Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 06.05.2020, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 ✝ Óskar Haf-steinn Frið- riksson fæddist í Reykjavík 29. jan- úar 1958. Hann lést á Nesvöllum 20. apríl 2020. For- eldrar hans eru Friðrik Grétar Ósk- arsson og Karólína Guðnadóttir. Systk- ini Óskars eru Guð- ný Svava og Krist- inn Geir. Hinn 11. nóvember 1980 kvæntist Óskar Þórunni Kol- brúnu, dóttur Árna Sigurjóns- sonar og Þorbjargar Krist- insdóttur. Þau eignuðust fimm börn: 1) Árni Grétar, maki Unnur Helga Snorradóttir, börn El- ísabet Sara, Auðunn Snorri, Þórunn Kol- brún og Bergþóra Sif. 2) Karólína Björg, maki Sig- urður Guðjónsson, börn Óskar Ingi, Guðný Þóra og Tómas Orri. 3) Frið- rik Guðni, maki Al- dís Sif Bjarnadóttir, barn Fríða Jenný. 4) Þórey Jóhanna, maki Haukur Óli Snorrason, börn Gabríel Ben, Hafsteinn Leó, Manúela Freyja og Haukur Frosti. 5) Katrín Ósk. Útför Óskars fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 6. maí 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku besti pabbi okkar og tengdapabbi. Nú er komið að kveðjustund og þú farinn yfir í sumarlandið. Þú varst einstakur maður, með hjarta úr algjöru gulli. Ófáar eru sögurnar sem þú hefur sagt okkur öllum. Alltaf var stutt í brosið, hláturinn og góða skapið. Alltaf sýndirðu okkur ást og umhyggju og gafst allt af þér. Þú gerðir allt fyrir okkur og varst alltaf fyrstur að rétta fram hjálp- arhendi, alveg sama hvað það var. Þú hefur kennt okkur svo margt í lífinu og eitt af því er að hlutirnir eru ekki alltaf ónýtir þó svo að við höfum haldið það margoft. Þú t.d. komst eitt skiptið heim til Árna og Unnar á Sóltúnið að sækja stofu- borðið og fara með það á haugana og Unnur líka svona rosalega glöð að losna við borðið en nei, nei, þúsundþjalasmiðurinn bara redd- aði þessu, þú sóttir borðið og fórst með það heim og út í skúr og lag- aðir það! Mættir svo tveim tímum seinna með borðið og sagðist hafa lagað það, Unni ekki til mikillar gleði en þú alltaf svo handlaginn og flottur. Eitt skiptið lagaðir þú bílinn fyrir Karó áður en hún og Frikki fóru norður. Það var eitt- hvert hljóð sem átti ekki að vera og þau opnuðu húddið á Blöndu- ósi og þar voru verkfærin þín þar sem þú lagðir þau frá þér en þú hafðir gleymt að taka þau, það sem þú hlóst þegar þau hringdu í þig til að segja þér hver ástæðan var fyrir hljóðinu sem þau vorum búin að heyra. Það lýsir því líka einstaklega vel hversu góður pabbi þú varst þegar Frikki vildi alltaf fá að vera heima með þér að dunda í skúrnum í staðinn fyrir að fara á leikskólann. Ófá skiptin komstu og bjargaðir Þóreyju þeg- ar það komu býflugur eða geit- ungar inn til hennar. Minnisstæð- ast er þegar Þórey hringdi í þig að kvöldi til og bað þig um að koma og taka risastóru býfluguna sem var komin inn í eldhús til hennar og þú hjólaðir yfir til hennar. Um leið og þú varst kominn fyrir utan flaug býflugan útum gluggann og Þórey hleypur út til þín til að segja þér að þú getir snúið við og farið heim, þá náttúrlega skelli- hlóstu og sagðir „þú ert ekki í lagi krakki“ og hún klár með svarið sitt „ég elska þig líka pabbi“ og svo hjólaðir þú aftur heim. Svo þegar mamma söng fyrir Katrínu lagið „Katarína Katarína, Kat- arína er stúlkan mín“ þá heyrðist alltaf í Katrínu „nei hans pabba“ enda langbesti pabbinn. Við gæt- um skrifað endalaust um þig, elsku gullið okkar. Þín verður sárt saknað af öllum sem þekktu þig. Hvíldu í friði elsku hjarta - við elskum þig. Árni, Unnur, Karólína, Sig- urður, Friðrik, Aldís, Þórey, Haukur og Katrín. Elsku besti afi okkar. Takk fyr- ir að vera alltaf til staðar fyrir okkur, takk fyrir allt sem þú gerð- ir fyrir okkur og takk fyrir allar minningarnar sem þú skapaðir með okkur. Þú gast endalaust brasað og leikið með okkur. Ófá skiptin dunduðum við með þér í skúrnum og fengum alltaf að leika í jeppanum með þér. Þú passaðir alltaf upp á að amma keypti súkkulaðirúsínur í búðinni svo þú gætir gefið okkur enda varst þú fyrstur að stelast til að gefa okkur öllum súkkulaðirúsínur þegar við vorum lítil og ef það kom fyrir að amma gleymdi að kaupa þær labbaðir þú í búðina á horninu til að kaupa þær. Það sem við hlóg- um alltaf saman, allir brandararn- ir þínir sem þú sagðir og öll vit- leysan. Við munum alltaf halda áfram að segja brandarana þína og halda minningunum öllum uppi. Takk fyrir allt, elsku afi okkar. Hvíldu í friði. Við elskum þig. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu.. (Ásmundur Eiríksson) Auðunn, Þórunn, Berg- þóra, Óskar, Guðný, Tómas, Gabríel, Haf- steinn, Manúela, Haukur og Fríða. Ég sit og læt hugann reika og reyni að koma orðum á blað. Þetta er allt svo óraunverulegt að þú sért farinn og það er svo sárt. Þú þessi stóri og sterki bróðir. Sem lítil skotta var gaman að fá að koma í herbergið þitt og hlusta á plötur og skoða dótið þitt sem þú fórst vel með. Þér fannst ekki eins spennandi þegar ég tók mig til og setti plötu sjálf á fóninn á flottu Bang & Olufsen græjunum og lést mig vita að það yrði að gera þetta varlega. Svo kom black- light-ljósið í herbergið og manni fannst maður eiga mest töff bróð- ur sem til var. Þú varst einstak- lega góður við okkur yngri systk- ini þín og það var gaman þegar þú varst að koma heim af sjónum og fórst og keyptir eitthvert gotterí eða þegar þú komst úr siglingum, þá færðir þú okkur eitthvað sem þú hafðir keypt í útlöndum. Við litum upp til þín og fannst þú vera svo flottur. Þú varst góð fyrir- mynd í öllu, allt lék í höndunum á þér hvort sem það var að smíða, mála, vesenast í pípulögnum eða gera við bíla. Dugnaðarforkur til vinnu og þú heyrðist aldrei kvarta. Þú varst úrræðagóður og margar reddingar hafa verið framkvæmdar í skúrnum á Birki- teig. Þið Þórunn áttuð einstak- lega vel saman, eignuðust stóran hóp og þú unnir fjölskyldunni þinni og barnabörnin voru þín gull. Þú hafðir einstakan húmor og hafðir gaman af að grínast í fólki en það var alltaf saklaust grín. Það verður erfitt að heyra ekki hláturinn þinn aftur og fá ekki símtalið frá þér á afmælis- daginn en ég trúi að þér hafi verið ætlað annað hlutverk og ég veit að vel var tekið á móti þér í sum- arlandinu. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku, mamma, pabbi, Kiddi, Þórunn, Árni, Karó, Friðrik, Þór- ey, Katrín, tengdabörn og barna- börn, missir ykkar og okkar allra er mikill. Minningin um góðan mann lifir áfram í huga okkar og við höldum henni á lofti. Hvíldu í friði, kæri bróðir, og við hittumst þegar minn tími kemur. Þín systir Guðný Svava. Óskar var því sem næst ung- lingur þegar hann kom inn í fjöl- skylduna. Þórunn systir okkar réð sig í vist í Borgarfirðinum sumarið 1977 og um haustið þeg- ar hún sneri aftur heim á æsku- heimilið ljómaði hún og kynnti vin sinn Óskar, sem síðar varð eig- inmaður hennar. Síðan eru liðin mjög mörg ár. Þórunn og Óskar settust að í Keflavík og eignuðust fimm elskuleg börn og fjölmörg barnabörn og hafa þau öll misst mætan föður og afa. Óskar var góður faðir og afi, alltaf hress og kátur en stríðinn var hann. Stríðni hans var góðlátleg og kom fólki til að hlæja en meiddi engan. Margs er því að minnast. Hvort heldur sem um er að ræða fjöl- skylduboð, sumarbústaðarferðir, veiðiferðir eða aðeins dagspart eða kvöldstund þar sem setið var við spjall og hlegið. Allar þessar samverustundir og hjálpsemi hans munum við geyma í minni okkar um ókomna tíð. Óskar var traustur, duglegur og mjög hand- laginn. Mamma sagði oft að hún þyrfti engan iðnaðarmann: „Ég hringi bara í Óskar, það er svo gott að leita til hans.“ Við erum viss um að þetta hefur verið sagt á mörgum heimilum því hann var mjög hjálpsamur og hann gat allt. Hann var aldrei svo tímabundinn að hann kæmi ekki undir eins til hjálpar, þegar eftir því var leitað. En Óskar fékk sjúkdóm sem tók af honum völdin og breytti öllu. Harðduglegur maðurinn varð að sætta sig við að vera heima og hafa hægt um sig og hætta að geta hjálpað öðrum. Þessi duglegi maður lét samt ekki sjúkdóminn stoppa sig því hann gerði allt sem hann gat. Hann gladdist með börnum og barnabörnum við hvert tækifæri. Fór í ferðalög inn- anlands og utan. En að lokum tók sjúkdómurinn yfirhöndina. Hug- urinn er hjá systur okkar og mág- konu og hennar stóru fjölskyldu sem hefur misst mikið og guð gefi þeim styrk í sorginni. Við kveðj- um góðan fjölskyldumeðlim og vin með virðingu og þökkum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Þóra, Auður og Sigurbjörn. Elskulegur frændi minn er far- inn í sína hinstu sjóferð yfir í Sumarlandið eftir erfið veikindi. Óskar var mikill dugnaðarforkur og taldi ekkert eftir sér, hvort sem það var á sjónum eða í kring- um fjölskylduna, sem var honum allt. Hann leitaði til mín þegar eitthvað bjátaði á varðandi heils- una og áttum við margar góðar stundir saman síðastliðin ár þegar hann kom í sjúkraþjálfun og ræddum ýmsa hluti. Óskar var alltaf jákvæður, með húmorinn að vopni, og hafði sérstaklega gaman af því að segja sögur af barna- börnunum sem voru honum svo kær. Alltaf fór hann eftir því sem honum var sagt, meðferðarheldn- in upp á 100%, sem lýsir honum best. Það var erfitt að horfa upp á það hvernig sjúkdómurinn tók yf- ir þannig að ekkert varð við ráðið. Eftir sitja fjölskylda og vinir í sorg og reyna nú að ylja sér við fallegar minningar um einstakan mann. Nú ertu farinn elsku frændi minn. Frá okkar veröld lausn fékk andi þinn. Á himnaboga blika stjörnur tvær. Hve brosi í augum þínum líkjast þær. Nú gengur þú til fundar Frelsarans. Friðargjafans, náðar sérhvers manns. Þar englar biðja í bláum himingeim og bíða þess þú komir loksins heim. (Svava Strandberg) Elsku Þórunn og fjölskyldan öll, ég votta ykkur mína dýpstu samúð, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Risastórt faðmlag til ykkar allra. Björg Hafsteinsdóttir. Óskar Hafsteinn Friðriksson best að koma í kaffi til ykkar afa og spjalla við ykkur um allt og ekkert. Hvergi leið okkur eins vel með kaffibollann og hvergi fengum við betra kaffi. Það er minnisstætt að helst var ekki hægt að koma í heimsókn á yngri árum án þess að búið væri að koma manni fyrir á gólfinu í þeim tilgangi að klippa á okkur neglurnar og það er minnisstætt að þú tókst það upp á þitt eins- dæmi að koma okkur í klippingu. Þá var hvergi betra að gista enda fötin sett á ofn um nóttina svo að hægt væri að klæða sig í heit föt á morgnana. Það var sér- staklega gaman að heimsækja Hveravelli og Laxamýri með ykkur afa á árum áður. Þegar við síðan urðum eldri og komum að poka fullum af grænmeti hangandi á útidyra- hurðinni vissi maður alltaf að amma hefði komið við með send- ingu að norðan. Það var alltaf hægt að reiða sig á að amma væri til staðar, jafnvel þó það væri bara að biðja hana um að skutla sér eitthvert og þá lá allt- af fyrir að amma myndi hringja á afmælinu og óska manni til ham- ingju. Sömuleiðis höldum við mikið upp á og munum ávallt varðveita afmælis- og jólakortin frá ykkur afa, sem höfðu alltaf að geyma fallega kveðju og ljóð. Við viljum saman þakka fyrir allar góðu stundirnar og alla þá hlýju og gleði sem þú veittir okkur. Þín barnabörn, Unnsteinn Örn, Edda María og Hugrún. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) María Atladóttir, tengdamóðir mín, er látin. Fyrir mér er þetta allt frekar óraunverulegt, þar sem ég hitti hana ekkert frá því að heimsóknarbann var sett á hjúkrunarheimilin. Ég var aðeins 16 ára gömul þegar ég kom inn í fjölskylduna. Ég var hálf smeyk við Maju í fyrstu og man hvað ég vandaði mig sérstaklega við að nefna eig- inmann minn réttu nafni, „Jó- hann“ en alls ekki „Jói“. Tengda- móðir mín var seintekin en afar trygglynd og reyndist mér og mínum einstaklega vel. Maja var ekki venjuleg hús- móðir. Hjá henni var alltaf allt í röð og reglu en hún var ekki mikið fyrir eldamennsku og ég man aldrei eftir því að hún hafi bakað. En Maja var mjög vand- fýsin á vörur sem hún þurfti að kaupa og ég er ekki frá því að hún hafi smitað mig af því. Maja var mikill sóldýrkandi og fóru tengdaforeldrar mínar í margar sólarlandaferðir. Hún var ekki mikið fyrir að bera á sig sólarvörn, vildi frekar sólarolíu. „Skinnin“ hennar sakna ömmu sinnar enda vildi hún allt fyrir þau gera. Hún tók það t.d. að sér að fara með þau í klippingu fyrstu árin og hún gaukaði alltaf einhverju að þeim áður en þau fóru í ferða- lög til útlanda. Öll tækifæriskort sem hún sendi vinum og vandamönnum voru einstök því hún gætti þess ætíð að skrifa skemmtileg ljóð með kveðjunum. Mörg þeirra voru eftir afa hennar Baldvin Friðlaugsson en önnur skrifaði hún upp úr bókum og blöðum. Margar kveðjurnar frá henni á ég enn og geymi vel. Að leiðarlokum kveð ég kæra tengdamóður með virðingu og þakklæti. Linda Björg Pétursdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI GUÐNASON Lambastekk 7, Reykjavík, lést mánudaginn 20. apríl. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 11. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Rósa Sólrún Jónsdóttir Þórir Már Guðnason Elísa Arnarsdóttir Svavar Leó Guðnason Lotta Kaarina Nykänen Vaka Rós Þórisdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN RÚNARSDÓTTIR, Básahrauni 15, Þorlákshöfn, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 3. maí. Guðmundur R. Ársælsson Rúnar Guðmundsson Hanna Agla Ársæll Guðmundsson Lilja Karen Björgvinsdóttir Ásta Björk Guðmundsdóttir Viggó Ingason Jakob Hrafn Elskuleg dóttir mín, stjúpdóttir og systir, FARIDA SIF OBAID, lést á líknardeild Landspítalans 21. apríl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Anna Svandís Gunnarsdóttir Birgir Karl Guðmundsson Nadeem Nielsen Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN G. ÞORSTEINSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis að Mýrarvegi 111, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 3. maí. Vegna aðstæðna í samfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey. Sigurður G. Flosason Flosi Þórir Sigurðsson Þórunn S. Sigurðardóttir Adolf Ingi Erlingsson Steinþór G. Sigurðsson Kristín Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.