Víkurfréttir - 07.10.2020, Blaðsíða 14
Keppir í úrvals-
deildinni í FIFA
Alexander Aron Hannesson keppir fyrir
Keflavík úrvalsdeild KSÍ í e fótbolta
Mjög fáir vita fyrir hvað rafíþróttir
standa. Rafíþróttir eru stundaðar í
vaxandi mæli út um allan heim og
í ár steig Knattspyrnusamband Ís-
lands stórt skref í að fá rafíþróttir
viðurkenndar sem íþróttagrein
þegar KSÍ kom á fót úrvalsdeild í
e fótbolta.
Alexander Aron Hannesson er
einn af átta leikmönnum sem keppa
í úrvalsdeildinni. Hann keppir undir
merkjum Keflavíkur en auk þess að
keppa í e fótbolta er Alexander leik-
maður Reynis Sandgerði sem vann
sér á dögunum sæti í 2. deild karla í
knattspyrnu. Víkurfréttir áttu spjall
við Alexander um e fótbolta.
– Þú keppir fyrir hönd Keflavíkur,
eruð þið mörg sem takið þátt í e fót-
bolta af Suðurnesjum?
„Ég held að ég sé sá eini núna, það
var annar héðan sem tók líka þátt í
Íslandsmótinu sem var haldið í vor.
Það var nokkurs konar undanfari úr-
valsdeildarinnar og þeir sem lentu í
átta efstu sætunum í Íslandsmótinu
mynda deildina. Mér skilst að fljót-
lega verði farið í gang með neðri
deildir líka. Þetta á að vera með
svipuðu fyrirkomulagi og deildar-
keppnin hjá KSÍ.
Ég er einmitt að fara í tökur á
kynningarefni fyrir rafíþróttirnar á
næstunni, það á að fara að kynna
fyrir ungmennum hvað rafíþróttir
hafa upp á að bjóða hér hjá RAFÍK
(Rafíþróttir Keflavík).“
– Þegar maður hugsar um fullorðna
menn í tölvuleikjum sér maður bara
fyrir sér feita karla á hlýrabolum,
þú ert nú ekki einn þeirra er það?
„Nei, aldeilis ekki – og flestir sem
stunda þetta eru strákar úr íþróttum,
aðallega fótbolta. Annað hvort þeir
sem eru ennþá að spila eða ný-
hættir. Þetta er orðið allt öðru vísi
en ímyndin á tölvuleikjum var.
Til að ná árangri þarftu að kunna
fótbolta, ef þú ert með fótboltaheila
hjálpar það við hugsunina hvernig
þessi leikir virka – engin spurning.
Ég væri ekki góður í þessu leik ef ég
væri ekki í fótbolta sjálfur eða hefði
verið í fótbolta áður.“
– Ertu búinn að spila lengi?
„Ég er í raun ekki búinn að vera lengi
í FIFA, ég keypti mér fyrstu Playsta-
tion 4 tölvuna í desember 2017. Þá
keypti ég fyrsta FIFA-leikinn minn
sem var FIFA 18, ég er í raun bara í
þriðja leiknum og núna er sá fjórði
að koma út. Maður hafði alltaf verið
að spila hjá vinum sínum, tekið einn
og einn leik þar og alltaf kunnað á
þetta.“
– Æfið þið eða spilar bara hver í
sínu horni?
„Keflavík er að setja rafíþrótta-
deild í gang. Stefnan hjá Keflavík,
eða RAFÍK, er að kynna þetta fyrir
yngra fólki og að það verði þjálfun og
þess háttar í framtíðinni. Eins og er
spila ég bara heima, ég held að flestir
geri það, svo horfir maður á erlenda
atvinnumenn á netinu og lærir heil-
mikið af þeim.“
– Hvernig hefur þér gengið í úrvals-
deildinni?
„Eins og er þá er ég í fyrsta sæti. Það
eru búnar fjórar umferðir en einn
leikur sem á eftir að spila, það eru
Íslandsmeistarinn og sá sem lenti í
öðru sæti, annar þeirra getur jafnað
eða komist upp fyrir mig. Ég er
búinn að vinna tvo leiki og gera tvö
jafntefli. Í heildina eru þetta fjórtán
umferðir svo það er nóg eftir.
Síðasta umferðin í FIFA 20, gamla
leiknum, verður spiluð á miðviku-
daginn og eftir það færum við okkur
yfir í nýja leikinn. Það verður svolítið
sérstakt því maður er vanur þessum
gamla og nýi leikurinn er talsvert frá-
brugðinn. Þannig að maður verður
að æfa sig vel á næstunni. Ég er
búinn að spila nýja leikinn, maður
fær tíu klukkutíma aðgang að honum
áður en hann kemur út, og þetta er
bara nýr leikur – maður þarf að læra
allt upp á nýtt.“
– Hvernig virkar þessi leikur? Vel-
urðu þér bara lið og byrjar að spila?
„Það er svolítið flókið að útskýra
það. Maður byrjar á að kaupa sér
pakka og velja sér leikmenn sem
fara vel saman, leikmenn passa
misvel saman. Sem dæmi má segja
að ef þú ert með bakvörð og hafsent
sem báðir eru franskir en leika í sitt
hvorri deildinni þá eru þeir veikara
par en ef þeir spila í sömu deild. Það
þarf ekkert endilega að kaupa sér
pakka, það er líka hægt að vinna sér
inn fyrir þeim en þá þarf maður að
vera duglegur við að spila og safna
sér. Þetta er lengri leiðin.“
– Er hægt að fylgjast með þessum
leikjum einhvers staðar?
„Já, það er sýnt frá leikjunum á
hverju miðvikudagskvöldi á Stöð
tvö eSport, þá eru fjórir keppendur
sýndir en hinir leikirnir fara fram
fyrr um daginn og eru ekki sýndir.
Það er líka hægt að ná leikjunum á
Twitch.tv/rafithrottir.“
– Hvað gerir þú svona fyrir utan fót-
bolta og e fótbolta?
„Það er voða lítið þessa dagana, ég
er mikið í tölvunni og þess á milli
fer ég út með hundinn eða er með
konunni. Ég er atvinnulaus eins og
ástatt er núna en er á leiðinni í nám,
láta verða af því að klára stúdentinn.
Ég bjó á Akureyri en kláraði ekki
námið þar áður en ég flutti suður, ég
á rosalega lítið eftir og byrja í fjar-
námi núna í lok október. Stefnan er
að klára eftir áramót, þá ætti útskrift
að vera komin í hús.
Pabbi, amma og afi eru Sandgerð-
ingar og ég flutti þaðan þegar ég var
í þriðja bekk. Við fórum fyrst í Hafn-
arfjörð, mamma er þaðan, og eftir
níunda bekk fórum við norður. Þar
bjó ég í sjö, átta ár áður en ég kom
aftur hingað sumarið 2016. Þá bjó
ég fyrst hjá ömmu minni í Keflavík
því ég kom á láni frá Þór Akureyri
til Reynis. Þá mundi ég hvað það er
gott að vera hérna og ákvað eftir
sumarið að flytja suður. Byrjaði að
leigja upp á Ásbrú og bý núna hjá
pabba í Sandgerði, flutti til hans eftir
að þessi heimsfaraldur byrjaði,“ segir
Alexander að lokum.
Fyrir krakka sem hafa ekki
fundið sig í öðrum hópíþróttum
Arnar Már Halldórsson er í forsvari fyrir
RAFÍK (Rafíþróttir Keflavík) og hann sagði
okkur hvað væri framundan hjá félags-
skapnum.
„Þetta Covid er búið að setja okkur í aðstöðu sem ég
bjóst ekki við,“ segir Arnar Már. „Við erum búin að
vera að leita eftir styrkjum til að kaupa tölvur og það
voru nokkrir aðilar búnir að gefa vilyrði fyrir styrkj-
unum en þeir þurftu að slá öllu á frest út af ástandinu.
Við erum komin með samþykki fyrir stofnun deildar-
innar frá Keflavík og Reykjanesbæ, deildin mun alla
vega til að byrja með heyra undir Keflavík og við
getum þá tekið á móti hvatagreiðslum frá Reykja-
nesbæ fyrir krakkana. Við vorum komin með að-
stöðu í 88-húsinu til að setja upp tölvurnar, það er
ljósleiðari að koma þangað. Það eina sem stendur á
eru styrktaraðilar til að kaupa tölvurnar. Við vorum
búin að komast að samkomulagi um kaupin en það
var dregið til baka þar sem ástandið er svo ótraust
sem stendur.“
Forvarnir í fyrirrúmi
„Við stefnum á að vera með æfingar fyrir átta ára og
upp úr. Kenna þeim á þá leiki sem þau vilja spila og
þjálfa krakkana í þeim. Vil viljum kenna þeim skyn-
sama notkun á tölvuleikjum, hversu marga tíma þú
mátt spila á dag o.s.frv. Við viljum kenna þeim að um-
gangast aðra spilara á heilbrigðan hátt. Þetta er líka
hugsað fyrir krakka sem eru mikið í tölvunni og eiga
kannski félagslega erfitt – að þau geti fundið sér sinn
samastað, sína hópíþrótt. Við viljum veita þessum
krökkum, sem hafa ekki fundið sig í öðrum hópí-
þróttum, skjól.
Við hugsum þetta líka fyrir foreldrana, að virkja þá
svo þeir geti komist betur inn í það sem barnið þeirra
hefur áhuga á – komast inn í heiminn hjá krökkunum.“
Það eru margir spilarar héðan sem eru í félögum í
Reykjavík, margir hverjir meðal þeirra bestu í sínum
leikjum. Þeir hafa farið annað af því að hér er ekkert
félag.“
– Er þetta orðið fjölmennt samfélag sem stundar
rafíþróttir?
„Þetta er alltaf að vaxa, úti í heimi eru rafíþróttir
orðnar mjög stórar og verðlaunin í þessum leikjum
eru orðin fáránlega há. Fólk getur orðið atvinnumenn í
rafíþróttum og það er meira að segja hægt að komast á
háskólastyrki út á rafíþróttir víða í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Þeir sem eru að þéna mest eru komnir í
sjötíu milljón dollara og rétt komnir yfir tvítugt. Þetta
er orðið miklu stærra en maður býst við. Margir af
þessum bestu spilurum eru orðnir hálfgerðar rokk-
stjörnur, það eru fleiri að fylgjast með rafíþróttum
en Formúlu 1.“
Rafíþróttir ekki enn
viðurkenndar innan ÍSÍ
„Félögin á Íslandi eru að vinna saman að því að breyta
vihorfinu gagnvart þessum íþróttum því það er svo
margt sem hægt er að læra af þeim. Í mörgum leikjum
spila leikmenn saman sem lið og þá er mikilvægt að
kunna að tjá sig, eiga samskipti og geta peppað hvern
annan upp. Við ætluðum í samstarf við einn skólann
í Reykjanesbæ, um leið og við værum komin með
tölvur, þar sem það væri val að fara í rafíþróttir.“
– Hafa rafíþróttir verið teknar inn í Íþróttasamband
Íslands?
„Ekki ennþá, við erum ekki rafíþróttadeild Keflavíkur
af því að það er ekki búið að stofna sérsamband. Við
erum innan knattspyrnudeildar Keflavíkur og verðum
það þar til sérsamband hefur verið stofnað. Íþrótta-
bandalag Reykjanesbæjar tók rafíþróttir fyrir á síð-
asta ársþingi og þar eru þessi mál í vinnslu eins og
hjá ÍSÍ. Það eru aðilar sem hafa verið að þrýsta á ÍSÍ
að samþykkja rafíþróttir sem sérgrein en það tekur
bara tíma.“
– Það hlýtur að hafa verið stigið stórt skref í þá átt
þegar KSÍ ákvað að stofna deildarkeppni í e fótbolta.
„Já, engin spurning. Sem dæmi þá byrjaði mót á Ís-
landi í Counter Strike og þá voru liðin skipuð félögum
sem voru að spila saman. Strax á næsta tímabili voru
félög eins og FH og KR komin með lið, síðan hafa bæst
við Fylkir, Tindastóll og það er alltaf að bætast við.
Við vorum með lið í Keflavík en þurftum að draga
okkur úr keppni þar sem við erum ekki búin að koma
okkur upp aðstöðu til að æfa. Það stoppar allt á styrkj-
unum núna.“
– Hvaða leikir eru þetta sem helst er verið að spila?
„Það eru leikir eins og Rocket League, FIFA, League
of Legends og Counter Strike, þetta eru fjórir stærstu
leikirnir eins og er – og það er keppt og haldin mót í
þeim reglulega.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér rafíþróttir
betur geta fundið okkur á Facebook, þar erum við
með síðuna RAFÍK - Rafíþróttir Keflavík.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Alexander Aron leikur með
Reyni Sandgerði sem mun
leika í 2. deild á næsta ári.
Alexander er Keflvíkingur
þegar hann keppir í e fótbolta.
League of Legends er vinsæll
bardagaleikur þar sem liðsfélagar
vinna saman að settu marki.
14 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár