Morgunblaðið - 06.05.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.05.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Tilboð/útboð Auglýsing á deiliskipu- lagstillögu í landi Stóra-Botns Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 21.apríl 2020 að auglýsa deiliskipulagstillöguna Furugerði í landi Stóra-Botns í Hvalfjarðarsveit skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í landi Stóra-Botns er frístundarbyggðin Furugerði. Þar eru tvö frístundarhús ásamt fylgihúsi og hafa landeigendur hug á að reisa tvö frístundarhús til viðbótar á svæð- inu. Aðkoma að frístundarbyggðinni er frá Botnsdalsvegi um malarveg. Lögð er áhersla á að öll uppbygging innan deiliskipulagstillögunar falli sem best að um- hverfinu. Í tillögunni eru fjórar lóðir. Heimilt er að byggja eitt frístundarhús ásamt fylgi- húsi innan hverrar lóðar. Skipulagssvæðið er um 8.9 ha. Deiliskipulagstillagan liggur fammi á skrif- stofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heima- síðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is. Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveit- ar föstudaginn 15. maí á milli 10:00 og 12:00. Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3. 301 Akra- nesi, eða netfangið skipulag@hvalfjardar- sveit.is merkt ”Furugerði”, fyrir 18. júní 2020. Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar Bogi Kristinsson Magnusen Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við höfum opið alla daga frá kl.9-15, með takmörk- unum þó. Þar sem enn eru hópatakmarkanir þarf að skrá sig í alla viðburði hjá okkur. Lögð er rík áhersla á handþvott og sprittun og biðjum við alla að huga að því bæði við komu og brottför. Skráning og allar upplýsingar í síma 411-2701 og 411-2702. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Höfum opnað smá rifu á félagsmiðstöðina. Ákveðnar takmarkanir eru í gildi. Misjafnt eftir svæðum hve margir komast inn í einu. Áfram þarf að huga vel að handþvotti og sprittun bæði þegar komið er inn og þegar gengið er út. Í suma viðburði þarf að skrá sig í síma 411-2790. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Gler og leir í dag í samáði við leiðbeinendur. Kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. Handavinna á Skólabraut kl. 13.00 eingöngu fyrir íbúa á Skólabraut. Á morgun fimmtudag verður bókband í sam- ráði við leiðbeinanda og á morgun verður einnig Jóga í salnum á Skólabraut eingöngu fyrir þá sem ekki búa á Skólabraut. með morgun- nu 200 mílur ✝ Ása Jónsdóttirfæddist í Reykjavík 22. ágúst 1936. Hún andaðist á líknar- deild Landspít- alans 23. apríl 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi, skrifstofustjóri Al- þingis og þýðandi, f. 18. febr. 1886, d. 31. okt. 1957, og Anna Guðmundsdóttir, f. 25. sept- ember 1902, d. 28. mars 1987. Foreldrar Jóns voru Sigurður Ólafsson sýslumaður og Sigríð- ur Jónsdóttir. Foreldrar Önnu voru Guðmundur Hannesson, læknir og prófessor, og Karól- ína Margrét Sigríður Ísleifs- dóttir. Ása varð stúdent frá M.R. árið 1956 og lauk prófi frá Guðmundur Karl Jónsson, f. 20. nóvember 1940, d. 2. júlí 2009. Eiginmaður Ásu var Tómas Karlsson sendifulltrúi, f. 20. mars 1937, d. 9. mars 1997. For- eldrar hans voru Karl Guð- mundsson rafvélameistari og Margrét Tómasdóttir. Börn Tómasar og Ásu eru Jón Frosti leiðsögumaður, f. 2. apríl 1962, og Jökull, f. 15. júní 1965. Sonur Jóns Frosta er Tómas Fróði Frostason flug- virki, f. 3. nóvember 1992; maki hans er Oddný Rún Karlsdóttir, f. 10. janúar 1994. Barnsmóðir Jóns Frosta, móðir Tómasar Fróða, er Hallgerður Thorla- cius sjúkraliði, f. 21. september 1966. Dóttir Hallgerðar og upp- eldisdóttir Jóns Frosta er Silja Ívarsdóttir, f. 19. ágúst 1982. Sonur Jökuls er Finnur Kaldi Jökulsson, f. 7. desember 1999. Móðir hans og eiginkona Jökuls er Kathy June Clark, f. 23. ágúst 1957. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1958. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum árið 1963. Hún lagði stund á nám í menntunar- leikhúsfræði í New School of Social Research í New York og lauk B.A.- prófi árið 1975 en tók M.A.-próf í sama skóla árið 1977. Hún stundaði frönskunám í skóla Sameinuðu þjóðanna og Genfarháskóla á árunum 1979- 1981. Hún var kennari í Hlíða- skóla í Reykjavík á árunum 1963-1974 en kenndi við Aust- urbæjarskóla frá árinu 1982 og síðast við Hvaleyrarskóla þang- að til hún fór á eftirlaun. Systk- ini Ásu voru Sigríður Jóns- dóttir, f. 17. september 1934, og Ég hitti tengdamóður mína þegar ég kom til Íslands frá San Francisco til að giftast eigin- manni mínum á mjög snjóþung- um vetrardegi í febrúar árið 1996. Það voru fyrstu kynni mín af dæmigerðri íslenskri konu, fjölskyldu hennar og menningu. Ég kynntist lífsháttum Íslend- inga og sjónarhorni þeirra í gegnum Ásu. Við áttum furðu margt sameiginlegt, báðar kenn- arar og listamenn með sterkt vinnusiðferði. Jafnvel á níræðis- aldri málaði hún húsið sitt að ut- an í stórum stiga, sló blettinn, klippti runna, reytti mosa og lakkaði pallinn á sumarbústaðn- um. „Óðurinn til sumarbústað- arins“ var verk hennar í vinnslu. Í áratugi hafði hún gróðursett ógrynni trjáa sem mynduðu skjólsælan og þykkan skóg, paradís tístandi sumarfugla. Þetta var ástríða hennar og veitti henni hamingju. Ása hafði unun af gönguferðum og hugaði að grisjun á sínu mikla trjá- þykkni. Hún hélt áfram starfinu mán- uðina eftir að hún greindist með krabbamein og rakaði síðustu laufin sem féllu af trjánum. Ég var steinhissa á staðfestu hennar og viljastyrk við þetta mikla verkefni í veikindunum. Hún kom hlutunum í verk og gerði þá vel. Sami andi ríkti í fjölskyldu minni og ég kunni að meta dugn- að Ásu. Margar voru sögurnar sem tengdamóðir mín sagði mér um ævi sína. Til dæmis frá því þegar hún var sendiherrafrú og hélt veislur fyrir forseta og kóngafólk og fór í kvöldverð í Hvíta húsinu og hitti Reagan Bandaríkjafor- seta og frú. Hún lifði mögnuðu lífi en hélt ávallt í sín jarðbundnu gildi og nýtnu lífshætti. Sem útlendingur lærði ég ým- islegt af Ásu og það mikilvæg- asta var að elda lambalæri og allt meðlætið sem fylgir þjóðar- rétti Íslendinga, sem væri „það besta í heimi“. Ása var fastheldin á skoðanir sínar. Hún var sterk og sjálfstæð með ákveðnar hug- myndir sem áttu djúpar rætur í sannfæringu og lífsskoðunum. Þrátt fyrir alla sína þrjósku vildi Ása öllum vel og var ákaflega ör- lát og elskuleg við syni sína, ömmusyni sína og ömmudóttur. Foreldrum mínum þótti mjög vænt um hana. Ása var kennari fram í fing- urgóma. Mér þótti vænt um að hún tók íslenskukennslu sonar míns í sínar hendur þegar við fluttum til Íslands. Hún var stað- ráðin í að taka hann í einkatíma nánast daglega og kenna honum að lesa og skrifa. Þau mynduðu sterk tengsl sem náðu út yfir heimanámið. Ég er mjög þakklát fyrir að sonur minn og amma Ása hafi átt þennan sérstaka tíma saman. Síðasta hamingjusama minn- ing mín um Ásu var þegar hún bað mig og mágkonu mína að hjálpa sér við að fara í gegnum persónulega muni. Við vorum marga daga að fara í gegnum fötin hennar á meðan hún lá í rúminu og rifjaði upp minningar tengdar hverri flík og sögur um hvar og hvenær hún klæddist þeim. Við hlógum allar og nutum þess að rifja upp Ásu fyrir 20 ár- um eða meira. Mér fannst ég virkilega vera hluti af fjölskyldu- sögunni þegar við áttum þennan dásamlega tíma saman. Mig langar að þakka tengda- móður minni fyrir að hafa reynst mér sterk og elskuleg. Þér var annt um fjölskyldu þína og þín verður minnst fyrir mannkosti þína. Meira: mbl.is/andlat Kathy Clark. Ég og amma mín eigum mjög langa sögu, eins og kannski flest- ir eiga um ömmu sína í rauninni. Hún var án efa ein af sterkustu og ákveðnustu manneskjum sem hef þekkt á ævi minni, hún lét ekkert stoppa sig. Ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég lærði að lesa og skrifa á íslensku. Amma var mjög áköf í að kenna mér að lesa og skrifa á ís- lensku. Hún kom heim til mín á hverjum degi og við lásum hvort fyrir annað. Stundum reyndi ég að smeygja mér út úr því en nei, því mætti ég gleyma. Ef amma væri að koma að lesa með mér þá var hún að koma, það var ekkert flóknara en það. Ég er svo þakklátur fyrir þetta, og mun alltaf sakna skrítnu samtalanna okkar þegar við vorum að rúnta á bílnum saman. Ég mun sakna þín, amma mín, takk fyrir allt sem þú gafst og ert ennþá að gefa. Finnur Kaldi Jökulsson. Mágkona mín og kær vinkona, Ása Jónsdóttir, hefur nú kvatt eftir snarpa glímu við illvígan sjúkdóm. Ása var Reykjavíkur- mær, alin upp á Hólavallagöt- unni ásamt systkinum sínum, Sigríði og Guðmundi Karli, á traustu menningarheimili þar sem listir voru í hávegum hafðar og þjóðþekktir listamenn voru heimilisvinir. Ása hóf sína skólagöngu í Miðbæjarskólanum, þaðan lá leiðin í MR þar sem hún kynntist verðandi eiginmanni sínum, Tómasi Karlssyni. Eftir stúd- entspróf starfaði Ása um tíma sem flugfreyja. Hún hóf síðan nám við Leiklistarskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist en áður hafði hún numið leiklist hjá Lárusi Pálssyni. Ása lauk svo námi frá Kennaraskólanum og varð kennsla hennar aðalstarf sem hún naut sín vel í, sérstak- lega með yngri börnunum, ásamt húsmóðurhlutverkinu en þau Tómas eignuðust tvo syni, Jón Frosta og Jökul. Árið 1974 gerðist Tómas fastafulltrúi í sendinefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og fluttist fjölskyldan þá vestur um haf. Áður hafði Tómas gegnt ýmsum trúnaðarstörfum hér heima; hann var ritstjóri dagblaðsins Tímans, formaður Blaðamannafélagsins, sat á Al- þingi um tíma sem varamaður og stjórnaði þáttum bæði í útvarpi og sjónvarpi. Það kom því í hlut Ásu að standa fyrir ýmsum at- burðum með manni sínum og fórst henni það hlutverk vel úr hendi. Við Guðmundur heimsóttum þau hjón til New York eitt árið og þar varð ég vitni að góðum skipulagshæfileikum, gestrisni og heillandi framkomu Ásu þar sem hún stóð fyrir stórri veislu fyrir íslenska og erlenda framá- menn. Ása sat ekki auðum hönd- um í New York. Hún notaði tækifærið, fór í háskóla og stundaði nám í menntandi leik- húsfræðum. Seinna starfaði Tómas á vegum utanríkisþjón- ustunnar í Genf og í London. Hann lést um aldur fram árið 1997 eftir löng og erfið veikindi þar sem Ása var hans stoð og stytta. Stórfjölskyldan naut árlega gestrisni Ásu sem bauð okkur í sumarbústaðinn sinn í Mosfells- dal. Ása byggði þar nýjan bústað og ræktaði þar myndarlegan skóg á landi foreldra sinna. Hún var dugnaðarforkur utanhúss sem innan. Önnur áhugamál Ásu voru málaralistin en eftir hana liggja eftirtektarverðar myndir. Þá spilaði hún bridge í mörg ár og keppnisbridge á seinni árum. Eftir að við Ása vorum báðar orðnar ekkjur urðu samskipti okkar tíðari og nánari. Við ferð- uðumst saman, fórum saman á ýmsar sýningar eða sátum bara saman og spjölluðum um lífið og tilveruna. Fyrir það þakka ég í dag. Ég votta sonum, tengdadótt- ur, barnabörnum, systur og öðr- um aðstandendum innilega sam- úð. Rannveig Björnsdóttir. Litfríð og ljóshærð, ákveðin og rösk þegar í æsku. Kná í öll- um leikjum, boltaleikjum, hlaup- um, ærslum í görðum og skíða- sleðafærni, sem beitt var af list um vetur, en nú er gleymd íþrótt. Átti í fullu tré við leik- félagana, stráka sem stelpur, og bar af í ýmsu. Leikvöllurinn var Hólavallagata, garðarnir bak við húsin og Landakotstúnið. Hún var spretthörðust allra og gat kastað bolta lengra en nokkur af jafnöldrum sínum, strákum í hópnum til nokkurs ama. Það sætir furðu að á þessum árum var alltaf gott veður, hvernig svo sem viðraði. Þetta var áhyggju- laus æska. Hún var samferða góðum vin- konum sínum úr næsta nágrenni, Garðastræti og Suðurgötu, og leikfélögum úr Hólavallagötu- hópnum, allt frá barnaskóla til menntaskólaáranna, en hvítu kollana settum við upp 15. júní 1956. Ásu sóttist námið vel á öllum stigum. Hún var greind, iðin og ástundunarsöm. Þegar í barna- skóla var ljóst að hún var góðum hæfileikum gædd. Það var ekki aðeins bóknámið sem hún átti létt með. Þegar dansæfingar hóf- ust í söng- og teiknistofunni í Miðbæjarskólanum kom í ljós að þessi fallega, létta og lipra stúlka dansaði eins og engill, og það var sjálfgefið að henni var trúað fyr- ir krefjandi hlutverkum í leik- ritum sem sett voru á svið á jóla- skemmtunum í leikfimissalnum. Leikhæfileikar hennar voru aug- ljósir og þeirra naut einnig í unglingaskóla. Eftir stúdents- próf lauk hún leiklistarnámi í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og eftirminnilegt var að sjá hana á sviði Þjóðleikhússins sem dótt- urina í Föðurnum eftir Strind- berg. Ánægjurík árin í menntaskól- anum liðu í frábærum félagsskap og vináttu. Við skólasystkinin söknum vinar í stað. Sú litla mynd af henni sem hér hefur verið dregin upp kann að vera sonum hennar, systur og öðrum nákomnum nokkurs virði. Blessuð sé minning hennar. Jakob Þ. Möller, MR 56. Ása Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.