Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 10
Grímsnes GK og Maron GK á toppnum
– stuð á Nesfisksbátunum
September búinn og október hafin.
Undanfarin ár þá hefur október verið
nokkuð góður aflamánuður og þá
aðallega hjá línubátunum.
Loksins eru línubátar byrjaðir á
veiðum frá Suðurnesjum. Reyndar
ekki stórir en tveir bátar í Sandgerði
hafa hafið veiðar. Annar þeirra heitir
Alli GK og er í eigu Sigurðar og Gylfa
Sigurðarssonar, hann hefur farið í
þrjá róðra og landað um sex tonnum.
Hinn báturinn er Gulltoppur GK
sem Stakkavík á, hann hefur líka
farið í þrjá róðra og landað um átta
tonnum.
Gulltoppur GK fór núna í byrjun
október á línuslóðir út af Sandgerði
og fékk þar tæp fjögur tonn á 24 bala
sem er um 166 kíló á bala. Það telst
nú nokkuð gott. Báðir bátarnir róa
með bölum og er beitt af bátunum
í Sandgerði.
Talandi um Sandgerði þá er Ellert
Skúlason nýbúinn að ljúka við að
dýpka undir kranana við höfnina.
Reyndar hefði nú mátt ganga betur
frá undir fyrsta krananum en ennþá
er smá malarhrúga utan við leg-
ustæðið.
Flestir línubátanna eru á veiðum
við Norður- og Austurlandið og fyrir-
tækið Einhamar ehf. í Grindavík er
með alla bátana sína við Austur-
landið. Línubáturinn Auður Vé-
steins SU var á útleið frá Djúpavogi á
sunnudaginn og sigldi á sker sem er
skammt frá Papey. Höggið var mjög
mikið því peran datt af og hliðar-
skrúfan brotnaði frá. Sjór komst í
vistarverur skipverja og báturinn
hallaði mikið fram á við enda höfðu
dælur ekki undan því mikill sjór var
kominn í bátinn.
Áhöfninni var bjargað yfir í Vé-
stein GK sem var þarna skammt frá
og ákveðið var að taka bátinn í tog
og var báturinn dreginn afturábak
til Djúpavogs. Björgunarsveitin
Björg á Djúpavogi tók bátinn í tog og
þegar komið var til Djúpavogs þá var
lekinn svo mikill að dælur höfðu ekki
undan og var því ákveðið að hífa
bátinn strax á land svo hann myndi
ekki sökkva við bryggjuna. Tjónið
á bátnum er þó nokkuð, stórt og
mikið gat er fremst á bátnum. Hliðar-
skrúfan er ónýt og mikil sjór komst
í vistarverur skipverja. Viðgerðar-
menn frá Trefjum í Hafnarfirði,
en báturinn er smíðaður þar, fóru
strax austur og áætlað er að eftir
rúma eina viku verði viðgerð lokið
á bátnum. Fjögurra manna áhöfn
bátsins bjargaðist og er það gleðiefni.
Mjög mikið er af skerjum á leið
til Djúpavogs og þótt mikil mildi
að báturinn skyldi hafa siglt beint
á skerið en ekki fengið það undir
miðjan bátinn því þá hefði líklegast
ekki verið hægt að bjarga honum.
Fyrst við erum að tala um þessa
báta þá er rétt að líta aðeins á afla-
tölur um bátana í september. Af bát-
unum sem eru um 30 tonn af stærð
þá var Sævík GK aflahæst með 125
tonn í sautján róðrum, Gísli Súrsson
GK var með 120 tonn í fimmtán og
Óli á Stað GK 113 var með tonn í
23 róðrum, Vésteinn GK 108 tonn í
sextán og Auður Vésteins SU 107,5
tonn í sextán róðrum.
Endum á dragnóta- og netabát-
unum. Nesfisksbátarnir áttu feiki-
lega góðan mánuð því þeir lönduðu
alls 651 tonni. Siggi Bjarna GK var
með 199 tonn í tuttugu, Sigurfari GK
205 tonn í átján og Benni Sæm GK
247 tonn í sextán og má geta þess að
báturinn varð þriðji aflahæsti drag-
nótabáturinn á Íslandi í september.
Hjá netabátunum var ufsabát-
urinn Grímsnes GK aflahæsti neta-
báturinn á landinu í september með
222 tonn í ellefu róðrum. Maron GK
var hæstur þorskveiðibátanna með
95 tonn í 24 róðrum.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Stapaskóli – Deildarstjóri
Velferðarsvið – Félagsliði
Velferðarsvið – Liðveisla
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn
á sama stað. Þeim er komið til stofnana
sem eru í leit að starfsfólki. Almennar
umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Listasafn Reykjanesbæjar - Áfallalandslag
Síðasta sýningarhelgi á þessari frábæru sýningu.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Súlan - Menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020
Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar óskar
eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna
Reykjanesbæjar. Tilnefna skal einstakling, hóp eða
fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum
í bæjarfélaginu. Tilnefningu ásamt rökstuðningi
skal skilað í Ráðhúsið Tjarnargötu 12 eða á netfangið:
sulan@reykjanesbaer.is í síðasta lagi 12. október
næstkomandi. Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri
ára og nánari reglur má finna á vef Reykjanesbæjar
undir flokknum Mannlíf.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Núna á tímum Covid-19 er mun rólegra
yfir öllu mannlíf og því erfiðara að finna
áhugavert í alla okkar miðla.
Við hvetjum ykkur því til að standa með
okkur vaktina og koma með ábendingar
um gott efni fyrir blaðið eða sjónvarpsþátt.
Ábendingar má senda á póstfangið vf@vf.is
10 // AFLAFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár