Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 2

Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 2
Morgunblaðið/Eggert Digraneskirkja Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddi málin. Efling hefur verkfallsvörslu í dag  Þorri þeirra sem hófu vinnustöðvun í gær starfar hjá Kópavogsbæ  Samningafundur ekki boðaður Guðni Einarsson gudni@mbl.is Efling efndi til fundar í gær í Digra- neskirkju fyrir félagsmenn sem lögðu niður störf á hádegi og vinna hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi. Fundinum var streymt til fjarstaddra. Sólveig Anna Jónsdóttir, formað- ur Eflingar, segir að um 270 manns hafi lagt niður störf í gær og lang- flestir af þeim starfi hjá Kópa- vogsbæ eða meira en 230 manns. Í dag hefst verkfallsvarsla. „Við byrjum á zoomfundi með fé- lagsmönnum og förum yfir verk- fallsvörsluna. Svo verður hún fram- kvæmd meðan á verkfallinu stendur,“ segir Sólveig Anna. Eflingarfólk vinnur m.a. hjá ræst- ingafyrirtækjum og munu vera skóla sé allt ræstingafólk í Eflingu. Húsnæði þeirra verður því lokað fyrir nemendum í dag, ef ekki semst. Þá hefur verkfallið mismikil áhrif á hina grunnskólana í bænum. Allt starfsfólk sem ræstir leik- skólana Furugrund, Fífusali og Rjúpnahæð og Kópastein að hluta er í Eflingu. Leikskólarnir voru opn- ir í gær og er nánari upplýsinga að vænta. Þá annast Eflingarfólk ræst- ingar á bæjarskrifstofunum og í menningarhúsum Kópavogs. Menn- ingarhúsin verða áfram lokuð og þjónustuver bæjarskrifstofu. Eflingarfólk sem sinnir heima- þjónustu, alls 36, er í ótímabundnu verkfalli. Sótt verður um undanþág- ur vegna brýnustu starfanna. Verk- fallið hefur áhrif á marga aðra þætti. Kennsla fer fram í Grunnskóla Seltjarnarness í dag. Framhaldið er til skoðunar. dæmi um að slík fyrirtæki annist ræstingar í sumum skólahúsum Kópavogsbæjar í verktöku. Sólveig Anna segir Eflingarfólk hjá fyrir- tækjum á almennum markaði taka laun eftir þeim kjarasamningi. Það er því ekki að fara í verkfall. Efling fari fram á að fá það sama og skrifað var undir við Reykjavíkurborg og ríkið. „Við köllum þetta leiðréttingu. Þau sem eru á lægstu laununum fá rétt ríflega 20 þúsund króna hækk- un í viðbót við 90 þúsund króna hækkun lífskjarasamningsins. Svo trappast þetta fremur hratt niður og fer ekki til fólks með há laun,“ segir hún. Í gær var ekki búið að boða samn- ingafund í kjaradeilunni. Kópavogsbær tók saman upplýs- ingar um áhrif verkfallsins. Þar kemur fram að í Kársnesskóla, Álf- hólsskóla, Kópavogsskóla og Sala- 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þór Steinarsson thor@mbl.is Fyrirhuguðu útboði vegna kaupa á þremur þyrlum fyrir Landhelg- isgæsluna verður frestað til ársins 2022 og í staðinn verða leigusamn- ingar vegna tveggja þyrlna sem Landhelgisgæslan er með í notk- un framlengdir. Þá á að leigja eina þyrlu til viðbótar og selja TF- LIF. Þetta staðfesti Ásgeir Erlends- son, upplýsingafulltrúi Landhelgis- gæslunnar. Vísir greindi fyrst frá og hafði eftir Áslaugu Örnu Sig- urbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að með þessu spöruðust um 11,5 milljarðar króna. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Ákvörðunin var tekin í fullu sam- ráði við Landhelgisgæsluna sem gerði tillögur að nokkrum sviðs- myndum til ráðuneytisins, sagði Ásgeir. Allir yrðu að hjálpast að í ljósi aðstæðna og Landhelgisgæsl- an væri ekki undanskilin. Þyrlan sem á að leigja verður líklegast af sömu tegund og þær sem eru nú þegar á leigu, Airbus H225. Fresta þyrlukaupum LHG  Útboði á kaupum á þremur þyrlum frestað til ársins 2022 Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Þyrla Ætlunin er að selja þyrluna TF-LIF og leigja þyrlu í staðinn. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pír- ata, hefur lagt fram fjölda fyr- irspurna á Al- þingi í vikunni um lögbundin hlutverk stofn- ana og kostnað við verkefni þeim tengd. Stein- grímur J. Sigfússon, forseti Alþing- is, upplýsti á þingfundi í gær að fyrirspurnir þessar gætu orðið alls 60-80 talsins. Upphaflega hafði þingmaðurinn lagt fram eina um- fangsmikla fyrirspurn en þar sem svör við fyrirspurnum eiga að vera stutt og hnitmiðuð var henni skipt upp. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fyrirspurnaflóðið og kallaði það gjörning. „Ég tel rétt að ef þing- maðurinn hefur einhvern afmark- aðan sérstakan tilgang með þessu upplýsingaflóði þá væri rétt að það væri upplýst,“ sagði Birgir. Geta orðið 60-80 fyrir- spurnir Björn Leví Gunnarsson  Fyrirspurnaflóð kallað gjörningur „Þetta er ekki grín en ég er ekki að krefjast neins. Þetta er bara til að sýna það að það er fullt af ein- staklingum sem vill að líkamsrækt- arstöðvar verði opnaðar,“ segir Vikt- or Berg Margrétarson. Hann hefur hafið undirskriftasöfnun til þess að þrýsta á stjórnvöld um að opna lík- amsræktarstöðvar um leið og sund- laugar verða opnaðar. Rætt hefur verið um að það geti gerst 18. maí. Tæplega 800 manns höfðu skrifað nöfn sín á listann um þrjúleytið í gær. World Class hefur opnað fyrir bók- anir í fjóra hóptíma í þremur af lík- amsræktarstöðvum sínum hinn 18. maí, að því er fram kemur á heima- síðu fyrirtækisins. Þrýsta á opnun lík- amsræktar Hvalaskoðunarbátar Norðursiglingar og fleiri útgerða á Húsavík liggja nú bundnir við bryggju. Áætlað er að 120-130 manns hafi haft beina atvinnu af hvalaskoð- unarferðum þaðan yfir háannatímann. Nú lítur út fyrir mjög rólegt sumar vegna heimsfaraldursins. Þó verða einhverjir bátar gerðir klárir í hvalaskoðun. Bátarnir bundnir við bryggju Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hvalaskoðunarferðir frá Húsavík hafa laðað að marga ferðamenn Fjórir karlmenn, sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu við Hval- fjarðargöng í lok febrúar, hafa ver- ið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. maí. Menn- irnir verða í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna en lagt hefur verið hald á talsvert magn fíkni- efna við rannsókn málsins. Miðar henni vel að sögn lögreglu. Fjórir karlar verða áfram í varðhaldi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.