Feykir


Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 10

Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 10
FRÓÐLEIKUR FRÁ BYGGÐSAFNI SKAGFIRÐINGA Inga Katrín D. Magnúsdóttir skrifar Að setjast í sekk og ösku Senn líður að þremur dögum sem jafnan vekja spennu og tilhlökkun margra, nefnilega bolludegi, sprengi- degi og öskudegi. Í ár lenda þessir hátíðisdagar áts, gleði og gríns á 4-6. mars. Öskudagurinn, sá dagur sem við þekkjum nú fyrir búninga, glens og söng, á sér langa sögu. Öskudagsheitið á rætur að rekja til katólsks siðar en þá var ösku dreift yfir höfuð iðrandi kirkjugesta í upphafi lönguföstu (orðasambandið að sitja á eða í sekk og ösku vísar til iðrunar eða sorgar). Askan táknaði þá hið óverðuga og forgengilega en einnig þótti hún búa yfir hreinsandi krafti eldsins. Dagaheitið þekkist hérlendis frá miðri 14. öld, en sennilega er það nokkru eldra (siðurinn að dreifa ösku á söfnuðinn nær aftur til 11. aldar). Eftir siðaskipti lauk iðrunarhlutskipti öskudagsins hérlendis Öskupokar frá Sauðárkróki. Ósennilegt er að þessir pokar hafi nokkurn tímann komist í tæri við ösku. Þeir eru þó litríkir og sumir fallega málaðir. Ef vel er að gáð sjást beygðir títuprjónar sem krækt var í fatnað (á bak) þeirra sem urðu fyrir valinu. MYND: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA BSK-2004:30 og úr urðu hátíðarhöld eins og víða þekkjast, þar sem ærslagangur og gleði taka öll völd.1 Öskupokar, sem margir kannast við, þekkjast a.m.k. frá miðri 17. öld og virðast vera arfleifð hins forna katólska siðar. Öskupokar voru litlir pokar úr klæðis- pjötlum sem stundum voru fylltir af ösku og fólk reyndi að hengja hvert á annað með títuprjóni án þess að hinn aðilinn yrði þess var. Öskupokar virðast vera séríslenskt fyrirbæri, sem hugsanlegt er að hafi þróast í gamla bændasamfélag- inu, þ.e. gleðskapur og stríðni átti sér stað inni á heimilum fólks en ekki á götum úti og þannig hefur þróun siðarins markast af aðstæðum fólks í þá daga.2 Um öskupoka hefur Jón Árnason, þjóðsagnasafnari, þetta að segja: „Ösku- dagurinn er fyrsti miðvikudagur í föstu. Hann hefur verið haldinn á annan hátt á Íslandi eftir siðabótina en pápiskir halda hann sem setjast þá í sekk og ösku. Íslendingar hafa haldið uppi minningu hans með glensi og gamni síðan með því að kvenfólk hefur hengt á karlmenn smápoka með ösku í eða komið henni á þá öðruvísi; það heita öskupokar. En karlmenn hefna sín með því aftur á kvenfólkinu að þeir koma á þær smásteinum ýmist í pokum eða á annan hátt. Oft hefur orðið þrætni úr því hvort það ætti að metast gilt ef karl eða kona bæri ösku eða stein öðruvísi en í poka sem kræktur væri á með títuprjóni svo hitt vissi ekki af og eins úr því hversu langt skuli ganga með öskuna eða steininn til þess að burðurinn sé lögmætur, því þeim sem koma ösku eða steini á aðra þykir nægja ef gengið er með hvort um sig þrjú fet, en hinir sem bera kalla það ómark ef skemmra er gengið en yfir þrjá þröskulda. Um þetta eru enn mjög deildar meiningar.“3 Á fyrstu áratugum 20. aldar bar nokkuð á félagafögnuðum á öskudaginn og árið 1915 er fyrst greint frá gamansemi barna á götum úti í Morgunblaðinu, en orðalagið bendir þó til að sá siður hafi ekki verið nýr af nálinni þá. Um svipað leyti fór að bera á því að öskupokarnir væru gerðir og seldir af fólki og fyrir- tækjum, frekar en að vera heimagerðir. Nýju pokarnir voru frábrugðnir þeim gömlu að því leyti að þeir voru ekki fylltir af ösku og steinum, heldur frekar saum- aðir úr skrautlegu efni og oft áteiknaðir eða málaðir.4 Heimildaskrá 1 Árni Björnsson, Saga daganna. (1993). Mál og menning, Reykjavík. Bls. 565-581. 3 Árni Björnsson, Saga daganna. (1993). Mál og menning, Reykjavík. Bls. 569. 3 Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, II bindi. (1954). Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfu. Bókaútgáfan Þjóðsaga. Bls. 553. 4 Árni Björnsson, Saga daganna. (1993). Mál og menning, Reykjavík. Bls. 574-575. AÐSENT : Álfhildur Leifsdóttir skrifar Ótímabærar ákvarðanir um Blöndulínu 3 Í grein frá fulltrúum meirihluta framsóknar- og sjálfstæðisflokks í skipulags- og byggingarnefnd, sem birtist á vef Feykis 22. febrúar, er ástæða þess að Blöndulína 3 er nú sett á aðalskipulag Skagafjarðar sögð að frestur um ákvörðun línunnar hafi runnið út árið 2016. Staðreyndin er sú að Blöndulína 3 er ekki á framkvæmdaáætlun Lands- nets til næstu þriggja ára samkvæmt kerfisáætlun og umhverfismat línunnar liggur ekki fyrir. Að setja Blöndulínu 3 á aðalskipulag er því algjörlega ótímabær ákvörðun. Meirihluti sveitarstjórnar er tilbúinn að binda sig við aðeins 3 km í jörðu og restina í möstur, þegar ljóst er að fram- kvæmdin kemur ekki til með að eiga sér stað á næstunni. Tækninni fleygir fram og getur gjörbreytt forsendum jarðstrengjalagna í milli- tíðinni. Stóriðjulína en ekki byggðarlína Raforkuöryggi er nauðsynlegt, en með hvaða hætti raforkan er tryggð skiptir máli. Hvort notast er við möstur með burðargetu fyrir stóriðju, sem þvera landið með tilheyrandi sjónmengun eða hvort jarðstrengir með hæfilegri burðargetu eru lagðir í jörðu. Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar segja hagsmuni sveitarfélagsins varðandi lagn- ingu línunnar vera aukið afhendingaröryggi raforku í Skagafirði. Hið rétta er hins vegar að Landsnet hefur hingað til ekki ætlað sér að tengja Blöndulínu 3 hér í firðinum. Blöndulína 3 er stóriðjulína en ekki byggðalína og á samkvæmt Landsneti aðeins að þvera fjörðinn án þess að íbúar hér hafi nokkurn ávinning af. Meirihluti sveitarstjórnar kemur til með að setja fram kröfu um tengingu við byggðalínu en það er ekki tímabært að tala um aukið afhendingaröryggi þegar ekki hefur verið samið um slíkt. Nýtt umhverfismat getur að auki haft áhrif á aðalskipulagið og eru enn ein rök fyrir því að þetta sé ekki tímabært. Blöndulína 3 er ekki á nýlegu aðalskipulagi Hörgársveit- ar en línan þarf að tengjast þangað frá Skagafirði. Þar segir sveitarstjórn einfaldlega nei við stóriðjumöstrum, enda er ákvörðun um slíkt alfarið í höndum sveitarstjórna. Óháður aðili leggi mat á möguleika jarðstrengjalagna Það er athyglisvert að kynna sér ferlið frá raforkuspá til lagningar raflína. Raforkuspá er gerð af sérstökum raforkuhóp orkuspár- nefndar, sem sett er saman af fulltrúum raforkufyrirtækja. Þar sitja tveir fulltrúar frá Landsneti. Sérfræðingar Landsnets setja saman kerfisáætlun m.a. út frá raforkuspá. Það er svo Landsnet sem leggur raflínurnar og rukkar fyrir notkun. Það er því óhætt að segja að Landsnet sé báðum megin við borðið í þessu ferli. Í ljósi þess hef ég sem fulltrúi VG og óháðra í skipulags- og byggingarnefnd, lagt áherslu á að sveitarfélagið fái mat óháðs aðila á möguleikum á jarðstrengslagningu um fjörð- inn. Hefur það ennfremur verið krafa okkar frá því málið fór af stað. Ekki hefur verið vilji fyrir slíku af hálfu meirihlutans. Umhverfismat Landsnets ógilt því litið var framhjá kostum jarðstrengja Í mars 2018 ógilti úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála framkvæmdaleyfi Landsnets vegna Lyklafellslínu 1, frá Mosfellsbæ að álverinu í Straumsvík. Sú ógilding er byggð á þeim forsendum að ekki sé sýnt fram á að jarðstrengjakostir séu ekki raunhæfir. Að auki þótti samanburður á umhverfisáhrifum þeirra og aðalvalkosts (loftlínu) ekki hafa farið fram með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir, en framkvæmdin hafði þegar farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum. Þessi úrskurður eykur ekki traust á mati Landsnets hvað jarðstrengi varðar. 50 km af 220 kV jarðstreng mögulegur á Sprengisandi en 3 km í Skagafirði Í skýrslu Landsnets um lagningu jarðstrengja á hærri spennu í raforkuflutningskerfinu frá árinu 2015 er úttekt á lagningu jarðstrengs á Sprengisandsleið. Þar kemur fram að á 200 km leið er mögulegt að leggja 50 km af 220 kV jarðstreng í jörðu. Hvers vegna telur Landsnet að 3 km sé hámark á jarðstrengjalögn í Skagafirði? Í sömu skýrslu Landsnets er einnig úttekt á raflínu frá Kröflu til Akureyrar. Þar er talið mögulegt að leggja 12 km í jörðu framhjá Akureyri þrátt fyrir að lagning teljist fremur flókin sökum yfirferðar yfir árfarvegi og votlendi, framhjá flugvelli og í gegnum þéttbýli. Einnig kemur þar til greina að notast við núverandi 132kV streng og leggja annað strengjasett síðar komi flutningsþörf til með að aukast. Flutningsgeta 220kV línu eins og til stendur að leggja yfir fjörðinn eru 500 MW. Hæstu álagspunktar í spennuvirkinu fyrir ofan Varmahlíð eru um 15 MW en að jafnaði er álagið um 10 MW. Hámarksafkastageta Blönduvirkjunar er 150 MW. Með þessum samanburði er ljóst að burðargeta línunnar er talsvert meiri en sú raforka sem er til staðar. Hvernig þjónar það raforkuþörf almennings? Því er ekki lögð 132 kV lína að svo stöddu sem færi öll í jörð? Slíkt er ódýrara en 220kV stóriðjulína. Verði raforkuþörf meiri í framtíðinni væri sannarlega hægt að leggja annað strengjasett í jörð síðar. Meirihluti stendur ekki með íbúum Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Lands- nets segir í samtali við Morgunblaðið þann 21. febrúar að Landsnet vilji tryggja öllum hags- munaaðilum virkt samtal og gagnkvæman skilning í aðdraganda ákvarðana um fram- kvæmdir á Blöndulínu 3. Mér þykir það skjóta skökku við að meirihluti sveitarstjórnar Skaga- fjarðar ætli á sama tíma að nýta skipulagsvald sitt til að samþykkja Blöndulínu 3 í ósátt við íbúa Skagafjarðar sem sjá fram á landrask, verðfellingu jarða og sjónmengun af möstrum næstu áratugina. Hlutverk sveitarstjórnar Skagafjarðar er að standa með hagsmunum íbúa. Það er því lágmark að sveitarfélagið fái óháða úttekt á raforkuþörf og möguleikum á lagningu jarð- strengja áður en þessi afdrifaríka ákvörðun er neydd upp á íbúa Skagafjarðar um ókomin ár. Álfhildur Leifsdóttir 10 08/2019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.