við ráðgjafa
sína í gegn um síma eða með tölvupósti.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins:
www.vsfk.is
Snillitímar í Gerðaskóla, þróunarverkefni sem beinist að því að efla frumkvæði nemenda
í námi með því að gefa þeim kost á að fást við skapandi verkefni á eigin áhugasviði hafa
verið tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna 2020 undir liðnum Framúrskarandi þróun-
arverkefni.
Bryddað var upp á Snillitímum í
Gerðaskóla fyrir tveimur árum að
frumkvæði eins kennara við skólann.
Markmið verkefnisins er að efla
frumkvæði nemenda, sköpunargáfu
og færni í að nota mismunandi efni,
verkfæri og miðla. Í byrjun voru
snillitímarnir fyrir nemendur á mið-
stigi en á þessu skólaári er verið að
þróa snillitíma með nemendum á
yngsta stigi.
Snillitímar eru á stundatöflu
tvisvar í viku, alls fjórar kennslu-
stundir. Námið fer fram í verkgreina-
stofum, kennslustofum nemenda og
í sal skólans. Í snillitímunum velja
nemendur sér viðfangsefni út frá
eigin áhuga og með það að markmiði
að úr verði afurð sem þeir kynna
fyrir öðrum í lokin. Þeir afla sér upp-
lýsinga um viðfangsefnið og halda
utan um vinnuferlið með nokkurs
konar skýrsluskrifum. Nemendur
þurfa að verða sér úti um verkfæri
og efnivið til þess að búa til afurð og
hafa frelsi til þess að velja og útfæra
verkefnið eins og þeir vilja. Það er
leyfilegt að gera mistök og gengið út
frá því að nemendur dragi ályktanir
og lærdóm út frá þeim. Yfir veturinn
er haldin kynning í tvö til þrjú skipti
þar sem nemendur sýna og segja
frá verkefnum sínum, bæði því
sem heppnaðist vel og því sem ekki
tókst sem skyldi. Foreldrum og öllum
áhugasömum í nærsamfélagi skólans
er boðið á kynninguna.
Foreldri við skólann lýsir verk-
efninu með þessum orðum: „Sem
foreldri hef ég fylgst með [barni
mínu] blómstra í verkefnavinnu og
fyllast stolti þar sem [hann/hún]
kynnir verkefni sín. Á kynning-
unum fá foreldrar og aðrir áhuga-
samir tækifæri til þess að heimsækja
skólann sem styrkir tengsl heimila
og skóla. Nemendur eru hvattir til
þess að biðja fjölskyldu og vini um
aðstoð við efnisöflun sem gefur
samfélaginu tækifæri til að tengjast
námi nemenda. Skólinn á hrós skilið
fyrir að gefa verkefninu fastan sess
í stundaskrá og gefa verkefninu
færi á að þróast og verða hluti af
skólastarfinu. Sem foreldri hef ég
séð mikinn mun á áhuga [barnsins
míns] á náminu eftir að verkefnið
hófst. Snillitímar ýta undir skapandi
hugsun og nýsköpun og [barnið mitt]
fær tækifæri til þess að efla listræna
hæfileika sína og styrkja í leiðinni
lestur, ritun, upplýsingalæsi, rök-
hugsun og svona mætti lengi telja.“
Verkefnið var styrkt af Sprotasjóði
og í samantekt til sjóðsins var verk-
efninu lýst á eftirfarandi hátt: „Snilli-
tímar eru stórkostlegt verkfæri sem
gefa nemendum tækifæri til að njóta
sín á eigin forsendum við nám.“
Snillitímar í gerðaskóla til-
nefndir til menntaverðlauna
Ný jafnréttisáætlun Grinda-
víkurbæjar, ásamt að-
gerðaráætlun, var lögð fyrir
bæjarstjórn Grindavíkur á
síðasta fundi til staðfestingar.
Bæjarstjórn staðfesti jafnrétt-
isáætlun Grindavíkurbæjar
samhljóða.
Samþykktu
jafnréttisáætlun
samhljóða
Viðhald á reiðvelli og reið-
vegum var til umræðu á síðasta
fundi bæjarstjórnar Grinda-
víkur. Bæjarráð hafði lagt til
við bæjarstjórn að samþykkja
viðauka vegna hestamanna-
félagsins Brimfaxa. Viðaukinn
felur í sér að rekstrarstyrkur
til Brimfaxa árið 2020 hækkar
um 1,9 milljónir króna sem fjár-
magnaður verði með lækkun
á liðnum „Hesthúsasvæði:
Uppbygging reiðvallar“ á fjár-
festingaáætlun Grindavíkur-
bæjar. Bæjarstjórn samþykkir
samhljóða tillögu bæjarráðs.
Viðhald á reiðvelli
og reiðvegum
Óskað hefur verið eftir viðauka
að upphæð 23 milljónir króna
vegna göngu- og hjólastígs frá
Grindavík að undirgöngum við
golfvöll. Gert var ráð fyrir tólf
milljónum króna í verkefnið á
þessu ári en verkefnið er unnið
með Vegagerðinni.
Bæjarráð Grindavíkur lagði
á dögunum til við bæjarstjórn
að samþykkja viðaukann og að
hann verði fjármagnaður með
lækkun á handbæru fé. Bæjar-
stjórn samþykkir samhljóða
tillögu bæjarráðs.
Stígur vestur
að golfvelli við
Grindavík
GRINDAVÍK
Frá kynningu á verkefnum úr
snillitímum í Gerðaskóla.
Myndir af vef skólans.
Frá og með síðasta mánudegi þurfa þeir sem ferðast með strætis-
vögnum hjá Reykjanesbæ að nota andlitsgrímur á meðan ferðinni
stendur. Þetta á ekki við um börn fædd 2005 og seinna.
Þeim viðskiptavinum sem ekki bera andlitsgrímur er óheimilt að nýta
sér almenningssamgöngur.
Viðskiptavinir munu þurfa að útvega sér eigin andlitsgrímur og skulu
þær hylja nef og munn. Þá eru farþegar beðnir um að nota strætó-appið
eða strætókort til þess að greiða fargjaldið.
Strætó hjá Reykjanesbæ brýnir jafnframt fyrir farþegum að huga að
hreinlæti og sóttvörnum og ferðast ekki með vögnunum ef þeir finna
fyrir flensueinkennum.
Grímuskylda í Strætó
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
6 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár