Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 13

Morgunblaðið - 06.05.2020, Page 13
Það er hlutverk fræðimanna í lögfræði að skýra dóma æðsta dómstólsins, þannig að menn geti áttað sig á hvað í þeim felist. Þeg- ar Hæstiréttur sakfellir menn fyrir umboðssvik, án þess að telja auðg- unarásetning sann- aðan, eins og lög krefj- ast, er gott fyrir okkur ófróð að fá að vita hvaða skilyrði rétturinn býr til og set- ur í staðinn fyrir skilyrðið sem lögin áskilja. Friðrik Árni Friðriksson Hirst skrifar í Morgunblaðið sl. þriðjudag, að í staðinn fyrir sönnun á auðgunar- ásetningi hafi Hæstiréttur ákveðið að komið hafi „veruleg fjártjónshætta“. Það er auðvitað hvergi í lögum að finna heimild fyrir því að rétturinn megi gera þetta. En hann hefur samt gert það aftur og aftur. Og þá er þarft að fræðimenn segi okkur nánar efni þessa nýja skilyrðis fyrir refsingum sem hvergi er heimilað í lögum. Friðrik Árni reynir að gera þetta. Hann dregur nánast þá ályktun af dómaframkvæmd Hæstaréttar að mis- notkun á aðstöðu sé þáttur í skilyrðinu um auðgunarásetning. Þetta er skrítið þar sem þetta eru tvö aðskilin skilyrði fyrir því að refsa megi fyrir brot gegn ákvæðinu. Það er auðvitað engin glóra í því að rétturinn hendi út skilyrðinu um auðg- unarásetning á þeirri forsendu að aðstaða hafi verið misnotuð. Samt er auðvitað nauðsynlegt að menn átti sig á aðferðafræði rétt- arins, ef það er á annað borð mögu- legt. Friðrik Árni reynir að gera það og á skilið hrós fyrir þá viðleitni. Valin dæmi Því miður tekst honum ekki alveg nægilega vel upp því hann velur að- eins úr dóma þar sem hann telur að þessu tilbúna skilyrði hafi verið full- nægt. Hann sleppir hins vegar öðrum þar sem svo var sýnilega ekki. Þann- ig tekur hann til dæmis ekki með dóm réttarins frá 8. október 2015 í máli nr. 456/2014 (Ímon), þar sem Hæstiréttur sneri sýknudómi í héraði í áfellisdóm í Hæstarétti. Í því máli hafði bankinn verið að selja hlutabréf sem hann átti sjálfur. Fyrir lá í mál- inu að lánsféð fór aldrei út úr bank- anum, því bankinn tók það sjálfur til greiðslu á hlutabréfunum sem við- semjandinn var að kaupa. Hlutabréf- in urðu kaupandanum heldur ekki frjáls til ráðstöfunar, þar sem bank- inn hélt þeim til tryggingar fyrir end- urgreiðslu lánsins. Nokkrum dögum síðar féll bankinn og hin seldu hlutabréf urðu verðlaus. Það hefðu þau auðvitað líka orðið þó að bankinn hefði átt þau áfram. Bankinn beið því engan skaða af þessum viðskiptum og aldrei skap- aðist nein hætta á því að svo færi. Í forsendum Hæstaréttar í málinu var tekið fram, að hinir ákærðu hefðu við þessa lánveitingu farið að öllu leyti eftir skriflegum reglum bankans um það efni. Jafnframt var auðvitað ljóst að sakborningar höfðu ekki í hyggju að láta nokkurn mann auðg- ast á kostnað bankans, hvorki sjálfa sig né viðsemjandann. Það hefðu reyndar verið einhvers konar hugar- órar að ímynda sér að slíkt hafi vakað fyrir þeim. Augljóst var í málinu að viðskiptin höfðu af þeirra hálfu verið gerð í þágu bankans. Engin aðstaða hafði verið misnotuð, engum hags- Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Við hljótum að meta viðleitni fræðimanna við að varpa ljósi á forsendur dóma, og þá ekki síst þegar beitt er tilbúnum refsiskilyrðum, sem fræði- menn höfðu ekki áttað sig á fyrr að koma mættu í staðinn fyrir hin lögmæltu skilyrði. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögfræðingur. Skýringar fræðimanns munum var fórnað og enginn auðg- unartilgangur fólst í viðskiptunum. Við hljótum að meta viðleitni fræðimanna til að varpa ljósi á for- sendur dóma, og þá ekki síst þegar beitt er tilbúnum refsiskilyrðum, sem fræðimenn höfðu ekki áttað sig á fyrr að koma mættu í staðinn fyrir hin lögmæltu skilyrði. Eigi þessi viðleitni að gagnast okkur verða viðkomandi fræðimenn að skoða öll dæmi um slíkt en ekki einungis þau sem þjóna þeim tilgangi sem þeir kunna að vilja þjóna. Brúarlánin Friðrik Árni telur að dómar Hæstaréttar séu ekki líklegir til að notast sem fordæmi í tilvikum svo- nefndra brúarlána, sem stjórnvöld hvetja nú banka til að veita, þó að vit- að sé að hluti þeirra muni aldrei fást endurgreiddur. Ég er sammála því. Að vísu er það svo að við veitingu slíkra lána mun viðkomandi banka verða valdið augljósri og „verulegri fjártjónshættu“. Hrundómarnir gera slíkar lánveitingar refsiverðar. En nú munu lánin verða veitt fyrir hvatn- ingu stjórnvalda, hvað sem allri taps- áhættu líður. Það mun því ekki þurfa neina „misnotkun á aðstöðu“ starfs- manna banka til að tapa þessum pen- ingum bankanum til tjóns vegna þess að allir vita fyrirfram að slíkt tjón muni af hljótast. Og það er afar lík- legt að spá Friðriks Árna um að þetta teljist verða í lagi muni rætast ef á það reynir fyrir dómi. En það er þá aðallega vegna þess að dómstóllinn er ekki líklegur til að fylgja eigin for- dæmum við lögskýringar ef vind- urinn blæs úr annarri átt en hann gerði áður. Er ekki lífið í lögfræðinni dásam- legt? 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 Breyttir tímar Í vikubyrjun var slakað á samkomubanni stjórnvalda. Enn er þó ætlast til að ákveðinni fjarlægð sé haldið í samskiptum við annað fólk – ekki gengur að fara yfir strikið. Eggert Þessa dagana virðist vera að birta til varð- andi heilsufarslegar af- leiðingar COVID-19- faraldursins hér á landi. Auðvitað ber okkur áfram að fara varlega og eins verðum við að gæta þess að fagna ekki of fljótt, en flest bendir þó til þess að við séum komin í gegnum erfiðasta tímabilið að því leyti. Öðru máli gegnir um efnahags- lega þáttinn. Þar erum við enn í storminum miðjum og enn eiga hin- ar efnahagslegu afleiðingar eftir að koma fram af fullum þunga. Stjórn- völd og Alþingi hafa þegar stigið mörg skref til að bregðast við þessu mikla höggi og enn eru margvíslegar aðgerðir í pípunum. Flestar þessar aðgerð- ir hafa til þessa miðast að því að takmarka tjónið í hagkerfinu eins og kostur er og milda afleiðingarnar fyrir fyrirtæki og launafólk með ýmsum hætti. Þegar gríðarlegur samdráttur verður í landsframleiðslu og öll starfsemi í einni helstu atvinnugrein lands- manna svo gott sem stöðvast liggur í augum uppi að áhrifin finnast víða og verða sárs- aukafull. Þing og ríkisstjórn geta ekki afstýrt því en verða hins vegar að gera það sem í þeirra valdi stend- ur til að skaðinn verði ekki meiri en óhjákvæmilegt er og jafnframt að búa í haginn fyrir endurreisn og uppbyggingu að faraldrinum af- stöðnum. Skref fyrir skref munum við færa okkur meira frá bráðabirgðaaðgerð- um og tímabundnum ráðstöfunum yfir í aðgerðir sem eiga að standa til lengri tíma. Búast má við því að á sama tíma aukist pólitískur ágrein- ingur um aðferðir og leiðir til að byggja að nýju upp öfluga atvinnu- starfsemi í landinu. Ekki þarf að koma á óvart þótt pólitísk stefnu- mörkun kalli á skoðanaskipti og jafnvel átök. Það er auðvitað æski- legt að ná eins víðtækri samstöðu og kostur er en við verðum að horfast í augu við að það er ekki alltaf mögu- legt. Hins vegar skiptir afar miklu máli að það náist nokkuð víðtæk sátt um helstu markmiðin; að allir stefni nokkurn veginn í sömu átt þótt ágreiningur kunni að koma upp um einstök skref eða aðgerðir. Ég geri ráð fyrir að í huga flestra sé mikilvægast að koma hjólum at- vinnulífsins aftur af stað, fjölga störfum á ný, auka aftur útflutnings- tekjur og renna nýjum og styrkari stoðum undir lífskjör alls almenn- ings í landinu. Það segir sig sjálft að þegar starfsemi mikils fjölda fyrir- tækja stöðvast eins og hendi sé veif- að og tugir þúsunda missa vinnuna þá hlýtur öll áhersla hinnar pólitísku forystu í landinu að miðast við við- brögð við því. Tími, orka og athygli stjórnmálamanna hlýtur að beinast að slíkum viðfangsefnum. Um leið verða þeir að sætta sig við að setja önnur áhugamál sín til hliðar, að minnsta kosti um sinn. Meðan við glímum við efnahagskreppu, sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi, er ekki hjálplegt eða líklegt til árang- urs að stjórnmálamenn berist á banaspjót vegna hugsanlegra stjórnarskrárbreytinga, Evrópu- sambandsaðildar eða einhvers konar róttækrar umbyltingar á þjóðfélags- gerðinni. Eins og dæmi eru um frá fyrri tíð kann að vera freisting fyrir einhverja að reyna að nýta ástandið og erfiðleikana til að ná einhverjum óskyldum pólitískum markmiðum. Slíkt ber auðvitað að varast, enda er það vísasti vegurinn til að tefja fyrir og trufla vinnuna við hin brýnu við- fangsefni sem við stöndum frammi fyrir á næstu vikum og mánuðum. Við skulum ekki gera okkur þau verkefni erfiðari en ella með því að kveikja aðra elda að óþörfu. Eftir Birgi Ármannsson »Eins og dæmi eru um frá fyrri tíð gætu einhverjir freistast til að nýta ástandið og erfið- leikana til að ná ein- hverjum óskyldum póli- tískum markmiðum. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Einbeitum okkur að aðalatriðunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.