Morgunblaðið - 06.05.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 106. tölublað 108. árgangur
BÚAST VIÐ
ÍBÚÐASKORTI
Á NÆSTA ÁRI
HRYLLILEG
SPÆNSK
ALLEGÓRÍA
ALGJÖR
FORRÉTTINDI AÐ
FÁ AÐ LEIKA JÚLÍU
EL HOYO Á NETFLIX 25 EBBA KATRÍN 24VIÐSKIPTAMOGGINN
Betolvex
Fæst án
lyfseðils
1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur
Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin
(B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti
og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/
fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag.
Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið
vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja-
fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp-
lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
B-12
A
c
ta
v
is
9
1
4
0
3
2
Veðrið lék við konurnar í garðinum hjá Vigdísi Finnboga-
dóttur, fyrrverandi forseta Íslands, í gær þegar hún tók við
leyniskilaboðakerti frá menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar.
Söfnunarátak menntunarsjóðs hófst í gær með sölu á mæðra-
blóminu, í formi kertis, en sjóðurinn styrkir tekjulágar konur
til mennta. F.v. Þórunn Árnadóttir hönnuður, Anna H. Pét-
ursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, Sigríður Thor-
lacius söngkona, Eliza Reid forsetafrú, frú Vigdís og Guð-
ríður Sigurðardóttir, formaður menntunarsjóðsins. »10
Sólin skein glatt þegar Vigdís tók við leyniskilaboðakerti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðni Einarsson
Baldur Arnarson
Þóroddur Bjarnason
Unnið er að samkomulagi viðskipta-
bankanna við Seðlabankann vegna
brúarlána til fyrirtækja í rekstrar-
vanda. Samkvæmt upplýsingum frá
Íslandsbanka miðar vinnu þeirra vel.
Ein tillagan snýr að því að lánin geti
verið til allt að 30 mánaða.
Íslandsbanki hefur tekið við um-
sóknum frá um 500 fyrirtækjum sem
hafa sótt um greiðsluhlé til allt að sex
mánaða. Það er í samræmi við sam-
komulag Samtaka fjármála-
fyrirtækja um tímabundinn greiðslu-
frest á lánum fyrirtækja vegna
heimsfaraldurs Covid-19. Af þeim
umsóknum sem Íslandsbanki hefur
afgreitt hefur innan við 3% verið
hafnað.
Koma vel undan vetri
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, telur að verslanir á Íslandi muni
almennt ekki þurfa á brúarlánum að
halda. Þorri þeirra muni enda standa
af sér kórónuveirufaraldurinn.
„Ástandið hefur gerbreyst. Verslunin
er með nokkrum undantekningum að
sigla í rétta átt,“ segir Andrés og
bendir á aukna netverslun. Það kalli á
fjölgun starfsmanna.
Jafnframt hafi ferðabannið í för
með sér að stór hópur fólks sem
verslaði erlendis versli nú heima.
Hins vegar sé þungt undir fæti hjá
mörgum verslunum í miðborginni.
Þær hafi margar gert út á erlenda
ferðamenn á síðustu árum.
Kringlan nálgast fyrra horf
Sigurjón Örn Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, segir
gestafjöldann í Kringlunni hafa fallið
úr að jafnaði 11 þúsund á hefðbundn-
um virkum degi í rúmlega fjögur þús-
und þegar minnst var. Til marks um
aukninguna hafi um 10.400 manns
komið í Kringluna í fyrradag.
„Ef matvöruverslanirnar eru
undanskildar voru flestir með lág-
marksafgreiðslutíma og starfsmenn-
irnir í 25% starfi. Nú eru þeir hins
vegar að koma hratt til baka. Versl-
unareigendur eru farnir að lengja af-
greiðslutímann. Það er ánægjulegt að
sjá hvað viðspyrnan virðist vera öfl-
ug,“ segir Sigurjón Örn.
Gunnar Gunnarsson, forstöðumað-
ur greiningar hjá Creditinfo, telur að
brúarlán, alls að fjárhæð 71 milljarð-
ur króna, muni duga til að greiða
launakostnað 6.300 lífvænlegra fyrir-
tækja í tvo til þrjá mánuði.
500 fyrirtæki sótt
um greiðsluhlé
Annríki hjá Íslandsbanka Unnið að lengri brúarlánum
Líflína í kreppu
» Með brúarlánum, eða við-
bótarlánum, á að styðja við
fyrirtæki sem orðið hafa fyrir
tekjufalli vegna faraldursins.
» Þegar skilmálar lánanna
voru kynntir um miðjan apríl
var rætt um að hámarksláns-
tími frá útgáfu yrði 18 mánuðir.
» Rætt var um að ríkið veitti
ábyrgð af hluta viðbótarlána
banka til fyrirtækja.
MViðskiptaMogginn
„Það er óþolandi að þurfa að búa
við svona óþrifnað,“ segir Ólafur Kr.
Guðmundsson, varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grafar-
vogi, um ástand gatna og gangstíga í
Reykjavíkurborg. Þótt byrjað sé að
hreinsa og sópa eftir sandaustur
vetrarins er enn rúmur mánuður í
að hreinsibílar láti sjá sig í síðustu
íbúðagötum Reykjavíkur.
Aldís Jónsdóttir, formaður Sam-
taka lungnasjúklinga, kallar eftir því
að götur og stígar séu hreinsuð á
veturna. »6
Sinni þrifum betur
Tveir lánasamningar Icelandair
Group eru í uppnámi vegna þess að
félagið hefur ekki getað staðið við
tiltekin ákvæði þeirra. Heildar-
skuldbindingar tengdar samning-
unum nema 93 milljónum dollara,
jafnvirði 13,7 milljarða króna. Samn-
ingarnir eru skilgreindir sem lang-
tímafjármögnun hjá félaginu en
vegna stöðunnar sem upp er komin
neyðist félagið til að bókfæra skuld-
bindingarnar sem skammtímakröfur
á hendur því.
Í árshlutareikningi félagsins er
ekki tilgreint hvaða ákvæði samn-
inganna eru í uppnámi. Þar er hins
vegar gefið upp að þeir séu á gjald-
daga 2024. Í fyrra tók félagið 80
milljóna dollara lán hjá Landsbanka
Íslands til fimm ára með veði í 10
flugvélarskrokkum og var það gert
til þess að greiða inn á skuldabréf
sem komið var í uppnám þar sem fé-
lagið gat ekki staðið við alla skilmála
þess. »ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Eggert
Flug Icelandair heldur uppi lág-
marksflugi til landsins og frá.
Samningar
í uppnámi