Morgunblaðið - 06.05.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020
112738
Opel Crossland X ‘18, ekinn 60 þús. km.
Verð: 2.190.000 kr.
590655
SsangYong Rexton ‘16. ekinn 72 þús. km.
Verð: 4.890.000 kr.
112760
Ísland vill sjá þig í sumar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17
Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
issan Qashqai ‘18, ekinn 63 þús. km.
erð: 2.890.000 kr.
Opel Grandland X ‘19, ekinn 62 þús. km.
Verð: 2.990.000 kr.
Suzuki Vitara ‘19, ekinn 56 þús. km.
Verð: 2.990.000 kr.
SsangYong Korando ‘18, ekinn 54 þús.km
Verð: 3.690.000 kr.
446125
590666
446151
750164
N
V
.
Kaupauki
Eldsneytiskort
að verðmæti 50.000kr.
Sjönætur
að verðmæti 210.000 kr. Ævintýrapottur
Skráðu þig til leiks á notadir.benni.is
með völdum bílum!
SsangYong Tivoli ‘17, ekinn 61 þús. km.
Verð: 2.190.000 kr.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við sem störfum sem sjálfboða-
liðar hjá Mæðrastyrksnefnd sáum á
sínum tíma vel að margar ungar
tekjulágar mæður og einstæðar
höfðu ekki efni á því að ganga
menntaveginn eða afla sér starfs-
réttinda. Þá kom þessi hugmynd frá
Aðalheiði Frantzdóttur fram-
kvæmdastjóra að stofna mennt-
unarsjóð. Fyrir átta árum veittum
við svo fyrstu styrkina og höfum
gert það árlega síðan,“ segir Anna
H. Pétursdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar, en í dag hefst árlegt
söluátak menntunarsjóðs Mæðra-
styrksnefndar, með sölu á mæðra-
blóminu, sem er leyniskilaboða-
kerti. Allur ágóði af sölu rennur
óskertur til menntunarsjóðsins, en
markmið hans er að efla styrkþega
til mennta og auka þannig mögu-
leika þeirra á að finna góð störf
sem geta tryggt þeim og fjöl-
skyldum þeirra öruggari framtíð.
„Það er gaman að fylgjast með
því hversu sjóðurinn hefur eflst,
fyrsta árið fengu aðeins fimmtán
konur styrk en núna eru það rúm-
lega fimmtíu konur sem fá náms-
styrk. Frá upphafi stofnunar hans
hefur sjóðurinn veitt fleiri en 250
styrki til náms og hefur því sann-
arlega skipt sköpum fyrir margar
konur. Í því árferði sem nú er eig-
um við von á að ásóknin verði enn
meiri í styrkina og þess vegna erum
við á fullu að safna peningum í sjóð-
inn,“ segir Anna og bætir við að
auk lausasölunnar sendi konurnar í
Mæðrastyrksnefnd einnig bréf til
fyrirtækja og óski eftir stuðningi
við sjóðinn.
„Við erum þakklátar fyrir hversu
mörg fyrirtæki hafa aðstoðað okkur
og líka einstaklingar, sumir greiða
fastar mánaðargreiðslur í sjóðinn.“
Styrktu fimm barna móður
sem lýkur háskólanámi í vor
Menntunarsjóðurinn veitir kon-
um námsstyrk til fagnáms, starfs-
réttindanáms, framhaldsskólanáms
og háskólanáms.
„Þetta þarf að vera hagnýtt nám
sem sótt er um styrk til að stunda,
svo konurnar geti farið að vinna við
fagið. Flestar hafa sótt um styrk
vegna náms í Háskóla Íslands, en
iðnnám er að sjálfsögðu líka meðal
þess sem við styrkjum. Við höfum
styrkt margar konur í framhalds-
skólum til þess að taka stúdents-
próf, svo þær geti í framhaldinu
farið í háskólanám. Þannig að við
fylgjum þeim eftir, og sumar kon-
urnar hafa fengið styrk frá okkur
til margra ára samfleytt, þær þurfa
aðeins að sýna að þær hafi náð
prófum svo þær fái áframhaldandi
styrk. Ég hef fylgst með konum
sem hafa fengið styrki í þau átta ár
sem liðin eru frá því við styrktum
fyrstu konurnar. Meðal þeirra er til
dæmis ein fimm barna móðir sem
þurfti að klára stúdentinn, gerði
það með sóma og fór svo í há-
skólanám sem hún klárar í vor. Við
höfum styrkt hana öll þessi ár, sem
er einkar ánægjulegt. Það er dýr-
mætt fyrir okkur að fá að fylgjast
með þessum konum og kynnast
þeim. Við sendum þeim alltaf póst
um jólin og bjóðum þeim að koma í
jólaúthlutun þar sem þær fá kort,
en við reynum að gera aðeins meira
fyrir þær, því við erum afskaplega
stoltar af þeim. Mér finnst svo gam-
an að fá að sjá þær, þetta hefur ver-
ið langskemmtilegasta verkefnið frá
því ég byrjaði að starfa sem sjálf-
boðaliði. Þetta gefur þeim mikið
sjálfstraust, að geta sótt sér mennt-
un og vaxið. Fyrst eru þær feimnar
og uppburðalitlar en núna kjaftar á
þeim hver tuska. Við sjáum þær efl-
ast,“ segir Anna og bætir við ekki
sé skilyrði að konur sem sæki um
styrki eigi börn eða séu ungar.
„Þetta er opið fyrir konur á öllum
aldri, við höfum líka styrkt konur
um fimmtugt til náms.“
Covid setur strik í reikninginn
Anna segist þakklát fyrir hversu
almenningur sé ævinlega tilbúinn til
að leggja þeim lið þegar hið árlega
söfnunarátak fer af stað.
„Það hefur gengið sérstaklega vel
eftir að við fórum að selja kertin,
þau hafa verið svakalega vinsæl
enda eru þau frábær gjöf á mæðra-
deginum. Þetta er í þriðja sinn sem
við erum með kerti til sölu en Þór-
unn Árnadóttir hönnuður hefur
hannað þau og gefur okkur vinnu
sína. Þegar kveikt er á kertunum
koma í ljós skilaboð fyrir mömmu,
en sum kerti eru með hlutlaus
skilaboð, eins og til dæmis: Þú ert
frábær,“ segir Anna og bætir við að
núna hafi þær fengið Sigríði
Thorlacius söngkonu til liðs við
söfnunina.
„Hún hefur tekið upp lagið Litli
tónlistarmaðurinn, sem dreift verð-
ur ásamt nýju leiknu myndbandi á
samfélagsmiðlum.“
Anna segir að Sigríður Thorlac-
ius, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti, og Eliza Reid, núver-
andi forsetafrú, séu allar þrjár
sérstakir stuðningsaðilar átaksins í
ár.
„Venjan er að við seljum kertin á
göngunum í Kringlunni og Smára-
lind en nú er það ekki hægt vegna
covid. Við hvetjum fólk til að versla
á netinu, nú eða í þeim verslunum
þar sem kertin fást, í verslunum
Pennans-Eymundssonar á höfuð-
borgarsvæðinu og á Akureyri, í
Epal í Skeifunni og Kringlunni,
Snúrunni, Eldum rétt, og í netversl-
un hjá Nettó og Heimkaup.is,“ seg-
ir Anna sem er full bjartsýni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðistund Vigdís tók á móti kertinu sínu í gær. F.v. Eliza Reid, frú Vigdís, Guðríður Sigurðardóttir, formaður
menntunarsjóðs, Sigrún K. Sigurjónsdóttir, Guðrún Inga Ingólfsdóttir og Þórunn Árnadóttir, hönnuður kertis.
Frábært að sjá konurnar eflast
Árlegt söluátak menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar fór af stað í gær Allur ágóði rennur
óskertur til menntunarsjóðs sem styrkir tekjulágar konur til mennta Gefur konunum sjálfstraust
Mæðrablóm menntunarsjóðs Mæðra-
styrksnefndar er í formi leyniskila-
boðakertis sem selt er nú til styrktar
tekjulágum konum til mennta. Kertin
eru í postulínsskálum og þegar kveikt
er á þeim og vaxið bráðnar koma
smátt og smátt í ljós skilaboð á botni
skálarinnar. Þórunn Árnadóttir er
hönnuður kertisins. Alls geta kaup-
endur valið um fimm mismunandi
texta. Kertin eru kjörin tækifærisgjöf,
sérstaklega á mæðradaginn. Salan á
kertunum fer fram frá 5.-19. maí.
Hægt er að sækja um styrk til 20.
júní fyrir næsta skólaár.
Umsókn um styrk frá sjóðnum ásamt fylgigögnum má senda á net-
fangið: maedur@simnet.is, en hægt er að fylla út umsóknarblöð á heima-
síðu þeirra maedur.is, undir flipanum menntunarsjóður.
Mæðrablómið er leyniskila-
boðakerti sem gleður
SKILABOÐ Á BOTNI SKÁLAR KOMA SMÁTT OG SMÁTT Í LJÓS
Leyniskilaboð