Feykir - 23.10.2019, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Dominos-deildin :: Tindastóll 93 - Stjarnan 81
Stólarnir eru mættir!
Það var boðið til veislu í Síkinu
fimmtudaginn sl. þegar Stjarnan kom
í heimsókn. Lið Garðbæinga er vel
skipað og þrælsterkt og er spáð góðu
gengi í vetur. Leikurinn var
æsispennandi allt fram á lokakaflann
en lið Tindastóls var með yfirhöndina
lengstum og náði að standa af sér
góðan kafla gestanna. Gerel Simmons
var hreint frábær í liði Tindastóls,
kappinn gerði 35 stig og átti stærstan
þátt í flottum sigri þar sem liðsheildin
var mögnuð. Það lítur allt út fyrir að
stuðningsmenn Tindastóls séu komnir
með liðið sitt aftur í gírinn. Lokatölur
voru 93-81.
Stjarnan fór betur af stað og hafði
yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Austur-
blokkin okkar virkaði hálf dofin til að
byrja með þannig að Baldur þurfti
aðeins að hreyfa liðið, setti Axel og Pétur
inn á og fékk bullandi baráttu í staðinn.
Það er hreinlega þannig að með Pétur í
liðinu er Tindastólsliðið allt önnur og
betri skepna! Jafnræði var með liðunum
en á lokamínútu fyrsta leikhluta setti
Simmons og Hannes niður þrista,
staðan 26-20.
Gerel Simmons tók leikinn yfir í
öðrum leikhluta og hrein unun að
fylgjast með honum þeytast um völlinn.
Simmons, Bilic og Perkovic breyttu
stöðunni í 44-30 og stuðið í stúkunni
ósvikið. Brotið var á Simmons þegar
skammt var eftir af öðrum leikhluta og
hann setti vítin þrjú niður. Í liði
Stjörnunnar er nú Nikolas Tomsick, sem
var með Baldri í Þór á síðasta tímabili,
setti ævintýralega þriggja stiga körfu rétt
áður en leiktíminn rann út langt fyrir
utan þriggjastigalínuna, staðan í hálfleik
51-38.
Meiri grimmd var í gestunum í þriðja
leikhluta og þeir Ægir Þór og Tomsick
bættu við gír og smám saman dró saman
með liðunum og munaði tíu stigum að
loknum þriðja leikhluta.
Sóknarleikur Stólanna var ekki eins
góður og framan af leik. Nokkrir dómar
féllu með Stjörnumönnum en Stólarnir
héldu forystunni með því að setja niður
nokkra stóra þrista þegar á þurfti að
halda. Þegar minnstu munaði var staðan
78-76, eftir íleggju frá Tomsick. Nú voru
jafnvel reyndustu menn farnir að róa
áhyggjufullir í gráðið. Simmons og Bilic
náðu að höggva á hnútinn í sókn
Stólanna og leikurinn sveiflaðist yfir til
Stólanna á ný. Nú voru það gestirnir sem
virtust hálf sligaðir og þristur frá
Simmons slökkti endanlega í þeim þegar
innan við tvær mínútur voru til
leiksloka.
Simmons var sem fyrr segir á eldi,
gerði 35 stig og þar af aðeins þrjú úr
vítum. Sinisa Bilic var sömuleiðis
drjúgur með 24 stig en kannski er
merkilegasta tölfræðin sú að +/- tölur
Péturs sýna að á meðan hann var inn á
þá unnu Stólarnir með 22 stiga mun!
Allir leikmenn Tindastóls skiluðu góðu
framlagi og rétt að benda á þátt
fyrirliðans, Helga Rafns, sem keyrði sína
menn áfram og fór fyrir þeim í baráttu
og fórnfýsi. Brodnik og Axel voru báðir
með níu stig, Perkovic sjö, Hannes sex,
Pétur tvö og Helgi eitt.
Á morgun, fimmtudaginn 24.
október, fara strákarnir að Hlíðarenda
þar sem þeir mæta liði Vals sem hefur
unnið báða leiki sína hingað til og á leik
til góða gegn liði ÍR. Áfram Tindastóll!
/ÓAB
1. deild kvenna :: Tindastóll 60 – Njarðvík 52
Tess mögnuð í sigri á
Njarðvíkingum
Tindastóll og Njarðvík mættust í
hörkuleik í Síkinu á laugardaginn í
þriðju umferð 1. deildar kvenna. Liði
gestanna var spáð sigri í deildinni af
spekingum fyrir mót og því alvöru
prófraun fyrir lið Tindastóls sem
hafði unnið einn leik en tapað öðrum
það sem af var móti. Góð byrjun
skóp um tíu stiga forystu sem
gestunum gekk illa að vinna upp og
Stólastelpur náðu að landa sætum
sigri eftir harða atlögu gestanna í
lokafjórðungnum. Lokatölur 60-52.
Það var Tessondra Williams sem fór
fyrir liði Tindastóls og hún var
óstöðvandi í byrjun leiks. Hún kom
heimastelpum í 10-5 og þristur frá
Heru Sigrúnu jók muninn í átta stig.
Lið Njarðvíkur reyndi mikið af 3ja
stiga skotum í leiknum (42) en þau
geiguðu mörg í fyrri hálfleiknum.
Bæði lið spiluðu hörku vörn en
gestunum gekk sínu verr að leita inn í
teiginn og því mörg örvæntingarfull
skot sem tekin voru af löngu færi. Lið
Tindastóls var yfir, 17-8, að loknum
fyrsta leikhluta og sama baráttan hélt
áfram í öðrum leikhluta og munurinn
yfirleitt um 7-12 stig. Þristur frá Karen
Lind breytti stöðunni í 32-17 skömmu
fyrir hlé en staðan 32-19 í hálfleik.
Það var ljóst að lið Njarðvíkur
ætlaði að selja sig dýrt í síðari hálfleik.
Barist var um alla lausa bolta um leið
og hraðinn í leiknum jókst. Valdís Ósk
setti niður tvo stóra þrista þegar
harðnaði á dalnum í sóknarleik
Tindastóls og sá til þess að
Njarðvíkingar færðust ekki of nálægt.
Árni Eggert, þjálfari Tindastóls, kippti
Tess, Telmu og Valdísi út af til að hvíla
þær fyrir lokaátökin og óreyndari
stúlkur komu inn. Gestirnir gerðu sitt
besta til að slá þær út af laginu með
mikilli pressu og þegar rúmar tvær
mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta
setti Ása Böðvarsdóttir-Taylor niður
tvö víti og minnkaði muninn í þrjú
stig, 47-44. Þá kom þriggja mínútna
kafli þar sem allt var stál í stál en engin
stig komu á töfluna. Það var svo loks
Tess sem setti niður langan tvist, Erna
Traustadóttir minnkaði í tvö stig með
þristi, en Tess braust upp að körfu
gestanna og setti tvö stig af harðfylgi
og fékk víti að auki. Þristur frá Kareni
Lind í kjölfarið breytti stöðunni í 55-47
og þá var mesti móðurinn af gestunum.
Lokatölur 60-52.
Sem fyrr segir var Tess frábær, gerði
29 stig, tók 16 fráköst þrátt fyrir að vera
með minni leikmönnum vallarins, átti
sex stoðsendingar og var með 43 í
framlag. Þá er hún búin að taka 24
vítaskot í þremur leikjum tímabilsins
og setja öll niður! Valdís Ósk var með
níu stig, Karen Lind átta og Telma Ösp
sjö. Þá stóðu Kristín Halla og Marín
Lind fyrir sínu en allar börðust
stelpurnar af krafti og fögnuðu
sigrinum innilega í leikslok.
Í kvöld, miðvikudaginn 23.
oktbóber, spila stelpurnar við lið
Grindavíkur suður með sjó en nk.
laugardag kemur lið Hamars sunnan
úr Hveragerði og etur kappi við
Stólastúlkur. Það er um að gera að
fjölmenna í Síkið og styðja stelpurnar.
Áfram Tindastóll! /ÓAB
Stólastúlkur að fagna sigrinum. MYND: ÓABSimmons var með 35 stig og 30 framlagspunkta
í þessum leik. MYND: HJALTI ÁRNA.
Fótbolti - M.fl. kvenna
Murielle og Jackie verða áfram á Króknum
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur samið við þær
stöllur, Murielle Tiernan og Jackie Altschuld, um að
leika áfram með liði Tindastóls í 1. deildinni næsta
sumar. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir Tindastól en
þær voru báðar frábærar nú í sumar og það verður
spennandi að fylgjast með Stólastúlkum næsta sumar.
Það er þó svekkelsi að segja frá því að Vigdís Edda
Friðriksdóttir ætlar að flytja sig um set og ganga í raðir
Breiðabliks sem endaði í öðru sæti í efstu deild
kvennaboltans í sumar. Það verður sannarlega
sjónarsviptir að Vigdísi, sem gerði fimm mörk með liði
Tindastóls í sumar og sýndi oft flotta takta, en full
ástæða er til að óska henni til hamingju með þessa
frábæru viðurkenningu á hæfileikum hennar.
Betri fréttir eru að fyrirliðinn, Bryn dís Rut Har alds-
dótt ir, Guðrún Jenný Ágústs dótt ir, Berg ljót Ásta Pét urs-
dótt ir, Krista Sól Niel sen og syst urn ar Hug rún og Ey vör
Páls dætur hafa all ar endurnýjað samn inga sína til eins
árs.
Þá er gaman að segja frá því að Tanner Sica, sem
valinn var besti leikmaður karlaliðs Tindastóls í sumar,
hefur einnig endurnýjað samning sinn við Tindastól og
er það vel.
Jackie spilaði 15 leiki með liði Tindastóls í sumar,
þar af þrjá í Mjólkurbikarnum, og gerði í þeim níu mörk
og átti slatta af fínum stoðsendingum. Hún varð reyndar
fyrir því óláni að fá höfuðhögg upp úr miðju sumri og
gat nánast ekkert tekið þátt í leikjum Tindastóls eftir
það.
Murr ættu nú flestir að þekkja sem á annað borð
fylgjast með boltanum á Króknum en hún hefur verið
nær óstöðvandi upp við mark andstæðinga Tindastóls
síðustu tvö sumur. Í 35 leikjum hefur hún skorað 52
mörk auk þess sem hún hefur lagt upp slatta fyrir
samherja sína. Haustið 2018 var hún valin besti
leikmaðurinn í 2. deild kvenna auk þess að vera
markahæst og hún endurtók þann leik í Inkasso-
deildinni í sumar. /ÓAB
40/2019 5