Feykir - 27.02.2019, Síða 3
Á morgun, fimmtudag, verður
kynningarkvöld hjá Eftirlæti
á Sauðárkróki þar sem nýlega
bættist netverslun, eftirlaeti.
com, við þjónustuna sem veitt
er á Aðalgötu 4. Eins og flestir
Skagfirðingar vita er þar rekin
snyrtistofa og verslun. Feykir
forvitnaðist um kynninguna og
hina nýju netverslun hjá Ólínu
Björk Hjartardóttur, eiganda
fyrirtækisins.
Ólína segir að þau Ingólfur,
eiginmaður hennar, hafi verið
með netverslun í huganum
lengi. Fyrst var hugmyndin sú
að gera heimasíðu með helstu
upplýsingum um snyrtistofuna
og hvað væri í boði þar en síðar
stækkaði umfangið. „Með
tímanum jókst úrvalið á
gjafavörunum í versluninni og
þá fannst okkur sniðugt að gera
netverslun til að ná til fleira
fólks og auðvelda viðskipta-
vinum okkar að nálgast
vörurnar og sjá úrvalið hjá
okkur. Þegar Eftirlæti opnaði
árið 2012 þá var það snyrtistofa
með snyrti- og förðunarvörum
til sölu ásamt handverki úr
Skagafirði. Svo með tímanum
bættust fleiri gjafavörur við og
varð þá Eftirlæti bæði
snyrtistofa og verslun með
bæði góðu úrvali af snyrti- og
förðunarvörum og gjafavör-
um, íslenskum og erlendum.
Áherslan hjá okkur eru
íslenskar vörur og þá mikið
héðan af svæðinu. Svo er líka
skemmtilegt að í netversluninni
okkar eru nokkur merki sem
eru ekki í öðrum netversl-
unum.“
Ólína segir að viðskipta-
hópurinn stækki og því geti
úrvalið aukist hjá þeim sem
Kynningarkvöld hjá Eftirlæti
Ný netverslun á Króknum
Sé ég glampa í gegnum allt á geislarúnir þær
sem minnin góðu magna í sýn á meðan hjartað slær.
Það er og verður arfur minn – að öllu leyti kær!
Þau gæði eru gefin þar sem gilda dásamleg,
ég mun þar finna mína sæld á meðan andann dreg.
Og hver og einn á arfinn sinn þar eins á sama veg!
Við hljótum öll að hlynna að því sem hressir okkur best,
og gegnum allt í gullnum ljóma í geislarúnum sést.
Þar tilveran á tengingu sem tímalaus er fest!
Hún lýsir upp í ljóssins heim og leiðir alla þá
sem vilja horfa hærra og lengra af hjartans dýpstu þrá.
Í góðum minnum geymist það sem gleður alla að sjá!
Rúnar Kristjánsson
Góðu minnin
Verndarsvæði í byggð
HOFSÓS
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi 12. desember 2018 að
leggja fram tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verndarsvæði í byggð
innan þéttbýlisins á Hofsósi, sbr. 4. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015.
Svæðið sem lagt er til að gert verði að verndarsvæði í byggð eru bæjarkjarnarnir Plássið og Sandurinn á
Hofsósi. Svæðið er um 3 ha að stærð og afmarkast af Brekkunni að norðan, af brekkubrún Bakkans að
austan og sjó og hafnargarði að sunnan og vestan. Á verndarsvæðinu standa 15 hús, byggð á tímabilinu
1773 – 2001.
Svæðið sem um ræðir er hluti elstu byggðarinnar á Hofsósi og býr yfir merkilegri sögu lítils þorps sem
hafði stórt hlutverk í verslunarsögu Skagafjarðar og jafnframt er hér að finna elstu húsin á Hofsósi.
Með þessari tillögu vill Sveitarfélagið Skagafjörður festa verndun þessa mikilvæga bæjarhluta í sessi
með það að markmiði að framtíðaruppbygging taki mið af þeirri menningarsögulegri arfleifð sem svæðið
býr yfir.
Til grundvallar mati á varðveislugildi húsa og svæða eru eftirfarandi:
• Aðalskipulag Skagafjarðar 2009-2021
• Deiliskipulag fyrir Plássið, Sandinn, Brekkuna og Bakkann á Hofsósi, 2000
• Hofsós. Bæjar- og húsakönnun. Brekkan, Sandurinn, Plássið,
• Bakkinn, 1999.
• Grafarós og Hofsós, fornleifaskráning 2001
• Verndarsvæði í byggð – Hofsós fornleifaskráning 2018
• Húsakönnun Hofsóss. Plássið og Sandurinn, 2018
Einnig er byggt á samantekt um byggðina innan verndarsvæðisins ásamt greiningu á svipmóti
byggðarinnar sem hvort tveggja er að finna í greinargerð með tillögunni.
Tillagan ásamt greinargerð liggur frammi í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 21,
550 Sauðárkróki frá 1. mars til og með 12. apríl 2019.
Tillögu, uppdrætti og greinargerð má einnig nálgast á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar https://
www.skagafjordur.is/is/thjonusta/umhverfis-og-skipulagsmal/byggingarfulltrui/auglysingar-um-
skipulagsmal
Hverjum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta og öðrum þeim sem vilja koma sjónarmiðum sínum
á framfæri er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til föstudagsins 12. apríl
2019. Senda skal skriflegar athugasemdir til skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið jobygg@
skagafjordur.is
Jón Örn Berndsen skipulags - og byggingarfulltrúi
www.skagafjordur.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
/
0
22
01
9
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Sigrún Hartmannsdóttir
frá Tumabrekku, Skagafirði,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki 19. febrúar.
Hún verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju
föstudaginn 1. mars kl. 15.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
fyrir góða umönnun.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Gunnlaugur Halldórsson
Bjarni Halldórsson Kristjana B. Frímannsdóttir
Hartmann Á. Halldórsson Sólveig Pétursdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
henni finnst frábært. „Úti á
landi í litlum bæ þarf maður að
finna góðar leiðir til að vera
sýnilegur. Á fimmtudaginn
verðum við með kynningar-
kvöld á nýjum vörum og
glænýju netversluninni okkar.
Það er gaman að halda upp á
það þegar maður er með
nýjungar og vonandi eru við-
skiptavinir okkar jafn spenntir
yfir þessu og við.“ /PF
Krabbameinsfélag Austur-Húnavatnssýslu
50 ára afmæli
Í tilefni af 50 ára afmæli
Krabbameinsfélags Austur-
Húnvetninga, býður félagið til
afmælisveislu í Félagsheimilinu
á Blönduósi nk. sunnudag,
3. mars, kl. 15:00.
Á dagskrá verða ávörp,
tónlistaratriði og veislukaffi en
þeir tónlistarmenn sem koma
fram eru Friðrik Halldór
trúbador, Hugrún Lilja Péturs-
dóttir píanó, Hugrún og Jonni
og Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps. Allir eru hjartanlega
velkomnir og vill félagið þakka
öllum sem veitt hafa stuðning á
liðnum árum.
Krabbameinsfélag Austur-
Húnavatnssýslu var stofnað 2.
nóvember 1968 og eru félags-
menn um 240 talsins. Á hverju
ári veitir félagið styrki til að
létta undir með þeim sem
greinst hafa með krabbamein.
Formaður stjórnar félagsins er
Sveinfríður Sigurpálsdóttir. /PF
08/2019 3