Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
Öruggur og nettur verðmætaskápur fyrir heimili. 3 - 8 stafa aðgangskóði ásamt lyklum
ef rafhlöður skildu klárast. Innbyggð 130 dB bjalla fer í gang ef rangur aðgangskóði
er notaður oftar en þrisvar.
VERÐMÆTASKÁPUR
Hæð (cm) Breidd (cm) Dýpt (cm)
Ytra mál 25 35 25
Innra mál 24,2 34 20
Fyrirspyrjandinn Björn LevíGunnarsson pírati stefnir nú að
því að slá eigin met því að inn í þing-
ið hrúgast nú fyrirspurnir sem hafa
engan sýnilegan tilgang. Björn spyr
alla ráðherra um allar stofnanir rík-
isins og eru spurningarnar þessar:
„1. Hvaða lög-
bundnu verkefnum
sinnir [nafn stofn-
unar]?2. Hver er
áætlaður heildar-
kostnaður lögbund-
inna verkefna [nafn
stofnunar] og hver
er áætlaður kostn-
aður hvers verkefnis
samkvæmt fjár-
lögum fyrir árið
2020?“
Birgir Ármanns-son vék að þess-
um fyrirspurnum og
sagðist vilja „vekja
athygli á ákveðnum
gjörningi sem virðist vera í gangi af
hálfu háttvirts þingmanns Björns
Levís Gunnarssonar“.
Píratar brugðust ókvæða við at-hugasemdinni og töldu að Birni
vegið með því hvernig athugasemd-
ina bar að, sem er mjög í anda þessa
innihaldslausa formflokks. En meg-
inatriðið er, eins og Birgir benti á
síðar, að um stofnanir ríkisins „er
fjallað í lögum um viðkomandi stofn-
anir“ og „um fjárveitingar til hverr-
ar stofnunar um sig í fjárlögum“.
Það er þess vegna fráleitur„gjörningur“, svo það sé pent
orðað, af hálfu fyrirspyrjandans að
varpa þeim óþarfa kostnaði á ráðu-
neytin að svara slíkum delluspurn-
ingum.
Það er hins vegar kominn tími tilað einhver þingmaður spyrji að
því hvað allar hinar óþörfu spurn-
ingar pírata kosta skattgreiðendur.
Birgir
Ármannsson
Dýr gjörningur
pírata
STAKSTEINAR
Björn Leví
Gunnarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vegagerðin hefur ákveðið að setja
upp LED-ljós með 25 metra millibili á
vegakantana í Hvalfjarðargöngum til
að leiðbeina ökumönnum.
Hefðbundnar vegstikur eru núna í
göngunum. Þær verða fljótt skítugar
og sjást ekki vel þegar ekið er með
lágu ljósin.
Fram kemur í frétt á vef Vegagerð-
arinnar að LED-ljós séu Norðfjarðar-
göngum og hafi þeim verið mjög vel
tekið. Ljósin gagnist einnig sem rým-
ingarlýsing ef reykur kemur í göngin.
Búið er að opna tilboð í verkið og var
Orkuvirki ehf. Reykjavík með lægsta
tilboð. Áætlað er að hefja verkið í
september, eftir mesta umferðartím-
ann, og á því að ljúka í nóvember.
Hvalfjarðargöng voru opnuð 1998,
því sé ekki óeðlilegt að komið hafi ver-
ið að endurnýjun á einhverjum bún-
aði. Frá því að Vegagerðin tók við
göngunum 1. október 2018 hefur
smám saman verið unnið að ýmsum
endurbótum.
Í göngunum er myndbandsvöktun-
arkerfi sem sett var upp 2010. Það
hefur ekki náð að vakta alla staði í
göngunum, m.a. í beygjunum þar.
Reynt var að bæta úr þessu en árang-
urinn varð ekki sem skyldi. Því hafa
nú verið boðin út kaup og uppsetning
á nýju myndbandsatvikakerfi í göng-
unum . sisi@mbl.is
LED-ljós sett upp í göngunum
Ýmsar endurbætur gerðar í Hval-
fjarðargöngum Voru opnuð 1998
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Göngin Nýju LED-ljósin eiga að
auðvelda ökumönnum aksturinn.
Bættar vegasamgöngur hafa lengi
verið helsta baráttumál íbúa í Árnes-
hreppi og í fimm ára vegáætlun 2019-
2023 er 400 milljóna króna fjárveiting
til Strandavegar um Veiðileysuháls,
sem skiptist til helminga á árin 2022
og 2023. Vegagerðin hefur nú lagt
fram tillögu að matsáætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdanna og er hún aðgengileg á
vef Skipulagsstofnunar.
Fyrirhugað er að breyta legu veg-
arins á 11,8 kílómetra kafla sem nær
frá Kráku í Veiðileysufirði að Kjósará
innst í Reykjafirði, en eldri vegarkafli
er 11,6 kílómetrar. Vegurinn verður
lagður bundnu slitlagi og fer hæst í
250 metra hæð. Strandavegi er ekki
haldið opnum yfir háveturinn á kafl-
anum frá Bjarnarfirði að Gjögri og er
Veiðileysuháls helsti farartálminn á
þeirri leið.
Í góðri fjarlægð frá húsunum
Í frummatsskýrslunni er bent á að
að framkvæmdum loknum verði þó
áfram erfitt að halda veginum um
Kjörvogshlíð opnum að vetrarlagi,
svo að framkvæmdin nýtist helst
þeim sem leið eiga milli Bjarnar-
fjarðar og Djúpuvíkur.
Þar kemur fram að gert er ráð fyr-
ir að nýi vegurinn liggi ofan byggð-
arinnar í Djúpuvík og um Kjósar-
höfða þar sem hann fer framhjá
eyðibýlinu Kjós. Vegurinn verður
lagður í góðri fjarlægð frá frístunda-
húsum og íbúðarhúsum og miðað er
við að leggja hann þannig að hann
hafi minni áhrif á byggðina í Djúpu-
vík en núverandi vegur, segir í frum-
matsskýrslunni.
Núna liggur vegurinn í gegnum
byggðina þar sem aðstæður eru mjög
þröngar og hættulegar. Þaðan liggur
hann milli hótelsins og sjávar og með-
fram sjónum um Kjósarnes.
aij@mbl.is
Styttist í vegabætur
á Veiðileysuhálsi
Nýr vegur ofan
byggðar í Djúpuvík
Ljósmynd/Helga Aðalgeirsdóttir
Djúpavík Núverandi vegur um
byggðina getur verið hættulegur.