Víkurfréttir - 07.10.2020, Qupperneq 15
00
01
-5
98
1
23
0-
M
VV
-1
04
6
X
Reykjanesvirkjun
Uppsetning rafbúnaðar
Útboð nr. F0219-418
HS ORKA SVARTSENGI 240 GRINDAVÍK 520-9300 HSORKA@HSORKA.IS
HS Orka hf. óskar eftir tilboðum í deilihönnun, útvegun og uppsetningu rafbúnaðar vegna
stækkunar Reykjanesvirkjunar á Reykjanesi samkvæmt útboðsgögnum númer F0219-418.
Í megindráttum felst verkið í deilihönnun, efnisútvegun, smíði og uppsetningu á
stöðvarnotkunarspennum, 16,5 kV, 11 kV, 690 V og 400 V AC ásamt 110 V og 24 V DC dreifiskápum,
liðaverndarbúnaði, skinnustokkum, og háspennustrengjum.
Einnig útvegun og uppsetningu afl- og stýristrengja, smíði og uppsetningu á stjórnskápum
samkvæmt teikningum frá verkkaupa, móttaka, uppsetning og olíuvinnsla á vélaspenni og
eiginnotkunarspenni, brunaþéttingum, steypusögun og götun og stálsmíði sem fylgir búnaði sem
settur er upp.
Vinnusvæðið skiptist í stöðvarhús, skiljustöð og sjótökusvæði.
Skila skal öllum raf- og stjórnbúnaði tilbúnum vegna prófana á vélbúnaði í skiljustöð þann 5. maí
2022 og í stöðvarhúsi þann 22. júlí 2022. Skila skal öllum háspennubúnaði tilbúnum til notkunar 13.
september 2022. Vinnu skal vera að fullu lokið 1. desember 2022.
Útboðsgögn verða aðgengileg fimmtudaginn 8. október á útboðsvef HS Orku hf. og skulu bjóðendur
senda tölvupóst á netfangið rey4@hsorka.is til þess að fá aðgang að vefnum. Tilboðum skal skila í
höfuðstöðvar HS Orku í Svartsengi fyrir kl. 14 þann 24. nóvember 2020. Tilboð verða opnuð kl. 14
þann sama dag.
Stöðvarnotkunarspennar 3 stk
16,5 kV og 11 kV dreiskápar 12 stk
690 V, 400 V og 110 V dreiskápar 24 stk
16-800 A Mótorútgangar og kvíslar í lágspennudreiskápum 80 stk
110 V 400 Ah rafgeymasett 2 stk
Strengjastigar 600 m
Rafstrengir 35 km
Háspennustrengir 245 kV 690 m
16,5 kV Einleiðara straumskinnur rafala 3x60 m = 180 m
Stjórnskápar og tengiskápar stýrivéla 11 stk
Liðavernd, öldi meginvarnarliða 4 stk
Aspennar, mótttaka, uppsetning og olíuvinnsla 2 stk
Stálsmíði, strengendaturnar 245 kV strengja 3 stk
Helstu kennistærðir eru:
Ofanleiti 2 - 103 Reykjavík - 422 8000 - verkis@verkis.is - www.verkis.is
Minningarorð um Björn Ragnarsson
sem verður jarðsunginn fimmtudaginn 8. október næstkomandi.
Björn Ragnarsson fór ekki með hávaða og látum í gegnum lífið. Hann gekk rólega um og gætti að hvort ekki mæti
koma einhverju betur fyrir eða lagfæra eitthvað sem hefði aflagast. Alltaf var hann tilbúinn til aðstoðar og alltaf kunni
hann ráð. Bjössi, eins og við samstarfsfólkið kölluðum hann alltaf, hóf störf hjá Byggðasafni Reykjanesbæjar upp úr
síðustu aldamótum og strax frá fyrsta degi var ljóst að við hefðum unnið í lóttóinu.
Hann hafði um æfina unnið hin ýmsu störf, bæði til sjós og lands, og bjó að margs konar reynslu en var nú atvinnulaus
og kom til okkar í gegnum vinnuátaksverkefni sem átti bara að vera tímabundið. Okkar gæfa var sú að við áttuðum okkur
nógu snemma á því að þarna var gullmoli á ferð og hann var fastráðinn um leið og tæifæri gafst. Hans aðalstarfsstöð innan
menningarsviðs bæjarins var í Duus Safnahúsum og þar var hann vakinn og sofinn yfir hverju verkefni, hverri þraut sem
þurfti að leysa allt þar til hann lét af stöfum vegna aldurs. Hann hafði ekki bara þá handlagni sem til þurfti heldur líka
skapandi hugsun sem oft gerði útslagið. Engin sýning var sett upp án Bjössa, hvorki á vegum listasafns né byggðasafns
og engin viðburður haldinn án hans tilkomu, hvort heldur hann var í hlutverki starfsmanns eða gests.
Hann heillaði alla upp úr skónum með sinni elskulegu framkomu og sinnti öllum af stakri samviskusemi og hlýju, hvort sem um var að ræða safn-
gesti eða samstarfsmenn. Bjössi var líka mikill dýravinur og safnkötturinn Dúsi átti góða æfi undir verndarvæng Bjössa. Eftir að Bjössi hætti fastri
vinnu hjá okkur hélt hann áfram að koma í kaffi og alltaf hafði hann vakandi auga á safnahúsunum og lét vita ef gleymst hefði að loka glugga eða
eitthvað þyrfti að skoða betur. Mig langar að þakka honum Bjössa mínum sérdeilis góða viðkynningu og vináttu og veit að ég tala þar fyrir munn
allra samstarfsmanna hans hjá Reykjanesbæ. Þarna var eðalmaður á ferð.
Valgerður Guðmundsdóttir
Daníel Leó
genginn til liðs
við Blackpool
Grindvíkingurinn Daníel Leó Grét-
arsson hefur sagt skilið við norska
knattspyrnuliðið Aalesunds FK og
gert tveggja ára samning við enska
knattspyrnufélagið Blackpool FC
sem leikur í ensku C-deildinni.
Daníel, sem er uppalinn Grind-
víkingur, hefur verið í herbúðum
Álasunds síðan 2015 og leikið yfir
100 leiki með liðinu á þessum fimm
keppnistímabilum. Hann lék sinn
fyrsta A-landsleik í byrjun þessa árs
þegar Ísland sigraði Kanada 1:0 og
að auki hefur Daníel leikið sex leiki
með U21 og tíu leiki með U19 lands-
liðum Íslands.
Neil Critchley, yfirþjálfari
Blackpool, segir að félagið hafi lagt sig
fram við að finna rétta leikmanninn
og sú reynsla sem fylgi Grindvík-
ingnum komi til með að styrkja lið
Blackpool en Daníel er öflugur varn-
armaður og Blackpool er sem stendur
í fjórða neðsta sæti deildarinnar.
„Hann kemur með reynslu úr keppni
með félagsliðum og landsliðum. Hann
lítur á komu sína til Englands og að
ganga í raðir Blackpool sem næsta
skref á ferli sínum,“ segir Critchley á
vef Blackpool FC. „Okkur hlakkar til
að vinna með honum, hjálpa honum
að falla inn í hópinn og bjóðum hann
velkominn í Blackpool-fjölskylduna,“
er enn fremur haft eftir Neil Critchley.
Samúel Kári
til norsku
Víkinganna
Keflvíkingurinn Samúel Kári Frið-
jónsson er genginn til liðs við
norska félagið Víking frá þýska fé-
laginu Paderborn.
Samúel fór til Þýskalands í byrjun
árs og lék með liðinu þar til tíma-
bilinu lauk í vor. Samúel skrifaði
undir rúmlega tveggja ára samning
við norsku Víkingana sem hann lék
með á lánssamningi frá Valerenga
árið 2019. Hann varð bikarmeistari
með norska liðinu, lék 33 leiki með
því og skoraði fimm mörk. Samúel
var í landsliðshópi Íslands fyrr í
sumar.
vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 15