Feykir


Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 2

Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 2
Fyrir skömmu fengu Brunavarnir Skagafjarðar afhenta nýja slökkvibifreið og var því fagnað með opnu húsi á slökkvistöðinni á Sæmundargötu á Sauðárkróki í síðustu viku. Var fólki boðið að skoða nýja slökkvibílinn ásamt því að kynna sér starfsemi og búnað slökkviliðsins. Að sjálfsögðu var hellt upp á í tilefni dagsins og myndarleg rjómaterta á boðstólum. Svavar Atli Birgisson, slökkviliðsstjóri, segir um mikla búbót að ræða. Bíllinn kemur að mestu klár frá Póllandi, 450 hestafla Skania bifreið með drifi á öllum hjólum og sæti fyrir fimm manns í húsi: „En ekki þrjá inni og tvo úti, eins og var á eldri bílnum, þannig að um gríðarlega viðbót er að ræða hjá okkur,“ segir Svavar í gamansömum tón en bíllinn er það tæki sem fyrst fer út úr húsi á vettvang aðgerða, hvort sem það er bruni, umferðarslys eða eiturefnaleki, svo eitthvað sé nefnt. Stundum er lífinu sjálfu líkt við íþróttir og má segja að oft fari nærri þó nokkuð sé langt seilst í samanburðinum. Þannig man ég eftir því sem ungur drengur að ég sá fótboltaliðið, sem ég æfði og spilaði með þá, sem samfélag eða fyrirtæki, sem stóð og féll með framlagi hvers og eins í hópnum. Liðin voru misjöfn að gæðum og fór eftir ýmsu, m.a. ástundun, fimi og ekki síst seiglu knattspyrnu- mannsins. Þeir sem ekki lögðu það á sig að æfa voru ekki með. Þá, eins og nú, voru þjálfararnir misjafnir, og náðu mismiklu út úr hverjum og einum. Þeir þurftu líka að skila framlagi og ekki síst að halda virðingunni bæði gagnvart liðinu sem og stuðningsmönnum og stjórn félagsins. Ef virðingin þvarr og óánægja skapaðist innan hópsins mátti búast við því að verr gengi innan vallarins og jafnvel utan hans. Þjálfarinn bar mikla ábyrgð. Þetta höfum við fengið að sjá hjá einu sigursælasta knattspyrnuliði ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Einn besti þjálfari heims, að einhverra mati og ekki síst hans sjálfs, missti alla virðingu liðsins, stundum kallað að missa klefann. Meðal annars vildi hann ekki nota einn besta manninn sem fékk að velgja tréverkið í tíma og ótíma og sumir litu á sem jafngildi uppsagnar. Liðið náði ekki þeim árangri sem stefnt var að og allt var í ólestri svo fólk, alla vega stuðningsmenn, vildi breytingar. Og viti menn, fólkið sem stendur að félaginu, eða fyrir- tækinu, fékk sínar breytingar. Stjórnin tók mark á fólkinu og losaði sig við stjórann og nýr maður var ráðinn í brúna. Svo vel heppnaðist aðgerðin að liðið venti kvæði sínu í kross og hóf að safna stigum sem aldrei fyrr. Liðsmenn og áhangendur tóku gleði sína á ný og allt virðist í vellukkunnar standi. Mér heyrist jafnvel á sumum að liðið sé aftur orðið besta lið í heimi. Ég er ekkert endilega viss um það en allir sjá að breytingin var ekki umflúin. Fólkið fékk sínu fram félaginu til heilla. Kóngur vildi sigla en byr hlaut að ráða. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 685 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum 27 tonn bárust á land á Skagaströnd í síðustu viku af níu bátum. Sauðárkrókstogararnir Málmey og Drangey lönduðu tæpum 350 tonnum samanlagt og á Hvammstanga landaði Harpa HU rúmum tíu tonnum. Heildaraflinn á Norðurlandi vestra vikuna 17.-26. febrúar var 386.175 kíló. /FE Aflatölur á Norðurlandi vestra 17.– 23. febrúar 2019 Tíu tonnum landað á Hvammstanga SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 10.145 Alls á Hvammstanga 10.145 SKAGASTRÖND Alda HU 112 Línutrekt 1.425 Auður HU 94 Landbeitt lína 3.683 Bergur sterki HU 17 Lína 5.889 Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 1.196 Fengsæll HU 56 Línutrekt 1.374 Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 4.491 Hafdís HU 85 Línutrekt 861 Onni HU 36 Dragnót 4.842 Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfiskinet 3.363 Alls á Skagaströnd 27.124 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 220.068 Málmey SK 1 Botnvarpa 128.838 Alls á Sauðárkróki 348.906 Brunavarnir Skagafjarðar með opið hús Nýr og fullkominn tækjabíll afhentur Þorlákur Snær Helgason varaslökkviliðsstjóri, Guðmundur R Guðmundsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Hreiðar Örn Steinþórsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Sigurbjörn Björnsson varðstjóri og Svavar Atli Birgisson slökkviliðsstjóri. MYND: PF Blönduós Nýtt deiliskipulag auglýst Blönduósbær hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi að nýjum íbúðarlóðum við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut fyrir íbúðabyggð. Tillagan samanstendur af skipulagsuppdrætti og greinargerð og eru allar meginforsendur í samræmi við Aðalskipulag Blönduóss 2010–2030. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 19. febrúar til 2. apríl nk. á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi. Einnig er tillagan aðgengileg á heimasíðu Blönduósbæjar, http:// www.blonduos.is. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. apríl nk. til skrifstofu Blöndu- ósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. /PF Dælugeta bílsins er upp að 4000 l að lágmarki á mínútu, með 4000 lítra tank sem er tvöföldun miðað við gamla bílinn. Þá er hann útbúinn klippum sem notaðar eru til björgunar á fólki úr bílum eftir umferðarslys ef svo ber undir. „Ég ætla ekki að líkja þessum saman við hinn bílinn. Gríðarlegur munur! Ég vil þakka sveitarstjórnarfólki fyrir góðan stuðning og skilning því það er ekki sjálfgefið að svona verkefni gangi upp. Margir sem þurfa að koma að því en við höfum mætt miklum skilningi með þetta enda þurfa þessir hlutir að vera í lagi.“ Við athöfnina afhenti Gísli Sigurðsson, varaformaður byggðarráðs, Svavari Atla lyklana að bílnum, formsins vegna, og sagði að hann von- aðist til að bílinn þyrfti að nota sem minnst. Bíllinn hefur þá þegar sannað notagildi sitt því á dögunum var hann notaður í útkalli þegar eldur logaði í bílaverkstæði KS. /PF 2 08/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.