Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 17
SKRIFSTOFA STFS LOKUÐ!
Á meðan neyðarstig varir vegna útbreiðslu COVID-19
mun skrifstofa Starfsmannafélags Suðurnesja Krossmóa 4
eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu.
Þetta er gert með velferð þeirra að leiðarljósi.
Félagsmenn geta sent fyrirspurnir á netfangið stfs@stfs.is
og þeim verður svarað svo fljótt sem unnt er.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins.
WWW.STFS.IS
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Sápan á flug eftir bankahrun
og niður aftur vegna Covid-19
Ólafur ÁrniHalldórsson hefur rekið
fyrirtækið Sápuna síðan 2009 og
var mest að selja til ferðamanna.
Hann hefur þurft að draga saman
seglin á veirutímum og m.a. lokað
verslun sinni í Reykjanesbæ. „Við
vonumst til að þetta fari vel í gang
aftur þegar ferðamenn fara að
mæta aftur til Íslands en nú er ég
bara með vefverslun.“
Það kom samt ekki til af góðu að
Óli fór út í þessa sápuframleiðslu því
sjálfur lenti hann í heiftarlegu of-
næmi sem kom honum inn á spítala
í Bandaríkjunum þar sem hann var
í námi.
„Ég lenti í því í Atlanta að fá of-
næmi fyrir sápu sem varð svo alvar-
legt að ég var lagður inn. Ég gat ekki
notað neinar sápur. Þar fundu þeir
út að ég væri með svona mikið of-
næmi fyrir sápuvörum. Í kjölfarið
vorum við fjölskyldan úti að keyra
eitt sinn um sveitahéruð Georgíu og
ókum fram á bóndabæ þar sem verið
var að framleiða náttúrulegar sápur,
framleiddar frá grunni eins og gert
var fyrir fimm þúsund árum. Þessi
bóndi var einnig að selja alls konar
dót, heimagerðar sultur og fleira
heimagert. Ég keypti af honum sápu
og prófaði og varð betri í húðinni því
ég þoldi þessa tegund af sápu. Svo
kynntist ég þessum bónda betur og
hann kenndi mér að búa til mínar
eigin sápur,“ sagði Ólafur Árni í við-
tali við Víkurfréttir í lok mars 2019.
Ólafur stofnaði Sápuna í kjölfar
bankahrunsins.
„Þá fannst mér ég verða sjálfur
að skapa mér atvinnu svo aðrir
gætu fengið starfið sem ég hafði.
Ég ákvað að prófa að framleiða smá
af sápum og fór með þær og kynnti
fyrir verslunum og útbjó þær sem
minjagripi. Ég fékk jákvæð viðbrögð
og boltinn byrjaði að rúlla, smátt
í fyrstu. Reksturinn stækkaði með
fleiri ferðamönnum sem voru aðal
viðskiptavinirnir en fyrirtækið mitt
er dæmi um hrun í rekstri vegna
Covid-19.“
Undirbúningur á fullu í sápugerð. Vökvinn fer í þessi hólf
og síðan eru sápurnar skornar í passlegar einingar.
Appelsínugular Soroptimistakonur
Keflavíkur á fundi í fyrra
þegar átakið var kynnt.
Ólafur með hluta
af sápuúrvalinu
í viðtali við VF
í mars 2019.
vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 17