Feykir - 23.10.2019, Síða 12
Ladies Circle á Sauðárkróki
Standa fyrir
Jólum í skókassa
Ladies Circle eru alþjóðleg góðgerðar- og vináttusamtök kvenna á aldrinum 18-45 ára og er stuðlað að því að
konur kynnist hver annarri og efli, kynnist ólíkum reynsluheimum og margvíslegri menningu. Á Íslandi eru fimmtán
Ladies Circle klúbbar víðsvegar um land og er einn þeirra, sá tólfti, starfræktur á Sauðárkróki. Í klúbbnum eru
sextán konur úr Skagafirði og er Hrund Pétursdóttir formaður hans. Framundan í starfi LC12 er verkefnið Jól í
skókassa sem verður í Ljósheimum á morgun, fimmtudaginn 24. október.
Hrafnhildur Viðarsdóttir er ein þeirra sem skipuleggja
vinnuna í kringum Jól í skókassa og var hún spurð hvað hafi
ráðið því að klúbburinn hafi tekið að sér það verkefni.
„Við höfum rætt það lengi innan LC12 að taka þátt í
þessu verkefni, kannski hafa októberfundinn tileinkaðan því
verkefni eða eitthvað álíka. En einhvern veginn hefur það
hingað til farið fyrir ofan garð og neðan og við oft fallið á
tíma. Svo ákváðum við bara þetta árið að taka af skarið og
bæta um betur með því að bjóða bara öllum á Sauðárkróki að
taka þátt í þessu með okkur. Við nefnilega vitum allar um
einhverja sem langar að taka þátt en vita ekki hvert á að skila
gjöfunum, vita ekki alveg hvernig gjöfunum þarf að vera
háttað og svo framvegis. Þess vegna ákváðum við að halda
svolítið utan um þetta. Forsvarsmenn Ljósheima voru svo
yndislegir að leyfa okkur að vera í Ljósheimum án
endurgjalds frá kl. 17-19 þann 24. október. Þau í Nýprent
voru svo örlát að gefa okkur auglýsingu í verkið og
Skagfirðingabúð mun styrkja okkur með piparkökum eða
einhverju smá snarli sem við getum boðið upp á,“ segir
Hrafnhildur.
Jól í skókassa snýst um að safna saman jólagjöfum,
pökkuðum ofan í skókassa, sem eru svo áframsendar til
Úkraínu þar sem þeim er dreift til barna sem Hrafnhildur
segir að engar gjafir fái annars. „Við munum taka smá forskot
á jólaskapið, spila jólalög og ekki er ólíklegt að stöku jólapeysa
prýði mannskapinn. En hvað varðar gjafirnar, þá eru nokkrar
reglur sem þarf að hafa í huga. Til dæmis þarf að passa upp á
það að umslag sé efst í hverjum kassa með 500-1000 krónum
sem dekkar þann kostnað sem fylgir því að koma gjöfunum
áfram.“
En það er ekki alveg sama hvernig gengið er frá
skókassanum. Svona á að bera sig að:
1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í
jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig
að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í
skóbúðum og mælt er með því að fólk tryggi sér kassa í tæka
tíð.
2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og
fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Á
heimasíðu KFUM má finna tilbúinn merkimiða og prenta.
Klippið miðann út, merkið við réttan aldursflokk og límið
ofan á skókassann. Einnig er hægt að útbúa sína eigin
merkimiða og merkja aldur og kyn á þá.
3. Setjið 500-1.000 krónur í umslag og leggið efst í
kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um
hann.
GJAFIR Í SKÓKASSANA
Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna
flokka:
1. Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó.
Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum
leikföngum.
2. Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður,
skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
3. Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti
tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn.
Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
4. Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða
karamellur.
5. Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.
HVAÐ MÁ EKKI FARA Í SKÓKASSANA?
1. Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
2. Matvara.
3. Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða
hnífar.
4. Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
5. Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
6. Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
7. Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir
fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu
ekki gefnir í skókassana
„Við bendum á að seinustu ár hefur verið alvarlegur skortur
á gjöfum til 11-14 ára drengja, og vonumst við til að bæta úr
því þetta árið,“ segir Hrafnhildur sem vonast til að sjá sem
flesta taka þátt í þessu verkefni klúbbsins. „Hvað er betra en
að starta jólavertíðinni á góðverki?,“ spyr hún og vel er hægt
að taka undir það.
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455
7176 og netfangið feykir@feykir.is
40
TBL
23. október 2019 39. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Skagfirskur annáll
Kristmundur Bjarnason 1847-1947
1849
12. ágúst
Stefán Björnsson frá
Kirkjubæ
í Tungu vígðist
aðstoðarprestur föðurbróður
síns, séra Benedikts Vigfússonar á Hólum, og fluttist
þangað ásamt konu sinni, Önnu Stefánsdóttur.
30. ágúst
Eggert Briem, sýslumanni Eyfirðinga, var falin
rannsókn vegna Norðurreiðar. Hann hóf hana 30.
apríl, stefndi mönnum til yfirheyrslu. Fáir hlýddu kalli.
Nokkrir þó. Umdeilanlegt þótti til að mynda orðfærið:
,,áður en verr fer.“ Þeir, sem hlýddu stefnu, lögðu allir
sama skilning í það, þ.e.a.s. áður en þeir neyddust til að
kæra amtmann. Yfirheyrslum lauk 13. september. Var
ekki talin ástæða til frekari aðgerða. /PF
Lífsstílsáskorun Þreksports hófst
7. janúar sl. og stóð yfir í tólf
vikur þar sem fólki gafst kostur á
að stíga sín fyrstu skref í átt að
bættum lífsstíl. Síðasti dagur
áskorunarinnar var svo
föstudaginn 29. mars, þremur
mánuðum seinna sem endaði á
smá lokahófi áskorunarinnar og
árshátíð Þrekspo ts.
„Aðalmarkmiðið með því að
setja upp áskorunina var að við
vildum skapa fólki tækifæri og
hvatningu til þess að byrja að
hreyfa sig eð halda áfram að
hreyfa sig og gera betur undir
handleiðslu þjálfara stöðvarinnar.
Tilgangurinn átti ekki að vera
öfgafull keppni þar sem heilsu
fólks væri ógnað. Við
mannskepnan erum sterkari í hóp
heldur en ein á báti og félagslegi
þáttur Þreksports hefur hjálpað
einstaklingum að upplifa
hreyfingu á jákvæðan og
skemmtilegan hátt,“ segir Guðrún
Helga Tryggvadóttir, eigandi
Þreksports.
Guðrún Helga og Guðjón Örn
Jóhannsson, þjálfarar í Þreksport,
segja að það sé gaman að líta yfir
og sjá breytinguna hjá fólkinu sem
hefur staðið sig frábærlega síðustu
þrjá mánuðina. Það hafi komið í
ljós í mælingunum fjórum, æði
ummáls-, fitumælingu og vigtun
hversu duglegt fólk er í Skagafirði.
Á þessum þremur mánuðum fóru
1312 sm, 220 kíló og 216,4%
fituprósenta. „Þetta er mjög flottur
árangur og erum við ákaflega stolt
af þessu fólki. Flestir ef ekki allir
komust nálægt sínum markmiðum
og það er eitt af því sem gleður
okkur hvað mest.
Þau sem misstu hlutfallslega mest
fengu vegleg verðlaun,
peningaverðlaun ásamt flottum
gjöfum frá nokkrum fyrirtækjum.
Í fyrsta sæti var Erla Hrund
Þórarinsdóttir. Í öðru sæti lenti
María Dröfn Guðnadóttir og í
þriðja sæti endaði Hlöðver
Þórarinsson. Einnig var
verðlaunaafhending fyrir þann
sem mætti oftast í stöðina sl. þrjá
mánuðina og var það Guðrún
Hanna Kristjánsdóttir.“ /PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
10. apríl 2019 39. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
220 kíló fuku á þremur mánuðum
Lífsstílsáskorun Þreksports
F.v. María Dröfn Guðnadóttir 2. sæti, Guðrún Hanna Kristjánsdóttir 95 mætingar á 84 dögum, Erla Hrund Þórarinsdóttir 1. sæti og Hlöðver
Þórarinsson 3. sæti. AÐSEND MYND.
Um veturinn: ,,Þrjú
hross fórust í snjó-
flóði frá Silfrastöð-
um í Skagafirði og
eitt hrapaði til
dauðs.
Um vorið: Tveir
bátar brotnuðu af
grjóthruni við Drangey, en engan mann sakaði.
Í maí: Nýbýli var byggt í Flatatungulandi, þar sem
að fornu hétu Hinglastaðir, en nú Henglastaðir.
Frumbýlendur á þessu húsmannsbýli voru hjónin
Jón Jónsson ,,blindi“, skáld, og Ingibjörg Guðmunds-
dóttir.
Um vorið: Tinnársel í Austurdal fór í eyði. /PF
Skagfirskur annáll
Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947
1849
Lóuþrælar syngja syðra
Húnvetningar í
Seltjarnarneskirkju
Karlakórinn Lóuþrælar í
Húnaþingi vestra, heldur
sína árlegu vortónleika
í Seltjarnarneskirkju
laugardaginn 13. apríl
kl. 16.00. Dagskráin er
fjölbreytt en flutt verða
verk allt frá perlum
ó p e r u b ó k m e n n t a n n a
yfir í hugljúfa gimsteina
íslenskra sönglaga.
Í tilkynningu frá
kórnum segir að
einsöngvari á tónleik-
unum verði ein fremsta
söngkona okkar Íslend-
inga, Hallveig Rúnars-
dóttir, sópran, sem á
liðnum tónlistarverðlaun-
um var valin söngkona
ársins í klassískum söng.
Stjórnandi kórsins er
Ólafur Rúnarsson og
meðleikari er Elinborg
Sigurgeirsdóttir. Miðasala
fer fram á Tix.is og við
innganginn. /PF
Karlakórinn Lóuþrælar. MYND: Aðsend.
Listamenn hanna verk í Kakalaskála
Á söguslóð Þórðar kakala
Fjölþjóðlegur hópur listamanna
dvelur nú í listasmiðju
Kakalaskála í Kringlumýri, en
hann var fenginn til að hanna
verk in í sýningarrými skálans
og túlka með eigin aðferðum og
efnivið ákveðna atburði og
persónur sögunnar sem nota á í
sýninguna Á söguslóð Þórðar
kakala sem opnar í sumar.
Auk verkanna verða inn á milli
stuttar skýringar, textabrot,
ættartöflur og kort þar sem við á
og verða verkin unnin á staðnum
fram til 15. apríl. Auglýst var eftir
listamönnum til að taka þátt í
verkefninu og bárust alls um 90
umsóknir héðan og þaðan úr
heiminum. Úr þeim hópi voru
valdir 14 listamenn til þátttöku.
Jón Adólf Steinólfsson,
myndhöggvari, er listrænn
stjórnandi sýningarinnar og
vinnur jafnframt að eigin verkum
meðan á listamannabúðunum
stendur. Ferlið verður allt
kvikmyndað og gestum boðið að
koma og sjá listamennina vinna þá
þrjá laugardaga sem þeir eru á
staðnum.
Sýningin mun samanstanda af
hljóðleiðsögn og þrjátíu lista-
verkum en hljóðleiðsögnin leiðir
gesti í gegnum listaverkasýningu
sem sýnir fólk, atburði og staði er
tengjast lífi höfðingjans Þórð r
kakala sem var uppi á Sturlungaöld.
Sýningin mun svo opna fullbúin
sumarið 2019. Söfnun er nú í gangi
á Karolina fund þar sem hægt er að
leggja verkefninu lið. Slóðin er
www.karolinafund.com/project/
view/2387. /PF
Biskup Íslands ásamt föruneyti heimsótti Kakalaskála í gær. MYND af Facebooksíðu Kakalaskála.
Barinn verður opinn í Sæluvikunni.
Sjáumst, Valdi S:849 9434
Feykir.is
Ert þú búinn
að kíkja til okkar?
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra
Auglýst eftir
umsóknum
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir
umsóknum um styrki fyrir árið 2020. Veittir eru styrkir til
atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til
menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til
menningarstarfs. Umsóknarfrestur rennur út
miðvikudaginn 20. nóvember klukkan 16:00.
Í verklags- og úthlutunarreglum sjóðsins segir m.a. að
umsækjendur skuli vera lögráða einstaklingar, félagasamtök,
fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög á Norðurlandi vestra.
Styrkur Uppbyggingarsjóðs getur numið allt að 50% af
áætluðum heildarkostnaði verkef isins.
Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þar sem
boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna,
veittar upplýsingar um styrkmöguleika auk almennrar
aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.
Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þar sem
boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna,
veittar upplýsingar um styrkmöguleika auk almennrar
aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.
Viðtalstímar verða sem hér segir:
Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2, Skagaströnd -
þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 11-12.
Kvennaskólinn, Árbraut 31, Blönduósi -
þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 13-16.
Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6, Hvammstanga -
miðvikudaginn 6. nóvember klukkan 13-16.
Hótel Varmahlíð -
föstudaginn 8. nóvember klukkan 10–12.
Vesturfarasetrið, Frændgarð r, Hofsósi -
föstudaginn 8. nóvember klukkan 10–12.
Skrifstofa SSNV, Faxatorgi, Sauðárkróki -
föstudaginn 8. nóvember klukkan 13-17. /FE